Alþýðublaðið - 01.04.1964, Page 16
Stofnuöuamerískt
þjóðvarnarfélag
Keflavík, 31. marz - ÍS - US
LAUGAKDAGINN fyrir páska
var stofnaS á Keflavíkurflugvelli
Amerískt þjóðvarnarfélag eða
..Society for the Preservation of
American Culture”, og voru stofn
■endur 61 varnarliðsmaður. Er til-
gangur félagsins að vernda unga
og óharðnaða Ameríkumenn, sem
liér dveljast gegn of miklum ís-
lenzkum áhrifum. Formaður fé-
lagsins er Lt. Cmdr. T. Jefferson,
en hann var kvikmyndahúseigandi
og menningarfrömuður í Texas,
áður en hann gekk í flotann.
Hið nýstofnaða félag gerði harð-
orða samþykkt á fyrsta fundi sín-
• um, og mun félagið senda kröfur
sínar til Mac Namara, landvarna-
ráðherra Bandaríkjanna. Aðalkröf
urnar eru þessar:
1) Að gerðar verði ráðstaf-
anir til að sendingar Ríkisútvarps-
ins heyrist ekki á Keflavikurvelli.
2) Að settir verði tvöfaldir
lásar á alla peningakassa á flugvell
inum, sem íslendingar koma ná-
lægt.
3) Að gerðar verði ráðstaf-
anir til að halda amerískri tungu
hreinni á Keflavíkurvelli og
bjarga henni frá íslenzkum áhrif-
um.
Alþýðuhlaðið hefur átt viðtal við
ritara félagsins, Pfc. E. Heming-
Framh. á 5. síðu
RÆÐIR VARNIR Á
N-ATLANTSHAFI
14
Reykjavík, 31. marz - ÁG
ADMIRAL H. P. Smith, flotafor-
íngi Atlantshafsbandalagsins kom
til Keflavíkurflugvallar um klukk
an 10 í morgun. Á móti honum
íóku yfirmaður varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli P. D. Buie,
ambassador Bandaríkjanna hér á
landi James Penfield og Hörður
Helgason, formaður varnarmála-
inefndar. Er flotaforinginn steig út
úr vél sinni lieilsuðu honuin sveit-
’lr úr landgönguliði flotans og
lúðrasveit lék. Þá stóðu íslenzkh-
'tögregluþjónar heiðursvörð við
: tjndganginn.
Flotaforinginn kom til Reykja-
víkur í dag. Hann gekk á fund for-
seta íslands, ræddi við forsætis-
og utanríkisráðhcrra, og .seinni
hluta dags hafði Penfield ambassa-
dor móttöku í sendiráðinu. í kvöld
sat II. P. Smith veizlu utanríkis-
ráðherra í ráðherrabústaönum.
Á morgun, miðvikudag flytur
H. P. Smith erindi í hádegisverð-
arboði Varðbergs, og nefnist það
„SEA DEFENCE OF NATO”. —
Einnig mun hann svara fyrirspurn
um. Myndin er tekin á Keflavík-
urflugvelli í dag, en þar sjást þeir
ræðast við H. P. Smith og P. D.
Buie.
f’ílMMí
Myndin er af línuriti úr jarðskjálftamæli í Kaupmannahöfn, eins
og það leit út eftir jarðskjálftann í Alaska. Fínu línurnar sýna
eðlilega rituu nálarinnar, en fyrir ofan þær sést greinilega,'hví-
líkt stökk nálin liefur tekið, þegar jarðskjálftarnir urðu í Alaska."
vísindamanni þeim sem eetti
fram um það reglur árið 1935,
hvernig hún skyldi fundin.
Jarðskjálftinn í Alaska í síðustu
viku hafði Richter-iöluna 8.6.
