Frækorn - 15.08.1902, Side 3

Frækorn - 15.08.1902, Side 3
FRÆKORN. 9i tímann ; en þeir eru bragðvondir og skemmast fljótt. Vísindi og listir eru uppspretta alls böls, sem þjáir mannkynið. Það stend- urí í vegi fyrir að einstaklingurinn geti orðið það, sem hann er ákvarðaður til af náttúrunni. Hann getur ekki hlýtt röddu samvizkunnar, því hann verður að fylgja landssiðnum. Vísindin og listirnar hafa drepið frelsistilfinninguna og spillt lunderni þjóðarinnar, þau eru af illum rótum runnin, svifta þjóðina siðferðisleg- um krafti og kenna mönnum að sýnast, því stjórnfræðin er sprottin af vantrú, mælskulistin af hégómagirnd og hatri, eðlisfræðin af nýungagirni, jarðmálsfræð- in af ágirnd, og siðfræðin af drambi. Kenníð börnunum að beita skilningar- vitunum og afla sér þekkingar með því að skoða hlutina sjálfa. Burt með allar skýringar og orðalengingar; það tollir fátt í þeim af því. Það verður að kenna börnunum, hvað það er mikilsvert að starfa. Þá skuld á þjóðfélagið af hverjum manni að heimta, að hann vinni. Iðjuleysinginn, hvort sem hann er ríkur eða fátækur, stelur frá þjóðfélaginu. Handvinna er ágætust af allri vinnu; hún gerir itienn sjálfstæðasta. Því ætti hver drengur að nema einhverja handiðn. »Utanaðkunnátta tóm er einskis nýt.« »Ef guð er til, þá er hann réttlátur, og ef hann er réttlátur, þá er sál mín ódauð- leg.« Þeir, menn, sem féllust á uppeldis- skoðanir Rosseaus voru nefndir mann- vinil, eða nefndu sig það sjálfir, og lögðu mest kapp á, að efla heilbrigða skyn- semi. Þeir voru skynsemistrúarmenn. Uppeldið var ekki kristilegt uppeldi, eins og hjá Francke. Það var ekki trúin á guð né elskan til guðs, sem réði upp- eldisstarfi þeirra. Það var aðeins trúin á það, að maðurinn væri af náttúrunni góður, væri sjálfur guð, og tilhneiging- ar hans ættu alltaf að ráða, því hann hefði enga tilhneigingu til ills.. Kærleik- ur mannanna var í því fólginn, að auka þægindi hins tímanlega lífs. Takmark uppeldisins var jarðnesk sæla. Þeir voru ekki bundnir við nein sérstök trúarbrögð. Skólar þeirra voru stofnaðir handamönn- um af öllum trúarbrögðum. Trúarbrögð- in voru: samvizkan. Hún er leiðtogi mannsins til dyggðar og réttlætis og sker áreiðanlega úr því, hvað rétt er eða rangt. Hún er guðdómlegur inn- blástur. Einu sinni var tilrætt um þessi almennu trúarbrögð. Þá bar þar að mann, sem bað um fugl. »Hvers konar fugl á það að vera, spurðu hinir.« Það á hvorki að vera örn né hrafn, né spói, heldur almennur fugl«, sagði hann. I skólunum hafði frá fornu fari verið lögð rækt við einn hæfileika sálarinnar, minnið. Því var fengin ósköpin öll til geymslu, svo það bar aðra sálarkrafta ofurliða, þeir gátu ekki notið sín. Rosseau og menn hans hefja skynsem- ina eða skilningi/tn til öndvegis. Og þetta var f/amför. En af því þeir gættu ekki þess, hvað býr innst í eðli manns- ins, sem er kœrleikurinn til guðs, allt það, sem á til hjartans rót sína að rekja, þá varð skynsemin að átrúnaðargoði þeirra. Hún var þeim vegurinn til lífs- ins. En kristindómurinn kennir: »En gættu hjarta þíns um fram allt, því þar eru lífsins upptök.« Þvf trúðu þeir ekki. Rosseau og menn hans ieiðréttu margt og breyttu til bóta; en af því þeir mis- skildu kristindóminn, þá fóru þeir svo langt afvega, að skólar þeirra eru nú undir lok liðnir. 'e) (sí' Smáveg'is um biblíu- kritíkina . (Úr rítgjörð í Kristjaníu-blaðinu „Luthersk Kir- ketidende" frá 8. Marz siðastl. eftir Karl Vold, guðfræðiskandidat. „Sam." Juni '02) Spurningunni um það, hvort biblíu- »kritík« skuli vera til, hljótum vér að ætlan minni að svara játandi. Það má beita »kritík« við biblíuna, en þó því að eins, að það sé gjört með rósemi og gætni, en alls ekki með æstum tilfinning- um og hlutdrægni. Þeir, sem eiga við slikar vísindalegar rannsóknir, verða að

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.