Alþýðublaðið - 09.08.1962, Qupperneq 3
R ARGEITÍNU
RIR UPPREISN
BUONES AIRES, 8. ágúst.
(NTB Reuter)
Yfirmaður fjórða stórfylkis
Argentínu, Fredrico Torranzo
Montero hershöfðingi, hefur gert
uppreisn gegn hermálaráðherran-
um, Juan Batista Loza, að því er
Nýr samningur
um Grænland
*
DANIR og Bandaríkjamenn hafa
gert með sér nýjan viðbótarsamn
ing um hernaðarlegar framkvæmd
ir á Grænlandi. Eiga Danir að fá
meiri aðild að þessum framkvæmd
um og reikna með töluvert aukn-
um tekjum, þannig að heildartekj
ur þeirra af bækistöðvum Ame-
ríkumanna verði um 125 milljón-
ir danskra króna. Nú starfa alls
um 500 Danir við varnarstöðvarn
ar.
Auk þess sem Danir eiga að fá
betri aðstöðu til að taka að sér
framkvæmdir, verður meira af
vörum til varnarstöðvanna keypt
í Danmörku en áður. Verður sett
upp í Kaupmannahöfn sérstök
skrifstofa til að annast þessi mál.
Danir gera sér meðal annars
vonir um, að siglingar til Græn-
lands aukist verulega eftir þetta
nýja samkomulag, og vafalaust auk
ast flugflutningar þangað einnig.
tilkynnt var í Buenos Aires í dag.
Montero hershöfðingi hefur
skipað sig æðsta mann Argentínu-
hers.
Fréttaskeyti herma, að uppreisn-
arhershöfðinginn njóti stuðnings
setuliðanna í Mendoza, Cordoba,
Comodoro, Rivadavia og La Plata.
Sumar fregnir herma að herskól-
inn í Buenos Aires styrki hann
einnig.
Haft er eftir góðum heimildum,
að svo virðist enn sem komið er
sem uppreisnin einskorðist við
herinn og henni sé ekki beint
gegn stjórninni.
Tilgangur uppreisnarinnar á að
vera sá, að koma því til leiðar
að liðsforingjum, sem fylgja Perón
að málum og Loza hershöfðingi
hefir skipað, verði vikið úr emb-
ætti, skilja að embætti yfirhers-
höfðingja og liermálaráðherra og
koma á ýmsum umbótum innan
hersins.
Fjórða stórfylkið, sem Montero
hershöfðingi stjórnar, er staðsett
í Yallu-héraði í norðurhluta lands-
ins.
Loza hermálaráðherra gegnir
jafnframt embætti yfirhershöfð-
ingja. Hann var skipaður í þessi
embætti að launum fyrir þátttöku
hans í byltingu forystu hersins
gegn Frondizi forseta í marz í ár.
Byltingin varð til þess, að forset-
anum var vikið frá völdum.
Toranzo Montero hershöfðingi
hefur komið sér upp bækistöðvum
í Jujuy, höfuðstað Saltaf-héraðs.
Hermálaráðherrann hefur lýst yf-
ir, að gripið hafi verið til nauð-
synlegra ráðstafana og Montero
hafi verið sviptur herstjórn.
Uppreisnarhershöfðinginn Mon-
| tero er bróðir Carlos Severos
Toanzo Montero, sem var yfirhers-
j höfðingi í tíð Frondizi forseta.
USA vill fækka>
eftirlitsstöðvum
Genf og Washington, 8. ág. ríkjamenn hafi fallið frá því grund
(NTB—Reuter)
BANDARÍKJAMENN lýstu því yf-
ir I dag, að þeir væru fúsir til
þess að fækka um rúmlega helm-
ing fjölda eftirlitsstöðva, sem lagt
hefur verið til að settar verði á
fót í sambandi við bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn.
