Alþýðublaðið - 03.08.1962, Blaðsíða 13
Um þessar mundir er verið að taka kvikmynd í Þýzkalandi, sem vakið hefur mikið umtal og orðið tll-
efni deilu milli aust- og vestraenua.
i
Myndin er að nokkru leyti tekin í nágrenni Hamborgar, að nokkru í Austur-Berlín og einnig í kvik-
myndaveri í Písa á Ítalíu.
Þessi kvikmynd er gerð eftir fraegu verki JeanPaul Sartres — fangarnir I Altona.
Leikstjóri er hinn frægi Vittorio De Sica og aðal'eikkonan enn frægari — Soffía Loren.
Kvikmyndin er byggð á sögu Sartre um liðsforingja í Þýzkalándi, sem af fúsum vilja lokar sig inni
frá umheiminum í höll einni. Þar býr hann einn í þrettán ár kvalinn af slæmri samvizku og vill með
gerðum sínum gera yfirbót fyrir allt hið ina, sem Þjóðverjar — herir Hitlers hafa unnið mannkyninu.
Þessar myndir á blaðsíðunni eru teknar meðan á töku myndarinnar stóð. Á þriggja dálka myndinni
er Soffía Loren umkringd aðdáendum eins og hvar vetna, sem hún fór.
Á minni tvídálka myndinni er Loren í hlutverki sí "U en hin myndin sýnir De Sica (fremst) ásamt að-
alleikcndunum Loren og Maximilian Schell. í baksýn er höllin, sem leigð var til að taka innsenurnar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. ágúst 1962 13