Alþýðublaðið - 04.05.1963, Blaðsíða 7
-SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI-
Skoti nokkur fór á veðreiðar og
veðjaði einu pundi á hest, sem
vann t>g fór hann að veðreiðunum
loknum til veðmálasalans til að
heimta þá peninga, sem hann
hafði unnið í eins pundsseðlum.
Skotinn skoðaði hvern einasta seð
il vel og vandlega.
— Ertu hræddur um, að ég sé
að láta þig hafa falsaða seðla?
spurði veðmálasalinn.
— Nei, svaraði Skotinn, ég er
bara að ganga úr skugga um að
þú látið mig ekki hafa, þann sem
ég lét þig hafa.
— Ég sagði konunni minni, að
ég mundi skjóta hvérn einasta
mann, sem vogaði sér að daðra við
hana í sumarfríinu.
— Hvað sagði hún við því?
— Hún ráðlagði mér að fá mér
vélbyssu.
Hún má ekki kíkjaj
Mac-. Hvernig líkar þér við nýja
útvarpið þitt?
Donald: Otvarpið er alveg prýði-
legt, en það er skrambi erfitt að
lesa við Ijósið frá því.
★
Frúin: Hvers konar manneskja er
hún frú Robinson?
Eiginmaðurinn: Hún er ein af
þeim, sem kalla servietturnar
munnþurkur.
Frúim Já, en ég kalla til dæmis
sérvíetturnar alltaf munnþurrkur.
Eiginmaðurinn: Þá veiztu alveg
eins og ég hvers konar manneskja
hún er.
ÍT
Kennarinn: Hvar var Nelson drep
inn?"
Nemandinn: Á Trafalgar torgi.
Kennarinn: Það þykir mér skrýt-
ið. Wellington hefur þá líklega ver
ið drepinn á Waterloo járnbrautar-
stöðinni?
Nemandinn: Nei, herra kennari,
svaraði nemandinn, það var Napole
on, sem var drepinn þar.
★
Spákonan: Viljið þér fá að vita
eitthvað um tilvonandi eiginmann
yðar?
Konan: Nei, en ég vil fá að vita
fortíð núverandi eiginmanns míns
svo ég geti notað það á hann í
frmtíðinni.
★
Bóndinn: Bankinn hefur sent
mér þessa ávísun til baka.
Frúin: Það var svei mér fínt.
Hvað eigum við að kaupa fyrir
hana næst?
Laugardagur 4. maí
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónl. —
8.30 Eréttir. — 8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfr.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 Óskarlög sjúklinga (Ragnheiður Ásta Pétursdóttir).
14.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins.
15.00 Fréttir. — Laugardagslögin. — (16.30 Veðurfregnir).
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Axel Guðmundsson fulltrúi vel-
ur sér hljómlpötur.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börnin f Fögruhlíð" eftir Halvor
Floden; XIV. — sögulög (Sigurður Gunnarsson).
18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson).
19.00 Tilkynningar — 19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 „Stjörnublik“: Magnús Bjarnfreðsson kynnir nýja plötu sem
heimsfrægir listamenn hafa gefið til styrktar Alþjóða Flótta-
mannahjálpinni.
20.45 Leikrit: ^Veizlan á Grund“ eftir Jón Trausta. Búið til flutnings
í útvarp af Valdimar Lárussyni. Leikstjóri: Helgi Skúlason.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
f KVÖLD verSur flutt í útvarpinu leikritið „Veizlan á Grund“, eftir Jón Trausta. Valdemar Lárusson
hefur búið leikinn til flutnings í útvarp. Leikstjóri er Helgi Skúlason. Hár birtum við mynd af þeim
Rúrik Haraldssyni og GuSbjörgu Þorbjarnardóttur. Myndin er tekin við æfingu á leikritinu í húsakynn-
um útvarpsins.
Ókeypis
varalitir
BANDARÍSKT fegrunarlyf ja
fyrirtæki auglýsti fyrir skömmu
að útibú þess í bænum Manchest
er í New Hampshire, mundi gefa
öllum konum, sem þangað kæmu
ákveðinn dag, varaliti að verð-
mæti þrjá og hálfan dal.
Strax að morgni hins ákveðna
dags var stór biðröð fyrir utan
dyr verzlunarinnar og allan dag-
inn var stöðug ös, enda notuðu
flestar konur í bænum sér þetta
einstæða tækifæri.
