Alþýðublaðið - 27.04.1963, Qupperneq 7
Ausetiwitz -
20 áriim siðar
Fyrir nokkru var grafin úr jörð
glerkrukka iað baki eins lík-
brennklirftfnanna við Anschwitz-
íangabúðirnar illræmdu í Póllandi.
Krukkan var full af upplýsingum
nm það fólk, sem tekið var af lífi
f gasofnunum í október 1944. —
Upplýsingarnar voru skráðar af
Gyðingum, sem neyddir voru til
að tína allt fémætt af líkum kyn-
bræðra sinna áður cn þeir fóru í
gasofnana. Eftir þriggja mánaða
starf lentu þessir Gyðingar, sem
skráðu þetta, sjálfir í gasofnunum.
Sá einasti, sem vissi til þess
að þessar upplýsingar höfðu verið
festar á blað, var Pólverji nokk-
ur, sem neyddur hafði verið til
að vinna að iagfæringum á gas-
ofnunum, þar eð hann var raf-
virki. Fyrir tveim árum fann hann
krukkuna með þessum upplýsing-
um. Rafvirkinn er nú safnvörður
í Auschwitz. Fyrst fann hann málm
hylki, sem í var dagbók, sem skrif
nð hafði verið á laun á hebrezku.
Á öftustu síðu bókarinnad stóð:
ustu„KaIdið áfram að Ieita“. bað
mun ýmislegt finnast í öskuleif-
unum í kringum ofnana. í sumar
fannst svo fyrrgreind krukka og
voru meðal annars í henni upplýs-
ingar um f jölda þeirra, sem tekn-
ir voru af lífi í gasofnunum árið
1944.
FLÖTUFYRIRTÆKI Frank Sin-
atra gerist nú umsvifamikið og ber
ast nær vikulega fregnir um að
fyrirtækið hafi gert samninga við
fræga listamenn, sem áður hafa
sungið inn á plötur fyrir önnur
fyrirtæki. Fyrir skömmu réðust
McGuire systur til Reprise og sömu
leiðis hinn frægi kvartett „The
Four Lads“. Einnig er James Darr
en kominn á samning hjá Reprise.
Skatta-
byrðin
AÐ minnsta kosti síðastliðin 4000
ár hafa menn orðið að greið'a
skatta af ýmsu tagi, segir Alfonss
Pausch í Bitburg,.* Hann er inn-
heimtumaður hjá skattayfirvöldun
um í Bitburg og hefur í tómstund
um komið upp safni um skatta,
sem sennilega er einstætt í hcim-
inum.
Elzti gripurinn i safninu er lág-
mynd, sem mun vera frá árinu
2300 f. Kr. Á henni sést fékista
egypzka vesírsins Mereuka í Sak-
kura nálægt Memphis. Tveir menn
Iiggja á hnjánum fyrir framan
skattheimtumanninn, en verið er
að hýða þann þriðja, sem neitar
að greiða skattinn. Pausch segir
að á þessu megi glöggt sjá hverjar
framfarir hafa orðið til hins betra
meðal sattheimtumanna.
í safni sínu á Pausch einnig skrá
um skattskylda borgara í borginni
Trier árið 1363. í safni hans er
einnig skjal frá árinu 1628, þar
sem skýrt er frá þvf, að þeir sem
eigi tiu eða fleiri skilgetin börn,
þurfi enga skatta að greiða.
Hættulegar hrein-
gerningar
Vátryggingafélag eitt í Þýzka-
landi hefur skýrt frá því, að sú
mikla aukning, sem orðið hafi á
slysum í heimahúsum síðastliðin
ár eigi að mestu rætur sínar að
rekja til vorhreingerninganna. —
Félagið ráðleggur húsmæðrum að
reyna að framkvæma þessa hrein-
gemingu, sem mest með öðrum
heimilisstörfum, í stað þess að
setja allt heimiiið á annan end-
ann í einn eða tvo daga og um-
turna öllu, sem mest má verða.
Ennfremur: Hreingerningar verð-
ur að framkvæma með skynsemi
og af hyggjuviti, þær eiga ekki að
vera til þess að leyfa fólki að
sleppa fram af sér taumnum og
ganga sér til húðar og stofná heim
ilisfriðnum í hættu.
-SMÆLKI - SMÆLKI-SMÆLKI
Joan Crawford og
Bette Ðavis leika
saman í kvikmynd
BANDARÍSKA kvikmyndafram-
Ieiðandanum og leikstjóranum Ro
bert Aldrich hefur verið boðið að
sýna kvikmynd sína „What ever
happened to Baby Jane?“, á kvik
myndahátíðinni í Cannes.
í kvikmyndinni leika margar
stórstjörnur, og ber þar hæst Bette
Davis og joan Crawford. Er þetta
í fyrsta skipti, sem þessar tvær
leikkonur leika saman í kvikmynd.
Baðar segja þær um hlutverk sín,
að það séu skemmtilegustu og
jafnframt erfiðustu hlutverk, er
þær hafi haft á hendi í mörg ár.
Laugardagur 27. apríl.
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónl. -
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfr.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 Óskalög sjúklinga (Ragnheiður Ásta Pétursdóttir).
14.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins.
15.00 Fréttir. — Laugardagslögin.
16.30 Veðurfregnir. — Danskennsla (Heiðar Ástvaldsson).
17.00 Fréttir. — Æskulýðstónleikar kynntir af dr. Hallgrími Helga-
syni.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börnin í Fögruhlíð" eftir Halvor Flod-
en; XII. ÍSigurður Gunnarsson).
18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson).
19.00 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfr. — 19.30 Fréttir.