Formaður bandarísku sendi-
nefndarinnar á afvopnunarráð-
stefnunni, Arthur Dean, sagði í
ræðu, að af bandarískri hálfu yrði
lagt til, að slíkar eftirlitsstöðvar
yrðu um 80 talsins. Áður hefur
verið talið nauðsynlegt að hafa
um það bil 180 eftirlitsstöðvar.
Það lítur út fyrir, að Banda-
vallaratriði, að starfsmenn slíkra
stöðva verði af ýmsu þjóðemi og
muni fallast á að starfsliðið verði
frá því landi þar sem viðkomandi
eftirlitsstöð er. Allt eftirlitið skuli
þó hafa alþjóðlega stjórn.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Rusk, ræddi við sendi-
herra Rússa í Washington, Ana-
toly Dobrynin, í dag. Aðalmálið á
dagskrá yar bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn, að því er tal-
ið var.
Aðspurður kvaðst sendiherrann
ekki hafa heyrt, að Krústjov for-
sætisráðherra hyggðist koma til
Framhald á 5. síðu.
KOSNINGUM í
ALSlR VERÐUR
EKKI FRESTAÐ
,¥ num‘ meinað að
vera við útför MM
Hollywood, 8. ágúst
(NTB—Reuter).
HIN þekkta bandaríska kvikmynda
Jeikkona, Marilyn Monroe, sem ný-
lega fannst látin í íbúð sinni í
Hollywood, var jarðsungin í dag í
lítilli kapellu í útjaðri kvikmynda-
borgarinnar. Einn af fyrrverandi
leikstjórum Marilyn, Lee Strass-
berg, sagði í ræðu yfir líkbörun-
um, að minningin um kvikmynda-
leikkonuna mundi lifa sem tákn
um hinn eilífa kvenleika.
Strassberg sagði, að til væru
margar konur, sem væru jafnfagr-
ar og Marilyn var, en það var
meira við liana, sagði liann. Hún
var geislandi persónuleiki, sem
sameinaði marga eiginleika. Hún
var vafalaust í röð mestu kvik-
myndaleikkvenna vorra tíma,
sagði Iiann að lokum.
Blaðið „New York Post“ hermir,
að íbúar Hollywood sáu sárgramir
vegna þess, að helz' i kvikmynda-
leikararnir fengu ekki að vera við-
staddir jarðarförina. Meðal þeirra,
sem ekki fengu að fara inn í kap-
elluna, voru Dean Martin, Gene
Kelly, Peter Lawford og frú (hún
er systir Kennedys forseta) og
einkaritari Marilyn, Mary Réis.
Lögfræðingur Marilyn Monroe,
Milton Rudin, hefur sent öðrum
ciginmanni hennar, Joe DiMaggio,
mótmæli. Þar segir, að hundruð
vina Marilyn hafi ekki fengið að
vera við útförina. DiMaggio hef-
ur svarað því til, að Marilyn væri
ekki þar sem hún er nú ef það
hefði ekki verið vegna nokkurra
vina hennar.
Blaðið segir ennfremur, að það
hafi verið mágur Kennedys for-
seta, Peter Lawford, sem hringdi
til Marilyn sama kvöldið og hún
fannst látin. Lawford á að hafa ját
að betta fyrir lögreglunni, en sagt,
að hann hefði hringt til þess að
bjóða Marilyn til hádegisverðar.
I.ögreglan reynir að rannsaka
símahringingu þá, sem sennilega
var sú síðasta sem Marilyn fékk
áður en hún dó. Rannsaka á hvort
hún kunni að standa í sambandi
við það, hvort Marilyn framdi
siálfsmorð eða hvort hún hafi lát-
izt af slysi.
Hafin er nákvæm rannsókn á
því, hvers vegna Marilyn Monroe
lézt, hvort um sjálfsmorð eða slys
hafi verið að ræða, hvað liún hafð-
ist að síðustu mánuði ævinnar, hve
óhamingjusöm, óörugg og hrædd
hún var og hvaða framtíðarmögu-
leika hún hafði.
