Breiðablik - 01.07.1907, Side 16

Breiðablik - 01.07.1907, Side 16
32 BREIÐABLIK upp til mín; vein eins og stunur konu, sem verið er eð kvrkja. Eg- lá þarna, kraminn heljartökum óskaplegs ótta, eins og væri eg í skrúf- stykki. Þá sá eg við fótagaflinn eins og í hálf- þoku mann — lágan, en gildvaxinn, Herðarnar miklar, handleggirnir langir og dýrslegir. Og þarna við járnslána í sjálfu rúminu sá eg risa-hendur, geisi- mikla manns-hramma, með stuttum fingr- um, stórum hnúum, hnýttum og snúnum. Hendur glæpamanns, sem kyrkir, og allrafremst kolsvartar neglur og dýrs- legar. Hálsæðarnar slógu ákaft. Mér fanst eg þegar finna þessa fingur kreista úr mér síðustu lífstóruna. Þá kom mér skammbyssan í hug og sú hugsan var eins og lífið deyjandi manni. En hún var langt frá mér á stólnum til hægri handar og eg lá flatur á hryggnum í miðju rúmi. Hann stóð þarna og beið eftir mér; — ef eg hreyfði mig, vissi eg fyrir víst, að þessum ægilegu höndum myndi gripið fyrir kverkar mér. Eg varð að víkja mér við, án þess hann sæi. Fæt- urnir skyldi vera grafkyrrir eins og væri þeir orðnir að steini. Andann lézt eg draga reglulega. Eg reyndi að snúa mér, en vöðvarnir vildu ekki hlýða. Það var eins og eg hefði fengið slag. Eg reyndi aftur og aftur; að síðustu fekk eg hreyft fingurna undir ábreiðunni; svo fór eg að geta snúið mér á hlið. Áreynslan við að snúa mér án þess því væri veitt eftirtekt var óumræðileg. Stórir svitadropar ultu niður af enni mér, þó kuldahrollur væri í mér fyrst, er eg vakn- aði. Það hlýtur að hafa verið meir en klukkustund. Mér fundust það heilir dagar, sem eg var að reyna að snúa upp á mig og snúa mér þó ekki; að hreyfast og vera þó hreyfingarlaus. Og stöðugt stóð hann þarna eins og búinn til stökks — og til að grípa mér fyrir kverkar. Tvisvar sá eg hann í myrkrinu teygja sig áfram eins og til að ná í mig. Enn þá seildist eg eftir hjálpræði skammbyss- unnar. Loks kom eg með nöglinni við hlaupið. Og aldrei hefir mannlegt hold orðið fegn- ara köldu stáli. Fáeitium augnablikum síðar náði eg eldspýtu með vinstri hendi. Augnablikið var runnið upp. Skelfingin sjálf gerði mig hugrakkan. Með einu og sömu snöggu hreyfing- unni kveikti eg á eldspýtunni, sveiflaði skammbyssunni að vinstra brjósti hans og hleypti af. Við bláa Ijósið, sem snarkaði á eldspýt- unni, sá eg líkama glæpamannsins riða, sveiflast til ýmsra hliða og að síðustu leysast upp eins og reykjarmökk og skríða inn í fellingar gluggatjaldarina. En hendurnar með stóru hnúunum voru þarna við rúmgaflinn beint fram undan mér, — hræðilegur, nakinn veruleiki úr holdi og blóði. Það voru fæturnir á mér. LESENDUR „BREIÐABLIKA" eru beðnir að afsaka tvent: Fyrst, að prófarka- Jestur er ekki eins vandaður og skyldi ájúníblað- inu af því ritstj. varð að fara úr bænum meðan á prentan stóð. Þar næst, að fyrir vangá í prentsmiðjunni kemur ekki niðurlagið af ritgjörð G. Guttormssonar fyr en í næsta blaði. En æti- ast er til það komi út snemma í næsta mánuði. BREIDABLIK. Mánaðarrit til stuðnings íslenzkri menning. Fridrik J. Bergmann, ritstjóri. Heimili 259 Spence Strreet, Winnipeg. Telephone 6345. Ólafur S Thokgeirsson, útgefandi. Heimili og afgreiðslustofa blaðs- ins 678 Sherbrooke Str., Winnipeg, Canada. Telephone 4342. Verð : Hver árg. 1 doll. Hvert eintak 10 cts. — Borgist fyrirfram. Prentsmidja Ólafs S. Tiiorgeirssonar

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.