Breiðablik - 01.07.1907, Síða 15

Breiðablik - 01.07.1907, Síða 15
BREIÐABLIK. 3i líýsna vingjarnlegfa út. AS eins, enga Ttrekki. Eg hefi engin orS, áður eg hleypi af. “ Eg sýndi þeim skammbyssu mína. Mig grunaði, að Steinmeyer myndi jafn- vel voga sér inn í reimleikabæli, til að verða ekki af með veðféð. White og eg gengum upp að hurðinni. ’Gömlu tröppurnar upp að svölunum svignuðu undir fæti. Það urgaði í lásn- um og hurðinni var ekki unt að bifa yfir þröskuldinn. í bili hélt eg við myndum verða að gefast upp, og gott rúm í gistihúsi gægð- ist fram í hugann og gjörði mig nærri -ölvaðan. En loks gaf hurðin eftir með draugalegu marr-hljóði. Eg kveikti á kerti og gekk inr í húsið. ,,Góða nótt, Douglas. Sofðu vel!“ ,,Láttu þig nú dreyma vel, karlinn !“ ,,Skjóttu í þá heimspekinni þinni, ef þeir fara að láta illa ! Gute Nacht! Það heyrði eg síðast, áður en 2g rak gömlu, gigtvciku hurðina í lás. III. Loftið var þungt og myglulegt. Marg- ar hurðir í löngum gangi voru læstar, og húnarnir litu hornauga til mín. Eg gengdi þeim fyrirskipunum, sem eg hafði fengið, gekk upp þrönga stigann og inn í fram-svefnherbergið. Það var enn þá myglulegra. Gömlu gluggatjöldin og slitni gólfdúkurinn höfðu ekki verið viðruð til margra ára. Drag- kistu-skúffurnar stóðu opnar. Ábreiðunni á litla járnrúminu var flett ofan af til hálfs, eins og siðasti næturgestur hefði horfið þaðan í flaustri. Saggi var innan á veggj- unum og vatns-rákir og á gólfdúknum var þykk myglu-skán í einu horni. Eg gekk að glugga og lyfti upp, þó hrörlegur væri. Langt niðri á gangstétt- inni, sem stundi álengdar, heyrði eg fóta- tak hinna fjögra manna, sem nú flýttu sér til hvíldar, og hlógu dátt á ganginum. Ljóskerið dinglaði og skaut frá sér löng- um glampa og vingjarnlegum, sem myrkrið innan skamms slökti eins og fjarlægðin smám saman þaggaði niður skóhljóð vina minna. Það var kalt og hrollsamt við glugg- ann, og eg sneri mér aftur inn í her- bergið, sem mér bauð við. Barnssæng stóð á hurðarbaki. Það kom ósjálfrátt hrollur í mig, þegar eg sá hana. Eg tók ábreiðurnar og hristi þær, af- klæddi mig í flýti, vafði þeim utan um mig, lét eldspýtur og skammbyssu á stól- inn rétt hjá rúminu, og slökti ljósið eftir nokkura umhugsan. Eg gat ekki einu sinni séð gluggann. Það var dimt eins og dauðinn í herberginu, Vitaskuld var það ekki myrkrið, sem varnaði mér svefns. Rúmið var mikils til of stutt og eg fann hvernig fjaðrirnar flúruðu hringi á hrygginn á mér. Húsið var heldur ekki að öðru leyti sérlega vel Iagað til værðar. Rósaviður- inn urgaði og klóraði í þilið úti fyrir glugganum. Smám saman heyrðust skruðningar og tíst úr rottum milli þils og veggjar og við og við heyrðist mér hurð eða eitthvað annað marra drauga- lega bak við 'húsið, eins og æpt væri af sársauka. En undir þessar voveiflegu raddir var leikið af læknum í gilinu fyrir neðan, sem eilíflega suðaði við sama tón. Eg taldi sauðfé rækilega heila klukku- stund, horfði á stjörnur, sem voru að hverfa og reyndi loks að rifja upp rök- fræðis-stigin á „Gagnrýni hreinnar skyn- semi“ eftir Kant. Við það seig mér í brjóst. IV. Eg get ekki hafa verið búinn að sofa lengi, þegar eg vaknaði snögglega með þá ógurlegu tilfinning, að eitthvað væri þarna nærri mér. Til allrar furðu var nú bjart í herberg- inu. Eg sá nú glögt móta tyrir gluggum. Kynjalætin bak við húsið voru hærri og hræðilegri. Op eins og barnshljóð bárust

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.