Breiðablik - 01.07.1907, Side 10

Breiðablik - 01.07.1907, Side 10
2Ó BREIÐABLIK. þeirra, er á þurfti að halda, — og þess þurfti ekki svo sjaldan um það leyti. Hann var jafnvel viðkvæmari fyrir hög'g'- ur.um í þeirra garð en sinn eiginn, og vildi þeirra sóma sem mestan í öllu. En hann sagði þeim líka betur til þess, er áfátt var í fari þeirra en flestir aðrir- Stórmikinn þátt átti hann í því, hve hugs- Einar Hjbrleifsson. unarhátturinn þroskaðist og lagfærðist. Hann gjörði það alveg eins, þótt hann vissi, að fyrir slíkar aðflnslur myndi hann fá óþökk eina í bili, eada vildi það æði- oft verða. í hvorttveggja hefir hann haldið upp- teknum hætli síðan hann kom til íslands. Hann hefir borið hönd fyrir höfuð Vestur- íslendinga, þegar þurft hefir, og á manna mestan þátt í, að hugarþel Austur-íslend- inga er nú mun hlýrra í garð vorn hér fyrir vestan en nokkuru sinni áður. Samt sem áður hefir hann ávalt sagt það hisp- urskuist, þegar honum hefir fundist eitt- hvað til stórra lýta í fari voru. Euda eru það hollvinirnir beztu, sem bæði kunna að dæma um kost og löst vina sinna. Sá er vinur, er til vamms segir. Hann er nú af öllum viðurkendur að: vera einn hinn ágætasti ritsnillingur þjóðar vorrar. Þótt Isafnld hafi ávalt verið ágætt blað eftir vorum hætti, birti þar þó til um mun, er Einar gjörðist meðritstjóri. Enda voru þá þeir tveir menn saman, sem flest- um mun virðast bezta ritstjórahæfileika hafa þegið með þjóð vorri. Nýtt blað var stofnað á Akureyri Norð- urland og gjörðist hann ritstjóri þess. Aldrei hafði áður hepnast að halda út blaði utan Reykjavíkur, sem eiginlega kvæði mikið að En um leið og Norður- land tók út að koma, sáu menn, að þar var blað, sem takast varð til greina og lagði ekkert síður drjúgan skerf til landsmála en helztu blöð höfuðstaðarins. Við Fjallkonunni tók hann og sýndi þar sömu rögg af sér sem ritstjóri. Glögg- ur skilningur, sanngjörn dómgreind og Ijós rökfærsla eru blaðamanns beztu hæfi- leikar. En alt þetta einkennir blaða- mensku Einars Hjörleifssonar og gjörir hann þar að atkvæðamanni. Fáir menn hafa drjúgari skerf lagt til hugsana- þroska þjóðar vorrar en hann, síðasta aldarfjórðung. Það hefir hann þá líka gjört, ekki að eins sem blaðamaður, heldur líka sem skáld. Hann er nú viðurkéndur að vera þjóðar vorrar helzta og tilkomumesta söguskáld. Enginn hefir skygnst dýpra inn í sálarlíf íslenzkrar þjóðar en hann, né heldur lýst því, er hann þar hejtr séð með jafn-veigamikilli list. Þó mun hann þar eiga eftir að sýna sitt bezta. Mun mörgum það fagnaðarefni að fá að vita, að nú hefir hann í fórum sínum lengri skáld- sögu nýsamda en hann áður hefir ritað, og mega menn eflaust eiga von á að fá að heyra eitthvað úr henni nú á ferðum hans. Óhætt mun að segja, að fáir menn væri Vestur-íslendingum meiri aufúsugestir af fósturjörðu vorri, eins og stendur, en Einar Hjörleifsson og eru þar þó margir drengir góðir. Hann er líka flestum öðr- um fjörugri ræðumaður og les upp ritað mál allra íslendinga bezt, er vér þekkjum. Erum vér þess fullviss, að þeir eiga góðar skemtistundir í vændum, sem til hans fá að heyra. Óska Breiðablik gestinn hjartanlega vel kominn!

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.