Alþýðublaðið - 13.05.1964, Side 5

Alþýðublaðið - 13.05.1964, Side 5
Sjötugur í da g: ir Ásgeirsson forseti FORSETI ÍSLANDS, herra Ás- geir Ásgeú-sson, er sjötugur I dag. Æyi- og starfsferiii hans er sér- stæður, og vildi ég segja alveg eiasweður. Hann var forseti Al- þingis og fulltrúi þjóðar sinnar á mestu hátíðastund hennar, þá að- eins 38 ára gamall, og leysti það af hendi með slíkri prýði, að það er :í minnum haft. Hann var for- sætisráðherra á erfiðum tímum atvinnuleysis og kreppu, en einn ig það verkefni tókst honum að leysa með dugnaði og fes.u. Hann var í nærri þrjá áratugi a þingis maður, og átti þá því fylgi að fagna, að engum andstæðingi þýddi að etja kappi við hann. Þingfylgi hans er í raun og veru merkilegur vitnisburður um mann inn. Kjörfylgi hans virðiSt aldrei hafa verið flokksfylgi, heldur persónufylgi. Það var maðurinn en ekki flokkurinn, sem kosinn var, fyrst og fremst. Um það báru margar aiþingiskosningar vitni. Gáfur hans, þekkmg og hæfileik- ar til s.arfa hafa sjálfsagt ráðið hér miklu um, en þó hygg ég að persónutöfrar hans hafi ráðið úr- slitum, en þeir eru miklir, og hafa alltaf verið. Ásgeir Ásgeirsson, var kosinn forseti Islands 1952, og með alveg einstæðum hætti. Stjórnir tveggja stærsiu stjómmálaflokkanna, sem þá stóðu báoir að ríkisstjórn, á- kváðu að bjóða fram á móti hon- um, en samt sigraöi hann með yfirburðum. Enn var það persónu fylgið, maðurinn sjálfur, sem réði úrslitum. Síðan liefir hann verið sjálfkjörinn tvisvar sinnum, þar sem eng.nn bauð sig þá fram á móti hoiium. Nú, eftir 12 ára starf sem forseti íslands, á hann hug hvers manns og samúð, þannig að þar kemur enginn annar úl greina meðan hann gefur kost á sér til starfsins, og það hefir hann nú heitið að gera í fjórða sinn, þó að hann sé kominn ú þennan aldur. Er þjóðin öll áreiðanlega þakklát honum fyrir það, því að á meðan ■er friður og samhugur um þetta mesta tignarembætti landsins. Ásgeirs Ásgeirssonar verður ekki minnzt, án þess að getið sé hans ágætu konu, frú Dóru Þór- hallsdóttur, sem hefir staðið við hlið hans nú í nærri í'imm áratugi, og veiti honum ótrúlegan stuðn- ing að hvaða starfi sem hann hefir gengið. Annars þeirra hjóna verð ur'ekki getið án þess að hnt komi lun leið upp í hugann, svo tengd eru bæði nú í hugskoti íslendinga. Þau hafa verið virðulegir full- trúar íslands við móttöku er- lendra tignargesta hér, og þau hafa borið hróður landsins alls staðar þar sem þau liafa farið. Eg flyt Ásgeiri Ásgeirssyni, for seta íslands, og konu hans, frú Dóru Þórhallsdóttur, hugheilar árnaðaróskir á þessum merkisdegi i lífi hans, og óska að heill og ham ingja fylgi þelm jafnan á ófarinni SBVibraut. Börnum þeirra og öðr- um ástvinum og raunar þjóðinni allri óska ég þess að þau, og hún, megi njóta þeirra enn um langan aldur l Emií Jónsson. ÞEGAR LITIÐ er yfir æviferil Ásgeirs Ásgeirssonar, forseta ís- lands, á sjötugsafmæli hans, bregð ur fyrir ó.ikum myndum: Af ungum menntamanni, sem ó- vænt vinnur þingsæti í Vestur-ísa fjarðarsýslu 1923. Af þrítugu glæsimenni, sem val ið var til að stýra fundum Alþing-' is á Lögbergi 1930. Af umdeildum stjórnmálamanni sem gengur milii flokka en held- ur fylgi kjósenda sinna. Af reyndum heimsborgara, sem þjóðin sendi utan á ófriðarárum tii að tryggja aðdrætá. Af stjórnmálamanni, sem vann forsetakjör gegn vilja þriggja stærstu stjórnmálaflokka lands- ins. Og loks af sjötugum forseta, sem er „kyrrlátur höfðingi og spakur að viti.