Alþýðublaðið - 13.05.1964, Page 7

Alþýðublaðið - 13.05.1964, Page 7
ÞAKKAÐ FYRIR SIÐAST Þetta er ekki hin yerulega af- mæliskveðja mín til Ásgeirs Ás- geirssonar, forseta íslands, sjö- tugs. Hana hefi ég skrifað fyrir vikublað okkar Vestur-íslendinga, LÖGBERG-HEIMSKRINGLU, í Winnipeg. Hér er sérstaklega um að ræða stuttorða minningu frá fyrstu ferð hans vestur um haf. íslendingum beggja vegna hafs íns er í fersku minni og mun lengi í minni geymast — og þá um ann- að fram okkur Vestur-íslending- um — heimsókn íslenzku forseta- hjónanna í byggðir íslending'a í Kanada hausiið 1961 Með henni var, eins og ég komst að orði í forsetaskýrslu minni á ársþingi Þjóðræknisfélagsins 1962, „ofinn einstæður og glæsilegur þáttur í langa og litbrigðaríka sögu ís- lendinga í Vesturheimi, og með réttu taldi æitþjóð vor þá heim- sókn einnig merkisviðburð í sögu sinni.“ Frá hafi til hafs í Kanada var sú ferð óslitin sigurför, for- setahjónunum sjálfum, íslandi og íslendingum til hins mesta sóma. En ekki verður sú saga rakin frek ar hér, enda gerist þess ekki þörf. Á hitt vildi ég minna með grein arkorni þessu, að það var ekki fyrsta ferð Ásgeirs Ásgeirssonar vestur um haf. Fyrstu ferð sína þangað, aðalle.ga til Bandaríkj- anna, fór hann löngu áður en hann varð forseti íslands, en það var liaustið 1935. Var hann þá fræðslu málastjóri. Fór hann ferð þessa í sérstöku boði til fyrirlestrahalda Eftir dr. Richard Beck um ísland og íslenzk efni víðsveg- ar í Bandaríkjunúm, og vann landi voru með því hið þarfasta og ágætasta kynningarstarf. Minnist ég með mikilli ánægju hins prýðilega fyrirlesturs, sem hann flutti (vitanlega á ensku) fyrir 3-4000 áheyrendum á árs- þingi Kennarafélagsins í Norður- Dakota, er haldið var að því sinni í Bismarck, höfuðborg ríkisins. Átti hann þar framúrskarandi við tökum að fagna, og vorum við íslendingarnir’sem þar voruni við síaddir, ekki lítið stoltir af mál- flutningi og virðulegri framkomu þessa mikilsvirta landa okkar. í þessari ferð sinni flutti Ásgeir Ásgeirsson einnig erindi á ís- lendingasamkomu að Mountain, N. Dakota, og mælti þar að sjálf- sögðu á íslenzku. Þrátt fyrir það, að veður var slæmt og vegir ill- færir vegna snjókomu — komið var fram í nóvember og vetur gekk snemma í garð það haust — var húsfyllir á samkomunni, alls staðar að úr íslendingabyggðinni, og hinum kæra gesti heiman unr haf og ræðu hans ákaft fagnað. Á samkomunni flutti ég Ásgeir Ásgeirssyni eftirfarandi ljóð, er ég nefndi „Ættbróður heilsað“» og þar sem það hefir eigi áður verið prentað austan hafsins (eií. kom í Tímariti Þjóðræknisfélags- ins 1935) læt ég það fylgja þess- um minningarorðUm um heirri- sókn hans: ( Velkominn yfir haf af heima- slóðum? Frá hjartkærum, björtum draumaströndum, með tignum fjöllum, fjarða vinahönd með frjórra sagna auð og gjijL í ljöðum. Þar geymist aldir langar öðrúte. þjóðum: ættstofnsins dýpsta speki, lil5 og saga; fræðin, er sveíni hrinda, eggja, aga; elaurinn kulnar seint í þeirra glöðum. Franrhald á 13. síðu. ALÞÝ9UBLAÐI9 — 13. maí 1964 J r^tiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimmmi i •■>iMiimmmmmmimmmmmiimmmmimmmiiimimmtiiiiiiiiiiiimiimmiimiimimmiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimmimiii<»iiiiitmi<mimimiiiiimimmmiiiiimiiimmmiiiiiiiMiimitimiitiitM*ii< imiimimiimimiimiiiimimiimiimiiii* Löng bið eftir konungstign MEÐ því einu að bíða geta menn (nú orðið) gert sér von- ir um að verða konungur Spán ar. Tveir evrópskir prinsar standa næst því að hljóta spönsku konungstignina og verða velefnaðir konungar, fá höll til umráða og nógu mikla risnu til þess að framfleyta heilli fjölskyldu. En utangarðs- menn koma einnig við sögu, t. d. Franz Josef Habsburg, aust- urríski gósseigandinn og bú- fræðingurinn. Það, sem menn bíða eftir, er árið 1968. Að því er menn bezt vita um fyrirætlanir Francos