Þessi kosta auglýsing hafði mis
ritazt í blaðinu, en þar átti að
standa, að konur, sem keyptu vör
ur fyrir minnst tíu dali fengju
varlitinn í kaupbæti.
Forstöðumaður verzlunarinnhr,
Iét mistökin þó ekki á sig fá, held
ur gaf hverri einustu konu, sem
inn í verzlunina kom varalit, án
þess að þær. þyrftu nokkurn skap
aðan hlut að kaupa.
Á þessum eina degi voru afhent
ir 15 þúsund varalitir að verð-
mæti 2,2 milljónir íslenzkra króna.
Dómsmálaróðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því fyrir skömmu.
að árið 1962 hefðu 47 glæpamenn
verið teknir af lífi í Bandaríkjun-
um. I fimmtán tiifellum voru gas-
klefar notaðir, í 29 tilfellum raf-
magnsstólar og þrír glæpamenn
voru hengdir. 41 maður var tekinn
af lífi fyrir morð, f jórir fyrir nauðg
ani, einn fyrir árás, og einn fyrir
rán og ofbeldi. Aðeins ein kona
var tekin af lífi á árinu, það var
gert í Californíu.
FLUGFREYJURNAR VIUA
EKKI HÆITA 32 ÁRA
Hvað verður allt í einu að okkur
að finna, þegar við erum orðnar
32 ára?, spurði bandaríska flug-
freyjan Norma Pugh á blaða-
mannafundi í New York fyrir
skömmu. Spurningu þessa bar lmn
fram vegna þess að nú hefur risið
upp deila um það milli stéttarfélags
flugfreyjanna og flugfélaganna
hvort flugfreyjur skuli hætta, cr
þær ná 32 ára aldri, og taka þá við
einhverjum öðrum störfum á jörðu
niðri hjá viðkomandi flugfélagi.
Fulltrúar flugfélaganna halda
þvf fram, að aSlar flugfreyjur,
sem ráðnar hafa verið eftir 1953,
verði að hætta 32 ára gamar.
Kúrekaklæði
frá Póllandi
Dagblað nokkurt í Chicago skýrði
nýlcga frá því, að næstum allir
kúrekabúningar, sem scldir væru
í verzlunum í Bandaríkjunum væru
framleiddir í Póllandi. Fyrirtæki
rekin af pólska ríkinu framleiða
allt, sem börnin þurfa til þess
að geta Ieikið kúrcka. Kúrckaklæð-
I in eru síðan seld til Bandaríkjanna
I fyrir 60% lægra verð en framleið-
I endur í Bandaríkjunum treysta sér
I til að framleiða fyrir.
Þetta atriði er það sem styrrim*
stendur heizt um í samningavið-
ræðum, sem nú standa yfir millÞ
flugfreyjanna og flugfélaganna unk-
nýja kjarasamninga. Hvérs vegna-
mega flugfreyjurnar ekki starf*
lengur en fram til 32 ára aldurs?
— Þetta er aðeins starf fyrir
ungar konur, segir einn talsmaður
flugfélaganna. Ákvæði um þessÞ
aldurstakmörk hafa verið í samn-
ingum í tíu ár, og okkur finnsft-
sjálfsagt, að þessi ákvæði verðÞ
látin halda sér. Eftir 8-9 ár í flug-
freyjustarfi er mesta nýjabrumið
farið af starfinu, og auk þess ertt.
þá yfirleitt ekki möguleikar á að
hækka meira í tign. En hins vegar
séu oft ágætir framamöguleikar %
öðrum störfum, sem félögin haffc
upp á að bjóða, segja fulltrúar
flugfélaganna.
Flugfreyjurnar, sem eru að nálg-
jast aldurstakmarjkið láta^ ekkfc
sannfærast af þessum rökscmdum.
og halda fast við það, að klausan
um mörkin verði numin úr gildi.
— Reynsla ætti þó að vera ein-
hvers virði, segir ein flugfreyjan,.
sem verður að hætta eftir rum*.
ár, ef þessu fæst ekki breytt.
HLJÓMSVEITARSTJÓRINN Joo.
Loss fékk nýlega „gullplötu“ »
Ástralíu í tilefni þess að ein millj-
ón cintaka hafði selzt af plötunnfc
„Begin the Beguine“, sem hljóm-
sveit lians lék inn á árið 1929.
HIN SleAN
AU>ÝÐ^LA0IÐ — 4. maí 1963 J