“ Myndirnar gætu raunar verið fleiri, því ferill Ásgeirs Ásgeirs- sonar frá Kóranesi á Mýrum til Bessastaða hefur verið viðburða- ríkur. Öl.u glæsilegri frambraut gerist vart á sviði íslenzkra þjóð- mála. Freistandi er að staðnæmast við þá sigra, sem Ásgeir hefur unnið í pólidskri baráttu. Hann hefur jafnan synt gegn straumi og náð marki sínu, þótt rökvísir spámenn teldu það óhugsandi. Svo var, er hann vann þingsæti fyrst, er hann bauð sig fram fyrir nýjan flokk, og er hann bauð sig fram til for- seta.Þessir atburðir gefa til kynna. að þjóðin hafi séð og metið verð- leika Ásgeirs. En hins er rétt að minnast, að löngum hefur þótt öllu meiri vandi að vinna friðinn en sjáífan ófrið- inn. Þetta hefur Ásgeiri tekizt sem forsetaj og þar með hefur hann skapað fordæmi, sem getur haft mikla þýðingu í framtíðinni. Þrátt fyrir miklar deilur um kosningu hans, hefur honum tekizt að Vinna traust allrar þjóðarinnar, ekkj sízt þeirra, sem börðust gegn kosningu hans. Hann hefur orðið það sam- einingartákn og sá fulltrúi þjóðar sinnar, sem beztu menn vonuðu, að forsetum hins endurreisca lýð- veldis auðnaðist að verða. Ásgeir Ásgeirsson fæddist að Kóranesi á Mýrum, þar sem var hinn gamli Straumfjarðarkaup- staður. Foreldrar hans voru þau Ásgeir Eyþórsson, sem stundaði þar jöfnum höndum verzlun og bú skap, og Jensína Björg Matthías- dótár. Óviða getur svo fjölbreytt um- hvcrfi, bæði af náttúrunnar hendi og hvað atvinnuvegi snertir, sem á Mýraströndum. Þar kynncist Ás geir margþættum lifnaðar- og at- vinnuháttum þjóðarinnar, og bætti haun við þau kynni með sum arvinnu, er hann var í skóla. Foreldrar Ásgeirs flutcust til Reykjavíkur 1901, og þar lá fyrir honum sú skólaganga, sem þá var kostur á, Hann hóf nám í Mennta skólanum 1906 og lauk stúdents- prófi 1912. Innritaðist hann síðan í guðfræðideild Háskólans og lauk þar prófi 1915. Fyrstu störf hans voru sem biskupssricari og síðan bankaritari, en 1918-26 var hann kennari við Kennaraskólann. Ásgeir hafði þegar á unglings- árum fengið áhuga á þjóðmálum og almennum framförum. Gerðist hann félagi í Ungmennafélagi Reykjavikur og vakti athygli á sér fyrir frjálslyndi og framsýni. Árið 1924 bauð hann sig fram til þings í Vestur-ísafjarðarsýslu fyr ir Framsóknarflokkinn, og náði kosningu, enda þótt fáir spáðu inn hafi aldrei verið hávær á mál fundum, er hann einn bezti ræðu maður íslenzkra stjórnmála á síð- ustu áratugum. Hefði raunar verið I vel til fundið á sjötugsafmæli hans 1 að gefa út safn af beztu ræðum hans, og er tóm til að hrinda því máli í framkvæmd, þótt afmælið líði hjá. Árið eftir Alþingishátíðina varð Herra Asgeir Asgeirsson forseti íslands. þeim úrslitum. Þarmeð hófst fer- iil hans á stjórnmálasviðinu, sem á.ti eftir að liggja til æðstu trún- aðarstarfa þjóðarinnar. Þegar undirbúin var Alþingis- hátíð 1930, sem að ýmsu leyti markaði tímamót á þróunarbraut þjóðarinnar, var Ásgeir ekki að- eins valinn í hátíðarnefnd, heldur einnig kjörinn forseti Sameinaðs Alþingis á Lögbergi, og flutti hann þar ræðu, sem hlotið hefur verð- skuldaða frægð. Enda þótt forset- Ásgeir Ásgeirsson fjármálaráð- herra í ráðurleyti Tryggva Þórhalls sonar, og^ síðan forsætisráðherra 1932-34. Skildi á þessu tímabili leiðir