Alþýðublaðið - 09.08.1962, Side 13
TÍMARITIÐ Scientific Amerl
can flutti nýlega grein um ástand
sem að undaníörnu hefur valdið
skelfingu og viðbjóði um gjör-
valla heimsbyggðina.
Það hefur komið í ljós, að kon
ur, ícm tekið liafa þá tegund lyfja
sem nefnt er Thalidomide um
meðgöngutímann hafa oft fætt
vansköpuð börn.
Læknir sá, Dr. Helen Tausing,
sem greinina skrifar í tímaritiS
spáir í fyrrnefndri grein, að á
komandi liausti munu fæðast um
7000 vansköpuð börn af völdum
Thalidomide í Þýzkalandi einu,
en alls munU hin vansköpuðu
börn verða nálægt 9000 um heim
allan.
Ennfremur segir hún í um
ræddri grein, að ef til vill séu
börn þau, sem svo eru vansköp
uð að þau deyja, hamingjusamari
en þau sem verða að lifa við þau
ósköp, sem lyfið hefur búið þeim.
Þetta eru hörð orð, eú sýna svo
ekki verður um villst, hversu
hræðilegar afleiðingar notkun
lyfsins kann að hafa.
Senator Hubert Humprey, einn
af þekktustu þingmönnum öld-
ungadeildarinnar bandarísku, hef
ur látið svo um mælt, að sleifar
lag og ónauðsynlegur seinagang-
ur hinnar alþjóðlegu upplýsinga
þjónustu, hafi orðið þess vald-
andi að um 1200 bandarískir lækn
ar hafi tekið við lyfinu og ráð-
FEIGÐARLYFIÐ
THALIDOMIDE
Fórnarlamb Thaliomide —
venjulega hafa glík börn stutta
afmyndaða handleggi og hendur.
Oft eru fætur líka vanskapaðir
ennfremur eyrun, kokið', hjartað
og stærri blóðæðar. Flest þau
börn, sem verða fyrir þessu liafa
þó eðlilega greind.
Hér vaxa fótarbeinin út á við.
þrátt fyrir það, að þau eru mjög
afmynduð er sá möguleiki til að
barnið geti Iært að ganga á fót
um sínum. Því miður eru ekki
öll Thalidomide-börn svo heppin
lagt barnshafandi konum það viq
svefnleysi og slappleika á taugum
Nefnd sú er skipuð var í*Banda
ríkjunum til þess að rannsaka
sögu og útbreiðslu á Thalidomide
hefur komizt að þeirri niðurstöðu
að það hafi verið af hreinni til-
viljun að menn komust á snoðir
um áhrif lyfsins á ófædd börn.
Kvenlæknir nokkur, sem vinn
ur í heilbrigðismálaráðuneytinu
rakst sem sé á lesendabréf í einu
af hinum 4000 læknatímaritum
heims, þar sem getið var um hin
óhugnanlegu áhrif lyfsins.
Læknir þessi, Frances Kelsey,
sem átti upptökin að stöðvun á
allri sölu Thalidomide í Banda-
ríkjunum hefur nú verið sæmd
æðsta heiðursmerki landsins, er
veitt er óbreyttum borgurum þess
Frá Bonn í V.-Þýzkalandi ber
ast þær fréttir frá lækninum,
sem méstan þátt átti þar í, að
sala lyfsins var stöðvuð, að af
hverjuip 200 börnum sem fæðast
í V.-Þýzkalandi sé að minnsta
kosti eitt vanskapað af völdum
Tlialidomide. Áður en Thalido-
mide kom til sögunnar var aðeins
eitt barn af hverjum 50.000, sem
fæddist vanskapað. Grunur hans
á Thalidomide vaknaði, er hann
komst að raun um það við rann-
sókn á barnadeild sjúkrahúss
þess er hann vinnur við, að 80%
allra þeirra kvenna, sem fæddu
vansköpuð börn höfðu neytt lyfs'
ins á meðgöngutímanum.
Þessi mynd sýnir greinilega
livernig beinin í upphandlegg og
öxl vanskapast og verða óeðli-
lega stutt »g afmyndúð. Slík af-
myndun á beinum er ckki mjög
sjaldgæf, en er þó oftast á aðeins
öðrujn handleggnum. Sé vansköp
unin Thalidomide að kenna kem
ur vansköpunin yfirleitt fram á
báðum örmum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1962 9. ágúst J3