Alþýðublaðið - 09.08.1962, Side 11
MED SILFURFESIIJÓNS
BÓNDA Á LAXAMÝR
JON AUKLAND frá Noregi
konv með lystiskipinu Genn,
er var hér fyrir skömmu
Hann kann fornsögurnar utan-
bókar og saga íslands, Nore,?s,
Danmerkur, Svíþjóðar og Fær-
eyjanna brennur honum á
tungu. Og framan á sér ber
Iiann siifurkeðju, sem hann
fékk hjá Jóni Þorbergssyni á
Laxamýri fyrir koffort.
Jon Aukland var um árabil
rektor kennaraskólans í Stord
í Noregi og kenndi þá 'eink-
um norska sögu og uppéldis-
fræði. En norsk saga er og saga
íslands segir Aukland og Snorri
Sturluson hafði jafnvel áhrif á
samningana 17. maí, 1814, þeg-
ar Noregur fékk Grundloven.
— Hvernig gat Snorri haft
áhrif á það?
— Það var menning liðinna
alda.
— Ení dag?
— Það eru margir, sem hafa
skarað fram úr. Ivar Aasen
lagði grunninn að nýnorskunni.
Hann skrifaði norska málfræði
og norska orðabók, sem eiga
enga sína líka. Hann orti líka,
og kvæðin voru þá föst fyrir og
haglega sniðin eins og höggvin
í marmara. Núna eru mörg
kvæðin eins og steinvölur, sem
rúlla hver frá annarri. Það
brennur víst einnig við hér á ís-
Iandi.
— Hafið þér sjálfur ort?
— Ég hef gefið út tvær ljóða-
bækuír1. Önnur heitir Erling
Skjalgsson, hin heitir Norrona.
— Hver var Erling Skjálgs-
son?
— Hann var hinn ókrýndi
konungur Noregs,. — einn af
þeim, sem skaraði fram úr.
Hann var að sínu leyti eins og
Jón Sigurðsson er í huga Is-
lendingsins, en Erling var uppi
Jón Aukland og frú
eiiítið fyrr eða á tímum Ólafs
Tryggvasonar um árið þúsund.
— Og Norrona?
— Norrona er gamal norsk.
það táknar það, sem kemur úr
norðri. Svo skrifaði ég sögu.
— Hvernig fenguð þér áhuga
á íslandi?
— Það er sagan, — sama sag
an — sama menningin.
— Og frúin?
— Ég hef líka áhuga á Is-
landi.
— Og var ísland eins og þið
bjuggust við?
— Neí. Við bjuggumst ekki
við því svona nýtízkulegu.
— En Noregur? Eru þar
nokkur sel?
— Þau hverfa, — en ég var
eitt sinn selstúlka og kallaði á
búfénaðinn á fögrum sumar-
kvöldum heim til selja.
— Hvernig er að ferðast með
skemmtiferðaskipi?
— Það er gott — og okkur
hafði lengi langað til íslands.
Við ætluðum að koma 1930, —
en þá gátum við ekki farið. En
svo þegar við erum komin og
Jon er orðinn 73 ára, þá finnst
okkur tekið á móti okkur eins
og frændum og vinum.
— Og keðjan hans Jóns?
— Já, hann lét mig hafa hana
fyrir koffort, áður en hann fór
h'eim af lýðháskólanum árið
1907. Þá þurfti hann á kofforti
að halda, — en silfurfestina
hef ég alltaf borið síðan þá ..
Happdrætti Alþýðublaðsins
Afgreiðslan
Hverfisg. 4
er opin
fil kl. 8 í kvöld
Sendum miða heim. Sími 0453.
H A
Marilyn
Framhald af 3. síðu.
uðina var „stanzlaus hjálpar-
beiðni, sem enginn svaraði", eins
og einn dálkahöfundur komst að
orði.
Sumir segja, að Marilyn hafi
verið eiturlyfjaneytandi síðustu
mánuðina áður en hún dó og hún
hafi bcrðað svefnpillur eins og
venjulegt fólk borðar brjóstsykur.
Móðir hennar er á geðveikrahæli,
og afi hennar og amma létust á
geðveikrahæli. Frændi hennar
fyrirfór sér.
Arthur MiIIer, þriðji eiginmað-
ur Marilyn ságði, er hann frétti
um lát hennar: „Þetta hlaut að
gerast — ég vissi ekki hvar eða
hvenær, en það var óhjákvæmi-
Iegt“.
Fyrsti eiginmaður hennar sagði:
„Mér þykir það leitt“. Síðan hélt
hann áfram löggæzlustörfum sín-
um í lögreglubíl, nokkrum kíló-
metrum frá skrauthýsi Marilyn,
eins og ckkert hefði í skorizt.
Spónaplötur
18 og 22 mm.
Gahoon
16 — 19 og 22 m.m.
Beykikrossviður
3 og 4 m.m.
Hjáfmar Þorsteinsson & Co.
Klapparstíg 28. — Sími 11956.
Vélritunarsfúlka óskast
Bæjarskrifstofur Kópavogs óska eftir dug-
legri vélritunarstúlku/þegar í stað.
Upplýsingar á Bæjarskrifstofunum á skrif*
stofutíma næstu daga.
GARNAHREINSUN -
FRAMTÍÐARST ARF
Ungur lagtækur maður óskast sem fyrst til að
læra og stjórna nýrri garnahreinsunarvél í
Gamastöð S.Í.S. Gott kaup. Umsóknir sendisfe
S.Í.S. deild 30.
lilkynning frá sjúkrasamlögunum
í Reykjavík og Mosfeilssveit
Frá 1. september n.k.
breytast mörkin milli samlagssvæðanna þann
ig að allir Reykvíkingar (búsettir í Selási, Smá
löndum og víðar), sem hingað til hafa verið í
Sjúkrasamlagi Mosfellssveitar, eiga frá þeim
degi að vera í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur.
Frá og meS 15. ágúst
geta þeir, sem eiga að skifta um samlag, smi-
ið sér til Sjúkrasamlags Reykjavíkur, valið
lækna og fengið afhent samlagsskírteini er
gildi frá 1. september enda sýni þeir fullgilda
samlagsbók frá Sjtikrasamlagi Mosfellssveit-
ar.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur. tekur við greiðslu.
vangreiddra gjalda til Mosfellssveitarsamlags
ins til flutningsdags..
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Sjúkrasamlag Mosfellshrepps.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1962 9. ágúst