Til samanburðar má geta þess
að Richter-tala jarðskjáltanna,
sem urðu hér á landi 28. marz
í fyrra, var 5.7. í Alaska urðu
einnig jarðskjálftar árið 1958
með töluna 8, en samsvarandi
tala í San Fransisco-jarðskjálft
unum 1903 var 8.2. Sömu tölu
hafði jarðskjálfti, sem varð í
japönsku borgunum Tokyo og
Yokohama árið 1923 og varð
100.000 manns að bana. Sterk-
asti jarðskjálftakippurinn í
Chile 1960 hafði Richter-töluna
8.4, en í jarðskjálftunum "í Aga
dir sama ár var hún 5.7 og 5.5
í Skopje í Júgóslavíu í sumar,
sem leið. Ástæðan til þess, að
tveir síðastnefndu jarðskjálft-
arnir höfðu mun alvarlegri af-
leiðingar en margir hinna, er
sú, að þeir áttu upptök sín mjög
nærri yfirborði jarðar og í ná
grenni stórborga. Talið er, að
jarðskjálftarnir í Alaska nú
séu einliverjir þeir mestu, sem
Jarðskjálftarnir í Alaska
komu fram á mælum hér
Reykjavík, 3_JL. marz - HP
Jarðskjálftinn, sem varð á
föstudaginn langa, 27. þ. m.,
kom mjög greinilega fram á
jarðskjáltamælum Veðurstof-
unnar í Reykjavík.. Samkvæmt
jarðskjálftaritunum varð mesta
heildarhreyfing jarðskorpunn-
ar hér um eða yfir 2 cm, og
var sveiflutími þeirrar hpeyf-
ingar um 18 sek.
Til samanburðar má geta
þess, að í jarðskjálftunum, sem
hér urðu 23. marz í fyrra, var
heildarhreyfingin hér í Reykja-
vik um 2 mm og sveiflutími
þeirrar hreyfingar um 1,5 sek.
í>ó aS atriði séu óljójs í
sambandi við jarðskjálfta, eins
og fleiri náttúrufyrirbæri, er
þó talið víst, að þeir verði
vegna þrýstingsins sem leys-
ist úr læðingi við röskun jarð-
laga, þannig að ef sá þrýsting-
ur verður nógu mikill, leiti
hann sér útrásar í jarðskjálfta,
og þannig slakni á þeirri sí-
felldu spemiu, er jafnan er fyr-
ir hendi í jarðskorpunni, því að
naumast líður sá dagur, að ekki
verði jarðskjálfi einhversstað-
ar á jörðinni.
Sú orka sem leysist úr læð-
ingi við jarðskjálfta, er venju-
lega mæld með tölu, sem köll-
uð er Richter-tala í höfuðið á
þekktir eru úr veraldarsög-
unni og þeir mestu á þessari
öld. Miklir jarðskjálftar urðu
í Lissabon 1755, sem talið er
að hafi jafnvel verið enn kraft-
meiri en jarðskjálftarnir í Al-
aska nú, en um það verður
ekki vitað með vissu, þar eð
naumast er hægt að tala um
jarðskjáltamæla á þeim tíma.
Mjög er það aftur á móti
mismunandi eftir stöðum, hve
styrkleiki jarðskjálfa er míkill,
en til fróðleiks má geta þess, að
reiknað mun með, að bús, sem
nú eru byggð hér á landi. þoli
7—8 stig, en þá væri sá jarð-
Frh. á 14. siðn.
Umsóknir fyrir hátt á
þriðjð hundrað millj.
Beykjavík, 31. marz - EG
Húsnæðismálastofnun rikisins
auglýsti nýlega, að þeir, sem sendu
inn lánaumsóknir eftir 1. apríl,
gætu ekki vænzt þcss að fá lán
tif húsbygginga á þessu ári.
Eggert- G. Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri stofnunarmnar sagði
í stuttu viðtali við biaðið í dag,
að nú lægju fyrir umsóknir um
lán hjá húsnæðismálastofnuninni
fyrir hátt á þriðja liundrað millj.
-króna. Auglýsingin hefði þann til-
gang einn að vara fólk við, þannig
að það leggði ekki út í bygginga-
framkvæmdir og trcysti á að fá
Húsnæðismálastjómarlán á árinu,
en Eggert sagði, að að sjá'.fsögðu
yrði tekið á móti umsóknum á-
fram þótt ekki væri hægt að veita
úrlausn á þessu ári.
Eggert sagði ennfremur, að gif-
urlegur fjöldi umsókna hefði bor-
izt á árinu 1963 og þeim tíma,
sem liðinn er af þessu. Á síðast-
hðnu ári hefði verið byrjað á
1800 íbúðum, og fyrir lægju nú
hátt á 3 þúsund umsóknir. Há-
markslán eru nú 150 þúsund kr.
Léan er
komin
Reykjavík, 31. marz - EG
í MORGUN voru fjórar
lóur á flögri í kring um í-
þróttavöllinn í Langardal
Finnur Guðmundsson, fugla
fræðingur, tjáði blaðinu, að
þess væru dæmi, að lóur sæ-
ust hér um miðjan marz, en
í venjulegu árferði kæmu
þær oftast fyrripartinn í ap-
rfl. ,
Síarsmenn íþróttavallar-
ins í Laugardal urðu fyrst
varir við lóur 5. apríl í fyrra
en 15. apríl árið þar áður.