með honum og Framsóknar flokknum, og mun kjördæmabreyt ingin haía valdið því meir en önn ur mál, að svo fór. Ýmsir þeir for ingjar, sem urðu viðskila við Framsóknarflokkinn á þessum ár- um, leituðu til hægri á stjórn- málasviðinu, en Ásgeir sócti til vinstri og tók upp samstarf við vantar unglinga tii að bera blaðið til áskriifenda í þessum hverfum: ★ Lindargötu ★ Miðbænum ★ Höfðahverfi AfgreiSs!a Atþýðubia$sins Sími £4 900. þingmenn Alþýðuflokksins. Gekk hann síðar í flokkinn og náði enr;» kjöri í Vestur-ísafjarðarsýslu. Fræðslumál hafa alla tíð veri^ mikið áhugaefni Ásgeirs Ásgeirsc* sonar. Hann varð fræðslumála- stjóri 1923 og gegndi því embætti til 1938, að undanteknum ráð- herraárunum. Hann var lengi far- maður menntamálanefndar neðr* deiidar á þingi og átti virkan þátó i mörgum umbótum á þessu sviði, Arið 1938 varð Ásgeir banka- stjóri við Útvegsbarikann, o g gegndi hann því starfi til 1952, er hann var kjörinn forseti íslands. Hann var alla þá tíð virkur á sviði landsmála og mikill áhrifamaðui' á þingi. Stóð hann að baki ýmsum umbótamálum, sem fram vajr hrundið, og sýndi mikla hæfileiks. til að sameina sundurleit öfl og" -sj finna þá lausn mála.sem allir að- ilar gátu sætzt á. Hann skildi manna bezt, að stjórnmál metf^ frjálsum þjóðum eru fyrst ogf fremst listin að finna færar loið- f ir og skapa samstöðu um að faraj? þær. íslendingum hefur verið ogf er miki1 nauðsyn að eignast menn, sem skilja þörfina fyrir málamið# un og geta komið henni fram. F.inn þessara manna er Ásgeir Ásgeirsson, og mun þessi hæfi- leiki ekki hafa átt minnstan þátt í kosningu hans í forsetaembætt- ið. F’estir munu vera sammála um að lýðveld'ð verði að hafa þjóð- höfðingja, sem stendur utan viðT dægurþras og hrossakaup stjórn- 1 málanna. Hins vegar var það mjög vandasamt verk að móta embætti fovseta íslands, svo að það kæmi þjóðinni að tilætluðum notum, én misbyði þó ekki ti’finningum hennar fvrir stéttlevsi og jafnrétti. Þetta hlutverk hafa fyrstu tveir forsetarnir leyst af hendi með á- gætum og skapað fas'ar hefðir um embættið. Ásgeir Ásgeirssorj hefur komið fram fyrir þjóðarinn- ar hönd, bæði heima og erlendis, með miklum glæsileik, svo jafn- an hefur sómi verið af. Á ungmennafélagsárunum kynnfc ist Ásgeir Dóru Þórhallsdóttur, sem síðar varð lífsförunautur hans. Hefur frú Dóra ekki aðéins stýrt fögru og farsælu heimili, bæði í einkalífi og á forsctasetr- inu, heldur verið manni sínum stoð og stytta og glæsilegur full- trúi íslenzkrar kvenþjóðar við ó- tal opinber tækifæri. Börn þeirra hjóna eru þrjú, Vala kona Gunn ars Thoroddsen ráðherra, Björg kona Páls Ásgeirs Tryggvasonai- sendifulltrúa, og Þórhallur, skrif- stofustjóri viðskip*amólaráðuneyt isins, kvæntur Lilly Knudsen. / íslénzka b.ióðin hyllir í dag for ' seta sínn sjötugan, og tekur und- ir óskir þær, sem hann flutti i alþingishátíðarræðu sinni 1930, er hann sagði: „Hér hefur aldrei orðið bylting og vopnaviðskipli við aðrar þjóðir þekkjum vér ekki. Mun enn verða svo um ókomnar 1 aldir, ef oss tekst að varðveita jafnræði í aðstöðu þegnanna og halda uppi friósömum viðskiptum við aðrar þ.ióðir með viturlegri ■ lögg.iöf í samræmi við eðli mann& ins og náttúi'u landnns". Benedikt Gröndal. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 13. maí 1964 §

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.