Alþýðublaðið - 24.02.1962, Síða 16
MW»WtWWWW%iWtmWWWWtWMWmWWWW»WV»VWWMWWWiWWWMV
I
MÆTAST
ÍDAG
í DAG tefla þeir saman á
millisvæðamótinu í Stokk
hólmi, Friðrik og Gligo
ric, og í tiiefni þess birt-
um við þessa mynd a£
þeim frá kandídatamóf-
inu í Bled 1959. Friðrik
stendur verr að vígi, með
7 ’/í; vinning (14.>, en Gli
goric hefur hlotið 10 vinn
inga og er í 3.—6. sæti.
Horfurnar á að friðrik
komist í hóp sex efstu og
kandídatamótið eru nú
orðnar afar litlar. Á morg
un teflir hann við Schwe
ber. Við vonum að vel
gangfi, iun íaið \»g viði
minnum ykkur á, að
SKÁKÞÁTTURINN er í
biaðinu á morgunl
Lánin nemi 150 !
I
fiúsundum á íbúð!
STJÓRNARFFOJMVARP jua
"fcpeytingu á lögum um húsnæð-
xisoiálastofnun o. fl. hefur verið
*tegt fram á Alþingi.
Frumvarpið legigur til, að há-
■ #nark lána út á íbúð hækki úr
'ÍOO þúsund krónum í 150 þús-
•uad krónur og að Landsbanka
| íþróttasíðan er
> * 10. síðan
íslands sé heimilt að gefa út
foankavaxtaibréf, sem nema 150
milljónum árlega næstu 10 ár,
í stað 100 milljón króna.
Þá er lagt tU, að ríkið láni
Ijafnháa fjárupphæð og viðkom
íandi sveitafélag til íbúðabygg-
íinga til útrýmingar heilsuspill-
jandi húsnæði og heimilt að af-
j greiða helming lánsins þegar ný
I bygging er foklield.
1 Ennfremur er lagt til að í hús-
! næðismálastjórn verði 5 menn
| kosnir hlutbundið af sameinuðu
j Alþingi til 4ra ára. Nú eiga þar
■ sæti 4 menn til 3ja ára.
WWWWMMIWWMWWMWW
Hermann
hættur
Á aðalfundi miðstjórn—
ar Framsóknarflokksins,
sem haldinn var í gær,
lýsti Hermann Jónasson,
formaður flokksins því
yfir, að hann myndi ekki
taka endurkjöri, sem for
maður flokksins.
Mun Eysteinn Jónsson
verða kjörinn formaður
flokksins og Helgi Bergs,
verkfræðingur, ritari í
hans stað.
,xw»wvmwwvwMwww
tnmto)
43. árg. — Laugardagur 24. febr, 1962 — 46, tbl,
Harður árekstur
á Hellisheiði
Selfossi í gær:
HARÐUR bifreiðaárekstur
varð á Hellisheiði í morgun. —
Þrír bílar lentu þar saman og
skemmdist einn svo, að hann
er talinn ónýtur. Engin slys
urðu á mönnum. Mikil hálka og i
þoka var á heiðinni þegar á-
reksturinn varð, og skyggni ekki
nema 30—50 metrar.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, sem nú greinir frá: Vöru
bifreiðin x-624 hafði numið stað ■
ar á miðri há-heiðinni og var
ökumaðurinn að setja keðjur
undir. Skammt frá honum hafði
ný Volkswagen-bifreið einnig
numið staðar og var bifreiða-
stjórinn á henni einnig að setja
undir snjókeðjur.
Þá bar þar að stóran mjólkur-
bíl, sem var á austurleið. Skipti
það engum togum að hann lenti
á Volkswagen-bif reiðinni og
kastaði henni framan á vörubif-
reiðina, og klemmdist hún þar
á milli bílanna tveggja. Volks-
Hagstæður
vöruskipta-
jöfnuður
SAMKVÆMT bráðabirgðayf-
irliti Hagstofu íslands hefur
vöruskiptajöfnuðurinn orðið
hagstæður í janúar um 78,7
milljónir króna. Fluttar voru
út vörur fyrir 305,8 milljónir
króna, en inn fyrir 227,1 millj-
ón króna.
wagninn var alveg nýr, — hafði
aðeins verið ekið um 200 km.
Er hann talinn nær ónýtur. Bíl-
stjórinn á mjólkurbílnum, sá
ekki til hinna bifreiðanna fyrir
þoku. Báðir bílstjóramir er úti
voru, sluppu ómeiddir. — J.K.
Féll fram af
bryggju og
drukknaði
ÞAD hörmulega slys vildi til í
Höfðakaups‘að í fyrrinótt, að 41
árs gamall maður, Hafsteinn
Fossdal Björnsson að nafni, féll
fram af bryggju og drukknaði.
Maður, scm með honum var,
stakk sér eftir honum, en fann
hann ekki enda mikill sjógang
ur.
Hafsteinn hafði vefið niður í
bát, sem lá þar við bryggju, og
var ásamt öðrum manni, aíS
vinna eitthvað um borð. Er
þeir fóru í land, rak bátinn frá,
og ætlaði Hafsteinn að festa
liann. en féll þá í sióinn.
Félagi lians stakk sér þegar
eftir honum en fann hann ekki
í brimrótinu. Seint í gærdag
rak svo lík Hafsteins á land.
Hann lætur eftir sig konu og1
tvö börn í ómegð.
Kosið í dag og á morgun
STJÓRNARKJÖR I IÐJU hefst kl. 10 f.h. í dag. Kosið er í skrifstofu félagsins, Skip-
holti 10. Stendur kosningin til kl. 7 í kvöld, en á morgun verður kosið kl. 10 f.h. til
kl. 10 annað kvöld. Kosningaskrifstofa B-listans ei I Vonarstræti 4 (húsi VR) 3. hæð.
Símar eru 19044 og 19366. — Stúðningsmenn B-listans eru hvattir til þess að kjósa
snemma og vlnna vel fyrir listann. Gerið ósigur kommúnista sem mestan.
Guðjón
Ásgeir
Ingimundur
Ingibjörg
Jóna
Steinn
Guðmundur
■*,* '.'■'-■IWWtWWiWWWWWWWWWW