hershöfðingja, mun hann end- urreisa konungsríkið í nýrri og athyglisverðri mynd á því ári. LÍKA FORSETI. Konungsríki þetta verður at- hyglisvert að því leyti, að það fær ekki einungis konung, held ur einnig forseta, sem þó kann að kallast öðru nafni. Árið 1968 verður Franco 75 ára gamall. Sama ár verður annar þeirra tveggja prinsa, sem helzt koma til geina í bar- áttunni um hásætið, Don Juan, 30 ára að aldri,’ og þar með upp fyllir hann skilyrðin fyrir því að fá að taka við konungstign- inni. Það sem Franco hefur hugs- að sér, er að segja af sér og víkja annað hvort fyrir Don Juan eða Don Carlos Hugo. Sá þeirra, sem hefur heppn- ina með sér, á síðan að taka ÍAÍTLJÍS I ^ s% S(- S ...1« við formlegum völdum Francos, en ekki verður um einræði að ræða. Franco vill konung, sem tryggir áframhaldið í forystu ríkisins. Hin pólitísku völd verða aft- ur á móti fengin forseta, sem fær eins víðtæk völd og for- seti Bandaríkjanna eða de Gaulle hershöfðingi og verður kosinn til fimm ára í senn. AUÐURINN BAK VIÐ JUAN. Mjög mikilvæg röksemd, sem hnígur að því að það verði Don Juan, sem tekur við konungs- tigninni, er sú, að auðstéttirn- ar á Spáni styðja hann. Don Juan, sem er kvæntur grísku prinsessunni Sophia, hefur það sér til ágætis, að hann hefur enga mikilvæga stjórnmála- hreyfingu á bak við sig eins og keppinautur hans, Don Carlos Hugo. Ef hann verður settur í há- sætið verður hann ágæt trygg- ing fyrir áframhaldi þjóðskipu- lags þess, sem nú ríkir, en í því skipa hinir auðugu vegleg- an sess. Ef það verður hins veg- ar Carlos Hugo má gera ráð fyrir, að fylgismenn hinnar aft- urhaldssinnuðu Carlistahreyf- ingar taki við nokkrum mikil- vægustu embættunum og stjaki auðuga fólkinu lítið eitt til hliðar. Don Juan, sem heitir reynd- ar einnig Carlos að fornafni, er sonur greifans af Barcelona, sem gerir kröfu til spönsku konungstignarinnar. Greifinn féll í ónáð hjá fylgismönnum Francos skömmu eftir heims- styrjöldina síðari. Þá gaf hann nefnilega út yfirlýsingu þess „Hvað segið þið um að fá lítið hásæti“ Molen í „Het Vrije Volk“). (Teikning eftir Sr I Don Juan og kona hans, Sophia prinsessa, komu við í Washington í brúðkaupsferð sinni í septem = ber 1962 og hittu Jolm F. Kennedy forseta að máli. efnis, að spánska konungsríkið, sem hann hefði í huga, ætti að vera þingræðislegt og lýðræðis- legt og hafa frjálsa stjórnar- skrá. Hins vegar var Don Juan ekki fleygt alveg út, í yzta myrkur vegna yfirlýsingar föð- ur síns. Árið 1954 hófust við- ræðiu- um menntun hans. Fran- co féllst á að hann gengi í spánska herskólann, en fram að þessum .tíma hafði hann bú- ið í útlegð í Portúgal ásamt fjölskyldu sinni. Árið 1959 sást hann í virðu- legu sæti meðal háttsettra á- horfenda á hersýningu í Mad- rid. Árið 1960 voru hafnar nýjar viðræður, sem lauk með því að gefin var út fréttatilkynn- . ing, þar sem greinilega kom fram,. að líta bæri svo á, að það væri Don Juan sem gerði kröfu til spönsku konungstign- arinnar. Hann fékk Zarzuela- höliina skammt frá Madrid til umráða og hóf nám í stjórn- vísindum. Aftur á móti mun prinsinn sjálfur hafa sýnt föður sínum vissa hollustu og látið þau orð falla, að í rauninni væri það hann, sem gerði kröfu til spönsku konungstignarinnar, þrátt fyrir samkomulagið við Franco. Þetta hefur hann einn- ig gert síðan hann kvæntist Sophiu prinsessu 1962, og þetta er ástæðan til þess, að áhugi Francos á því að halda honum fram sem eftirmanni sínum hefur dvínað. OPUS DEI BAK VIÐ HUGO. Dou Carlos Hugo hefur get- að glaðzt yfir þessari fram- vindu. Öfugt við Don Juan hef- ur hann getað stuðzt við fast- Framhald á 13 síðu. .......v.......mMiiiiiiiimmiiiniiiiiniiiiiiiiiiiuumiiiiittnmttimtmtMMttttMmtiiititiiiiiiiimiiiniiiMmHiiPiniiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiMi iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.