Alþýðublaðið - 11.01.1964, Blaðsíða 9
V
BALDVIN HALLDORSSON
adag frumsýnir Þjóðieik-
■ eftir finnska rithöfund-
iýna leikendurna (sem ein
um „senurn”.
erg, texti: Ragnar Lár.
tala við okkur lengur, æfingin á
að hefjast á ný, næsti þáttur í
þessu sérkennilega leikriti, sem
frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu
næstkomandi fimmtudag.
Aðalhlutverki í „Læðunum"
leika Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
(sem leikur verkstjórann), Helga
Valtýsdóttir, Kristbjörg Kjeld og
Nína Sveinsdóttir, en alls eru hlut
verkin ellefu og eingöngu kven-
hlutverk, eins og fyrr er sagt.
Alþýðublaðið sagði stuttlega frá
höfundinum, fyrir skömmu:
„Walentin Chorell er talinn
fremstur allra finnskra leikrita-
höfunda í dag. Hann er fæddur
árið 1912, verkamannssonur og
ólst upp í Ábo, en fluttist síðan til
Helsingfors, þar sem hann tók
stúdentspróf og síðan magisters-
próf árið Í934.
Hann vakfi fyrst athygli á sér
sem ljóðaskáld en sneri brátt baki
við þeirri grein bókmennta og hóf
að skrifa skáldsögur og síðan leik-
rit. Hann er mjög afkastamikill
leikrita|höfundur, líefur þegar
skrifað yfir fimmtíu útvarps og
sjónleiki sem víða hafa verið flutt
ir og leiknir utan Finnlands. Sá
sjónleikur sem fyrst aflaði honum
frægðar var, „Fabian opnar hlið-
in,‘ ‘en hann var fluttur hér í út-
varpinu fyrir skömmu. í norrænu
leikritasamkeppninni 1955 hlaut
Chorell fyrstu verðlahn fyrir leík
ritið „Systurnar“.
Þótt Chorell skrifi á sænsku,
hafa flest leikrit hans verið frum-
flutt á finnsku, einkum í Þjóð-
leikhúsinu og Alþýðuleikhúsinu í
Helsingfors. X hinu síðarnefnda
var leikritið „Læðurnar“ frum-
sýnt vorið 1961 og hefur leikritið
síðan notið mikilla vinsælda víða
á Norðurlöndum“. „
—-O—
Leikurinn gerist meðal verk-
smiðjukvcnna, sem leggja trúnað
á söguburð og beita róttækum
brögðum til að bola burt einni
starfssystur sinni. Leikurinn er
mjög spennandi og hefur ekki sízt
þótt athyglisverður vegna sterkra
og fastmótaðra persónulýsinga.
Eins og fyrr segir er Baldvin
Halldórsson leikstjóri, en leik-
tjöldin málaði Gunnar Bjarnason.
Þýðandi er Vigdís Finnbogadóttir.
115 00
BYGGINGAVORUR
HVERFI5GATA 4-6
Allir velkomnir.
GARÐAR GÍSLASON H F.
/' /
MURHUÐUNARNET
/
BÚSTAÐAPRESTAKALL
Safnaðarfundur (auka aðalfundur) verður haldinn í Rétt-
arholsskóla nk. sunnudag 12. þ. m. að lokinni messu, sena
hefst kl. 2.
DAGSKRÁ:
1. Kirkjubyggingarmál.
2. Safnaðarmál.
3. Kosningar.
4. Önnur mál.
Safnaffarstjórnin.
HAFNFIRÐINGAR
JÓN HJ. JÓNSSON flytur erindi í Sjálfstæffo
ishúsinu, sunnudagskvöid 12. jan. kl. 20,30.
Efni:
Kristur — Openberun kærleikans —-
Kórsöngur — Einsöngur. — Allir velkomnir.
Horfið á ný til móðurkirkjunnar
SAMEINING KIRKJUNNAR „
HVAÐA' VERÐI KEYPT?
Svein B. Johansen talar 'nm
þetta efni í Aðventkirkjunnl,
sunnudaginn 12. jan. kl. 5 síðd.
Kirkjukórinn syngur.
Einsöngur Jón Hj. Jónsson.
Handsetjari
og
véisefjari
óskast
PRENTSMIÐJA ALÞÝÐUBLAÐSINS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 11. jan. 1964 9