20.00 , Paganini", söngleikur í 3. þáttum, eftir Paul Knepler og Bela
Jenbach. — Tónlist eftir Franz Lehár. Þýðandi: Þorsteinn Valdi-
marsson. Sinfóníuhljómsveit slands leikur með. Einleikari á
fiðlu: Björn Pálsson. Stjómandi: Páll Pampiehler Pálsson. —
Leikstjóri: Ævar Kvaran. Flytjendur: Guðmundur Guðjónsson,
Þuríður Pálsdóttir, Guðmundur Jónsson, Sigurveig Hjaltésted,
Erlingur Vigfússon, Jón Aðils, Gísli Alfreðsson o. fl. ásgmt
Þjóðleikhúskórnum.
22.00 Fréttir og voðurfregnir.
22.05 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
FORSTÖÐUMENN útvarps- og
sjónvarpsstöðva í Bandaríkjunum
hafa valið lagið „What kind of
fool am 1“ úr söngleiknum „Stop
the world I want to get off“ lag
ársins 1962. Margir hér munu
kannast við þetta lag, en Delta
Rythm Boys höfðu það á söngskrá
sinni, er þeir voru hér á ferð fyrir
skömmu.
Maja: En þú hefur bara þekkt
hann í hálfan mánuS. Þú ætlar ekki
að segja mér að þú ætlir að gift-
ast honum eftir svo stutt kynni?
Stína: Blessuð vertu, það er ekki
eins og þetta sé ókunnugur maður.
Ég þekki stúlku, sem var trúlofuð
honum í tæp tvö ár.
— Ég’hef alltaf haldið því fram,
sagði Kalli, að engir tveir menn
hugsi eins.
— Þú verður fljótur að skipta
um skoðun, þegar þú verður búinn
að líta á það, sem við fengum í
brúðargjöf.
★
— Mér er sagt að þú sért búin
að slíta trúlofuninni.
— Já. það er rétt. Jói kom mjög
illa fram við mig.
— Nú. hvernig þá. Hann tók upp
sögninni alveg þegjandi og hljóða-
laust.
★
— Kysstu mig, eískan.
— Nei, nei. Hún mamma er svo
mikið á móti kossum.
— Já, en það varst þú, sem ég
ætlaði að fá að kyssa, en ekki hún
mamma þín.
*
*— Hvor er brúðguminn?
— Þessi sorgmæddi. Sá kampa-
káti er faðir brúðarinnar.
— Mamma, geta allir englar
flogið?
— Já Villi minn. Hvers vegna
spyrðu?
— í gær sagði pabbi nefnilega
við vinnustúlkuna, að hún væri eng
ill. Getur hún bá flogið?
—.Já, hún flýgur á morgun, Villi
minn. íf
★
Hún: Jæia, é? sé að þú ert bú-
inn að ræða við pabba.
Hann: Nei, blessuð vertu, ég lentí
í bílslysi á leiðinni hingað.
— Þessi vinur þinn dvelst full
lengi hjá þér á kvöldin. Kann hann>
ekki að bjóða góða nótt eða hvað?
— Það kann hann svo sannar-
lega, pabbi. Ég þekki meira að segja
engan, sem gerir það betur.
— Hvers vegna voruð þið Konnr
að rífast?
— Hann bað mín aftur í gær-
kveldi.
— Var það svo slæmt?
— Já, ég tók honum nefnilega k
fyrrakvöld.
★
Hún: Ég get ekki gifst þér, en ég
skal vera þér sem systir.
Hann: Ágætt, hvað heldurðu a5
við erfum eftir hann pabba?
Klæffa mig úr? Ertu eitthvaff
skrýtinn effa hvað?
26 BIDILSBREF Á
TVEIM DÖGUM
VERZLUNARSTÚLKA ein í Lond
on, Elsie Cupit, 21 árs gömul, fékk
um daginn 26 bónorðsbréf á tvcim
dögum. Hún hefur nú tefcið þa á-
Iivörðun. a'ð bjóffa óli’ain bifflun-
um heim til- sín, þannig að hún
megi kynnast þeim uánar.
Forsaga þessa máls er sú, að
atvinnulaus Skoti setti auglýsingu
í dagblað eitt, þess efnis, að ef ein
hver dama vildi borga fyrir hann
farseðil til Suður-Englands, þar
sem atvinnuástand er mun betra,
þá skyldi hann kvænast henni mcð
það sama. Einnig fór liann frain á
það, að damau héldi honum uppi
þar til haun hefði náð í vinnu.
Elsie svaraði þessari auglýsingu
og Skotinn kom til hennar. Hann
hafði þá verið aívinnulaus í hálft
ár. Þau opinberuðu með pomp og
pragt og farið var að undirbúa
giftingarveizluna. Þá fékk eigin-
maðurinn tilvonandi skyndilega*.
eftirþanka og sneri aftur Iieim tiÞ
Skotlands. Um leið og sagan um
ævintýri hans barst út strcymdue
biðilsbréfin til Elsie.
Af þeim 26, sem höfffu skriíað'
hcnni biðilsbréf, þegar síffast frétt
ist, voru allmargir ekkjumenn, er*
einstaka piparsveinar voru þó inn-
an um. Flestir voru mennirnir múr
arar aff atvinnu, cn nokkrir unm»
á skrifstofum. Aldur biðlanna var
frá 26—40 ár.
Elsie kveðst gjarnan vilja gift-
ast, en þar scm hún búi í stórborg
j hafi hún ekki tækifæri til að kyniv
; ast réttum mannsefnum. Þrátt íjt-
,ir að fyrsta tilraunin mistækist er
hún sannfærð urn, að meðal liinn»-
26 muni eiuhver leynast, sem gert
i geti hana hamingjusama.
ÁLÞÝÐUBLABfö — 27. apríl. 1963 f