Alþýðublaðið - 11.01.1964, Blaðsíða 1
i
r
;•••
■
SS5:í
Ililliit
. ý
t*ESSí mynd er af ráðhúsinu
við’ Tjörnina. Mynd af líkan-
inu hefur verið felld inn í
núverandi umhverfi. Bæði
Búnaðarfélagshúsið og Iðnó
munu hverfa, en að öðru
Ieyti eru hlutföllin mjög-
eðlileg. Húsið mun vissulega
setja mikinn svip á umhverf-
FRAMIOG FYLKIR
BOÐA VERKFALL
Reykjavík 10. jan. — ÁG
Bifreiðastjórafélagið Frami í
Reykjavík og Bifreiðastjórafélag-
ið Fylkir í Keflavík hafa boðað
vinnustöðvun frá og með 17. þ.m.
hafi samningar ekki náðst fyrir
þann tíma. Málinu hefur verið vís
að til sáttasemjara, og hefur hann
haldið einn árangursíausan fund
með deiluaðilum.
Verkfallsboðun þessi naör þó aff
cins til bifreiðastjóra á sérleyf-
isleiffum. Ef til verkfalls kemur,
munu leggjast niður allir fólks-
flutningar á leiðunum, og þ.á.m.
til Hafnarfjarðar og Keflavíkur.
Reykjavík, 10. jan. - HP
BORGARYFIRVÖLDIN í Reykja-
vík boðuðu til blaðamannafundar
síðdegis í dag í tilcfni af því, að
ráðhúsnefnd hefur nú sent borgar-
ráði og borgarstjórn tillöguupp-
drætti að ráðhúsi Reykjavíkur. —
Greidd voru atkvæði am tillögurn-
ar á borgarráðsfundi í dag. Féllst
borgarráð einróma á þær og vís-
aði 'málinu til borgarstjörnar, þar
sem það verður væntantega tekið
fyrir á fundi nk. fimmtudag. Á
morgun hefst í Hagaskóla aum sýn-
ing á uppdráttuin og teikningum
og auk þess líkani af ráðhúsinu og
umhverfi þess, sein opin verður
almenningi frá kl. 14-22 á morgun
og sunnudag, en frá 17 -22 aðra
daga fram á fimmtudag. Gert er
ráð fyrir, að húsið verði byggt á
4-6 ármn, ef vel gengur, og kostn-
aður við byggingu þess var á síð-
astliðnu ári áætlaður um 120
milljónir króna, ep í þeirri áætl-
un var þó tekið tillit til fasteigna-
kaupa í sambandi við bygginguna.
Fundinn sátu borgarráð, ráðhús-
nefnd, arkitektar og nökkrir starfs-
menn Reykjavíkurbbrgar auk
blaðam. Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri, opnaði sýninguna og
skýrði við það tækifæri frá ýmsu,
sem sagt er hér að framan. Sagði
hann, að yfirvöldum Reykjavíkur
hefði lengi verið legið á hálsi fyr-
ir að borgin ætti ekkert ráðhús.
Önnur verkefni hefðu til þessa ver
ið talin meira aðkallándi, svo sem
bygging borgarsjúkrahúss og út-
rýming herskála, en nú þegar þeim
framkvæmdum væri vel á veg kom
ið, væri eðlilegt, að ráðizt yrði í
ráðhúsbyggingu, því að henni yrði
ekki endalaust skotið á frest. Sagði
hann, að starfsemi borgarinnar og
stofnana hennar væri nú óþægi-
lega deyfð, en úr því ætti ráðhús
að bæta, auk þess sem borgarbúar
ættu að geta komið þar saman dag-
lega og notið umhverfis og útsýn-
is. Flutti hann öllum þakkir, sem
að ráðhúsmálinu hefðu unnið. þá
tók til máls formaður ráðhúsnefnd-
ar, Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráöherra. Rakti hann sögu ráðhúss-
málsins frá upphafi. Elzta bókun
um ráðhús er frá 1919. Þá sam-
þykktu borgaryfirvöldin að leita
eftir leyfi hjá stjórnarráði íslands
til að byggja ráðhús í grennd við
Kalkofnsveg undir Arnarhóli. Það
fékkst ekki, en málið var oft rætt
síðan, og urðu miklar deilur um
staðsetningu þess, og 1950 höfðu
komið fram 16 tillögur um, hvar
húsið skyldi rísa. 1955 var því loks
ákveðinn staður og kosin fimm
Framh. á 11. síðu.
BALBOA, WASHINGTON og"
NEW YORK 10.1 (NTB-Reuter).
Blóðugr átök Panamamanna og
bandariski'a hersveita héldu áfram
í dag á mörkum Panamaskurð-
svæðisins og í kvöld munu 20
menn hafa beðið bana og 250
særzt. S
Óstaðfestar fréttir herma, að
óður mannfjöldi hafi tekið tvo
Bandaríkjamenn af lífi án dóms
og laga í norðurhluta laridsins.
Starfsmenn bandaríslca sendiráðs
ins hafa verið fluttir burtu, þar
eð her Panama skýrði frá þvi, að
hann gæti ekki ábyrgzt lengur
líf og öryggi sendiráðsstarfsmanna
eða bandarískra borgara í borg-
inni. Opinberir aðilar í Washing
toh segjast ekki hafa heyrt um
þetta. j
Jafnframt því sem til nýrra ó-
eirða kom í Panama City ög bæn
um Colon við austurenda skurð-
svæðisins kom ráð Bandalags
Ameríkuríkja (OAS) saman kl.
20.00 eftir ísl. tíma, að ræða hið
alvarlega ástand. Það er Pnnama
sem hefur kært fyrir ráðinu.
Kæran er á þá lund, að Banda
ríkin hafi gerzt sek um ögraða
árás á Panama.
Fyrr um daginn ræddi John-
son forseti við Roberto Chiari,
forseta Panama, í síma. Forset-
arnir voru á einu máli um, að
binda yrði enda á óeirðirnar á
skurðsvæðinu.
Samkvæmt bandarískum út-
varpsfregnum hefur Chiari for-
seti skorað á bandarísku hermenn
ina að liætta skothríðinni. Hann
játaði, að Panamamenn kynnu að
eiga nokki-a sök á óeirðunum, en
bandaríski herinn bæri aðalsök-
ina.
1 New York eríþað haft eftir
sendinefnd Bandaríkjanna hjá Sþ
að Bandaríkin væru fús til að
ræða Panama-ástandið í Öryggis
ráðinu þegar OAS hefði fjallað
um málið. Panama hefur hins veg-
Framh. á 5. s;ðu
Jón Þ. Ólafsson há-
stökkvari var í gær
kjörinn íþróttamaður
ársins 1963. Sjá nánar
á íþróttasíðunni. —
(Teikn.: Ragnar Lár.)