Alþýðublaðið - 11.01.1964, Side 16
A ANNAÐ HUNDRAÐ MILLj.F ÚRUIVEGA- OG BRÚAGERÐ
BYGGÐAR VORU 39
BRYR ARIÐ 7963
Reykjavík 10. jau. — GG
Talsvert á annað liundrað ínilli
ónum króna var á sl. ári varið
iii lagrningar nýrra vega og brúa,
®g er l»að meira fé en áður hefur
verið lagt i slíkar framkvæmdir
á einu ári hér á landi. Alls voru
« árinu byggðar 39 brýr, þar af
0.7 smábrýr, 4-9 m. langar, og 22
Btærri brýr, 10-72 m. langar, sam
fcvæmt upplýsingum Sigurðar Jó
fttannssonar vegamálastjóra.
Fé þa'ð, sem fór til fram-
fcvæmda í vega- og brúarmálum
é. árinu 1963, Skiptist þannig:
fjárveitingar á fjárlögum og
tekjur af benzínskatti til vega-
og brúasjóðs námu um 60 millj
ónum, framlag samkvæmt fram-
kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar
na 20 milljónum, og lán, sem hið
opinbera og einstök sveitarfélög
lögðu fram, námu um 60 milljón-
um.
M*sta stárverkið í vegalagn-
ingu á árinu var að sjálfsögðu á-
framhald lagningar Reykjanes-
brautar, sem nú er orðin stein-
Steypt á 14.8 km. kafla,
Annað mesta verkið í vegar-
Sýning á banda
rískum bókum
Fjallar um list og húsagerðarlist
' Reykjavík 10. jan. — GO
Á sunnudaginn verður opnuð
f8£r í Reykjavík bókasýning á veg
wn bandarísku upplýsingaþjónust
Uinnar. Sýningin verður haldin í
fSpgasal Þjóðminjasafnsins við
Ðýingbraut. Sýndar verða um 400
tea kur mn húsagerðarlist, list og
ttienningu Bandarílsjanna, Þetta
♦r farandsýning, sem ber nafnið
•«Art Architecture, American" og
f&emur hingað frá Helsinki og fer
fséðan til Oslóar.
Sýningin verður opin á hverj
um degi frá kl. 2.00 til kl. 10.30.
Á kvöldin verða haldnir fyrirlestr
ar um ýmis efni og sýndar kvik-
myndir. Jóhann Hannesson skóla
meistari ræðir um ameríska há-
skóla, Monson blaðafulltrúi upp-
lýsingaþjónustunnar um forseta
Bandaríkjanna frá uppliafi, Ör-
lygur Sigurðsson listmálari flyt
Úr fyrirlej5tur um nj(álaralist • í
Bandaríkjunum, Hörður Bjamb-
Framhald á 5. síðu. -
lagningu á árinu var lagning veg-
ar fyrir Ólafsvíkurenni. Því verki
átti að ljúka fyrir áramót, en
tafðist vegna verkfallsins. Yerk-
inu mun þó aö öllum líkindum
ljúka í næstu viku. Spbengja
þurfti og ryðja á 1200 m. kafla í
Enninu á annað hundrað þúsund
teningsmetrum af grjóti og öðr-
um jarðvegi. Mun það verk kosta
um 12-13 milljónir króna og verð
ur Ennisvegur dýrasti þjóðvegur
á landinu. Kostar hver kílómetri
í honum 10 milljónir króna, eða
tvöfalt hærri upphæð en hver
kílóm. í hinum stein teypta vegi
til Keflavíkur. Framkvæmdir við
veginn hefur fyrirtækið Efrafall
unnið í ákvæðisvinnu. Við til-
komu vegai’ins styttist leiðin milli
Ólafsvíkur og Sands úr 75 km.
í 9 km.
Af öðrum framkvæmdum í
vegalagningu má minnast á það
að lokið var lagningu nýs vegar á
norðui’bakka Almannagjár og
byggð brú á Öxará. Er ekkert því
til fyrirstöðu að loka veginum um
Almannagjá, þó að aðkoman að
Þingvöllum verði ef til vill ekki
eins tilkomumikil eftir sem áður.
Unnið var á fjölmörgum stöðum
í öllum landsfjórðungum að
minni framkvæmdum, og liefur
það áður verið að nokkru rakið
hér í blaðinu. Einna forvitnileg-
asta framkvæmdin er við Sti’áka-
veg. Þar var lokið undirbyggingu
6 km. kafla um-Almenninga og
Músárskriður, og er þá eftir að
Framh. á 5. síðu
45. árg. — Laugardagur 11. janúar 1964 — 8. tbf.
KÆRUR FYRIR
KJARANEFND
Reykjavik 10 jan. — GG
Blaðið fékk þær upplýsingar
hjá Bandalagi sarfsmanna ríkis og
bæja, að nú væri fyrst að kom-
ast nokkur skriður á mál, er rísa
vegna ágreinings um skipan
manna í launaflokka hjá rikinu
og Kjaranefnd á að taka ákvörðun
um. Var fundur í Kjaranefnd í
dag og þá lagt fyrir hana nokkurt
magn af málum, en til þessa
jhöfðu a'ðeins tvö mál komið fyrir
nefndina.
