Frækorn - 04.12.1903, Side 4

Frækorn - 04.12.1903, Side 4
156 FRÆKORN. muntu þá komast á hinn þrönga veginn, sem leiðir til guðs dýrðar. En ef þú, kæri lesari, ert guðs barn, þá lát ljós þitt lýsa skært, og fyrirverð þig ekki að játa Jesúm sem frelsara þinn. Lifðu svo daglega, að aðrir fái séð, að þú fer hinn þrönga veginn, og reyndu með eftirdæmi að fá aðra til að kannast við Jesúm, sem hefur frelsað þig. Og að endingu skaltu, kæri lesari, prófa þig vel. Hjörtu vor eru svikul, satan vill draga þig á tálar, og í hinum svo nefndu kristnu löndum eru það hans mestu svikráð að fá oss til að vera einungis útvortis kristnir, sem játa Jesúm með vörunum, en afneita honum með ill- um athöfnum. Þessir menn munu deyja og sæta harðari hegningu en Sódóma og Gómorra, sem guð eyðilagði sakir þeirra mikla óguðleika (Matt. II, 20 — 24). Enginn getur séð guðsríki, nema hann endurfæðist (Jóh. 3, 3). Hver, sem trúir á soninn, hefur eilift líf, en hver, sem ekki trúir syninum, skal ekki sjá lífið, heldur varir guðs reiði yfir honum (Jóh. 3, 36). W. Sloan. ©'£) (2Tc> Páfadæmið 3- Sameining ríkisins og kirkiunnar. Sá, er án hleypidóma rannsakar bibl- íuna og söguna, sér skjótt, að sú grund- vailarhugsun, sem ríkis- eða þjóðkirkja byggist á, er ósamrýmanleg kenningu Krists, eins og sú hugsun .opinberlega kemur í bága við þann skiining á krist- indóminum, sem hinir fyrstu kristnu menn höfðu. Kristur sagði: »Mitt ríki er ekki af þessum heimi.« »Gefið keisaranum það, sem keisarans er, og guði það, sem guðs er.« Hann tiltók greinilega þær skyldur, sem vér eigum að rækja í borg- aralegu tiliiti, og eins þær, er aðeins koma við afstöðu vorri til guðs. Og aldrei leitaði Kristur á náðir hins verald- lega valds til þess að verja sig eða út- breiða sitt ríki. Þegar Pétur í áhuga sínum greip til sverðsins til þess að verja meistara sinn, sagði Jesús við hann: »SIiðra þú sverð þitt; þeir, ermeð vopn- um vega, munu og fyrir vopnum falla,« Trúarbragðastríð geta því ekki staðist samkvæmt orði og dæmi Krists; en þau koma vel heim við ríkiskirkju-hugmynd- ina; en hún erheiðin. Trúarbrögð heiðn- innar voru ríkisins trúarbrögð; ogþví varð »kristnitaka« margra heiðingja og þjóð- höfðingja aðeins umskifti á hinu ytra trú- arbragðalega formi, án þess, að hjart- að breyttist, og það er þó skilyrðið fyrir því að eiga rétt til þess að bera nafn sem kristinn. Hinir kristnu gengu í bandalag við heiminn; kristindómurinn var skoðaður mikið til sem pólitískt málefni, og á þann hátt myndaðist hin almenna eða kaþólska kirkja, sem sýnir sig í fullkomnun sinni í páfadæminu. Svo lengi sem séð er fyrir því, að vatn þrengi sér ekki inn í skipið, og það getur haldið leið sína gegn um hættuna, er allt vel; en þegar vatnið fer að þrengja sér inn í skipið, er háski fyrir hendi; það getur orðið eyðilegging skipsins. Kirkja Jesú Krists á að vera í heiminum, um- kringd af synd og spillingu, en hún á að halda sér ósaurgaðri af heiminum. Það er þess vegna óeðlilegt og í mesta máta háskalegt, þegar heimurinn kemur inn í kirkjunaog hún treystir sér til að geta tekið heiminn sér í faðm. Einn af fornkirkj- unnar miklu mönnum, Ágústínus, segir um þetta: »Hve margir eru þeir ekki, sem leita Jesú að eins til þess að ávinna sér tím- anleg gæði! Einn er í málaþrasi og leit- ar til prestsins til þess að fá hjálp. Annar er í kröggum og neyð og leitar til kirkj- unnar. Sá þriðji óskar meðmæla hjá einhverjum, sem hann ekki sjálfur má sín mikils hjá. Einn á einn hátt, annar á annan; daglega fyllist kirkjan af slíkum. Að eins sjaldan leita menn Jesú sakir sjálfra sín.« »Sá, sem áður berlega kom fram sem heiðingi, læzt nú vera kristinn og heldur áfram að syndga undir yfir- skyni trúarinnar.« — »þannig sá maður embættismenn, sem höfðu látið skírast á tíma Konstantínusar, aftur taka heiðna

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.