,Það, sem vitað er, er í stuttu máli
þetta:
Marilyn gat gert sér vonir um að
halda áfram hjá kvikmyndafélag-
inu 20th Century Fox í myndinni
„Something’s Got to Give”. Henni
hafði borizt tilboð um að leika í
franskri kvikmynd og annað til-
hoð hafði henni borizt frá Las Ve-
gas. Samkvæmt því átti hún að
skemmta þar og fá 55.000 dali á
viku.
KI. 5 síðdegis daginn sem hún
lífði hringdi hún í lækni sinn og
kvaðst ekki geta sofið. Hún
snæddi kvöldverð ásamt blaðafull-
trúa sínum og í sameiningu Iögðu
hau á ráðin um livað hún skyldi
gera sunnudaginn á eftir. Kl. 8
eekk hún til svefnherbergis síns
og hauð góða nótt. í lyfjaglasinu,
sem stóð á borði hennar, voru 50
svafnpillur.
Hér kemur að spurningunni um
hvort um sjálfsmorð eða slys -hafi
vorisv aö ræða, og greinir menn
m.iög á um það. Eitt eru menn
sammála um. Að hún var mjög
einmana. Líf liennar síðustu mán-
Framh. á 11. síðu
ALGIERSBORG, 8. ágúst.
(NTB-AFP)
Formaður bráðabirgðastjórnar-
stjórnarinnar í Alsír, Abderrah-
mane Fares, vísaði á bug i dag
fregn þeirri, að kosningunum til
þjóðþings landsins yrði frestað
öðru sinni.
Kosningarnar eiga að hefjast
hinn 15. ágúst og þeim lýkur ekki
fyrr en 30. ágúst.
í ræðu sem hann hélt í hóp
kaupsýslumanna og embættis-
manna lagði hann áherzlu á, að
bráðabirgðastjórnin og stjórnar-
nefndin yrðu að vinna saman að
því að leggja grundvöllinn að
alsírsku framtíðarríki.
Innan skamms verða gerðar
skipulagsbreytingar jnnan frelsis-
hreyfingarinnar og frelsishersins
í Constantine-héraði, að því er
tilkynnt var í dag. Ákvörðun um
þetta var tekin nýlega með sam-
þykki Ben Bella. Önnur herstjórn-
in gaf út tilkynninguna.
i Sovézkt skip kom í dag með
j 6500 lestir af hveiti til Algeirs-
| borg'ar. Annað rússneskt skip kem-
! ur með fisk, mjólk, sykur og olíu
■ eftir hálfan mánuð.
| Rauði krossinn hvatti í dag til
|þess, að meira yrði gert til þess
að leysa hið alvarlega flóttamanna-
vandamál. Mörg þúsund börn,
sem snúið hafa aftur til Alsír,
munu vera að dauða komin vegna
malaríu, berkla og næringarskorts.
Bandaríska ræðismannaskrif-
stofan í Constantine tilkynnti í
dag, að bandaríska stjómin mundi
senda matvæli og annað til Alsír.
Send verða m. a. tjöld, er skipt
verður niður á milli 12 þúsund
Serkja, sem eru heimilislausir.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
AÐFARANÓTT þriðjudagsins
var ekið á bifrcið, sem stóð á móts
við húsið Grettisgötu 31.
Þetta mun hafa skeð á tímabil
inu frá því klukkan tvö um nótt-
ina þar til klukkan 17 daginn eft
ir, en þá kom eigandinn að bif-
reiðinni og var þá vatnsskassahlíf
in dælduð að ofanverðu, líkt og
vörubíl hefði’ verið bakkað á bif
reiðina.
Það eru vinsamleg tilmæli rann
sóknarlögreglunnar að, að sá sem
þessum árekstri olli, svo og þeir
sem kunna að hafa séð er þetta
vildi til, gefi sig fram við hana
hið fyrsta.
Verkamenn
Vierkamenn óskast, löng 'vinna.
VERK h.f., Laugavegi 105, sími 11380.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1962 9. ágúst J