Ákveðið mun vera í iögunum
um Kjaradóm og fleira, að samn-
inganefndir ríkisins og B.S.R.B.
skuli reyna að ná samkomulagi
um vafaatriði í sambandi við röð
Ium manna í flokka, en þeim mál-
um, sem ekki verður samkomulag
úrn, skotið til Kjaranefndar. Það
mun stafa af því, að viðræður
samninganefndanna hafa gengið
tregt undanfarið, að tiltölulega
fá mál hafa enn borizt til Kjara
dóms. Hins vegar fékk Kjara-
nefnd nokkuð úr að moða í dag.
Breytingar hafa orðið á skip-
an Kjaranefndar. Baldvin Jóns-
son hrl. hefur látið af formennsku
nefndarinnar, en við henni tekið
Páli S. Pálsson hrl. Ennfremur
hefur Þói’hallur Ásgeirsson ráðu
neytisstjóri, látið af störfum í
nefndinni sem fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, en við tekið Jón
Þorsteinsson lögfræðingur. Aðr-
ir í nefndinni eru sem áður Ragri
ar Ólafsson hrl, Ólafur Bjöms-
son prófessor og Kristján Thorla
cius, deildarstjóri, fulltrúi B.S.
R.B.
Dýr drykkur
Reykjavík 10. jan. — ÁG
Sjómaður, sem var að skemmta
sér á Veitingaliúsinu Röðli í gær
kvöldi, fékk unga stúlku til að
fara að vínstúkunni og kaupa fyi’ir >
sig áfengi. Stúlkan gerði þetta,
kom aftur með glasið og rétti sjó
manninúm afganginn af 1000 kr.
seðli, sem hann hafði fengiö henni
Þegar sjómaðurinn fór að gætá
að, fékk hann aðeins 22 kr. tii
baka. Þótti honum þetta heldur
lítið, og kom þá upp úr kafinu,
að stúlkan hafði látið kæ'rasta
sinn hafa peningana, og hann
hlaupið út með þá. Hann náðist í
nótt og viðurkenndi þjófnaðinn.
Þá var í gærkvöldi stolið pen-
ingum úr veski í Breiðfirðingabúð
Voru það um 400 kr. Þjófarnir,
sem voru tveir náðust í nótt og
viðuikenndu þeir brot sitt.
Enn meðvitundarlaus eftir slysið
Neskaupstað 10. jan. — GÁ-IIP
Milli kl. liálfþrjú og þrjú í gær
varð slys í síldarverksmiðjunni í
NeskaupstaÖ. Maður að nafni Ól-
afur Eiríksson var að hækka mjöl-
pokafæriband með sveif Bað
hann þvl Guðmund Sigmarsson,
sem með hontun var að vinna, að
hjálpa sér með þetta verk. Tók
hann á sveifinni, en hún sló hann
þá svo harkalega í annan handlegg ,
inn, að Guðmundur hnndleggs-
brotnaði við höggið. Flaug sveifin
síðan í höfuð Ólafs, sem féil á
steingólfið við höggið og höfúð-
kúpubrotnaði. Þeir voru strax flutt
ir á sjúkrahúsið í Neskaupstað.
Var þar gert að meiðslum Guð-
mundar, og var líðan hans allgóð’
í dag, en Ólafur, sem missti með-
vitxmd. þegar slysið varð, var ekkl
enn kominn til mcðvitundar síð-
degis í dag.
■MttWWtWtWMWWMIWWWWtWWWtWWWWWWM!
Stjórnarkosningu í Sjómanna-
félaginu lýkur á sunnudag
STJORNARKJORI I Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur Iýk-
ur á sunnudagskvöld klukk-
an 10, og verða þá atkvæði tal
in. Kosið verður í dag, laugar
dag í skrifstofu félagsins í
Alþýðuhúsinu frá klukkan 10-
12 fyrir hádegi og kl. 2-8 eft-
ir hádegi. Á sunnudag verð-
ur kosið frá klukkan 2 til 10.
Félagsmenn! Á undanförn-
um árum hafa kommúnistar
sótt eftir völdum innan félags
ins af miklu ofurkappi, en
þeim verið veitt lítil áheyrn.
í baráttu sinni hafa þeir ó-
spart notað stór orð um ráða-
menn félagsins, en þau aldr-
ei hitt mark. Nú ættu félags-
menn því að slá skjaldborg
um núverandi stjórn, og sýna
kommúnistum enn einu sinni,
að. þeirrá vinnubrögð eru ekki
liðin meðal iýðræðissinna.
Fjölmennið þvl á kjörstað og
kjósið’ A-listann, lista stjórn-
ar og trúnaðarmannaráðs.
IWMMWWWWMiWWWWMWWWtWWWWtMWWWMWWW