Alþýðublaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 4
10% AFSLÁTTUR
af öllum skófatnaði
verzlunarinnar
þessa viku
Skóval Austurstræti 18
Eymundsonarkjallara.
Jón Helgason
|;jfRETTT^"t
Berlín, 14. nóv. (NTB-Reut.).
Bandaríski aðstoðarutanríkis-
ráðherrann George W. Ball ítrek-
aði við. komu sína til Vestur-Ber-
línar í dag stuðning Bandaríkjanna
við rétt allra Þjóðverja til að lifa
í friði og sjálfeákvörðunarrétt
þeirra. Ball situr þýzk-bandaríska
ráðstefnu í Berlín um helgina og
ræSir við fulltrúa bandarískra yf-
irvalda og Willy Brandt borgar-
stjóra.
París, 14. nóv. NTB-AFP.
Góðar lieimildir bera til baka
blaðafregnir um að de Gaulle for-
seti sé í vafa um hvort hann eigi
að gefa kost á sér í forsetakosn-
ingunum 1965. Fregnir hermdu,
að hann hafi látiff í Ijós þennan
vafa við nána samstarfsmenn, en
sagt er, að eðlilegt sé aff forsetinn
ræði þetta mál viff samstarfsmenn
sína eins og hann mun hafa gert.
Auk þess sé þaff venja de Gaul-
Ies aff Iáta vafa ríkja um þaff
sem hann hefur í hyggju.
WWWHWWWWVWWWWVWVWMMWMV
XÆndon, 14, nóv, (NTB-R.).
Hömlur þær, sem fyrr í ár voru
eettar gegn SAS á Prestwick-flug
velli í Skotlandi, gilda áfram í aff
minnsta kosti eitt ár, segir flug-
málaráðherra Breta, Roy Jenkins.,
;í bréfi til félags, sem beitir sér
fyrir uppbyggingu Prestwick. Fé-
lagið liaföi farið þess á leit við
brézku stjórnina að hún endur-
iskoði ákvörffunina um aff fækka
!_________________________________
LOAN
\
Frh. af 16 sfffu.
* Aðspurður um, hvers vegna
jhann vildi selja Lóuna, svaraði
;Björn því til, að hún væri of stói
fyrir sig. Hún tæki 16 manns í
jSæti, og það fengjust alltof fáar
ferðir fyrir hana, sem borguðu sig
lendingum SAS í Prestwick úr 7
í 4 á viku. Jenkins segir aff eng-
in ástæða sé til að ræða við SAS
fyrir næsta haust.
Lubeck, 14. nóv. (NTB-R).
Austur-þýzkur fallbyssubátur
skaut mörgum skotum fyrir fram-
an stefni vestur-þýzks dýpkunar-
skips skammt frá Lubeck í gær,
að sögn yfirvalda í morgun. ■—
Skipstjórinn bað um aðstoð þegar
hann sá fallbyssubátinn og toll-
bátur og skip úr vestur-þýzku
strandgæzlunni komu á vettvang.
Fallbyssubáturinn hætti þá skot-
hríðinni og snéri aftur í austur-
þýzka landhelgi. Skýrt hefur verið
frá því, að dýpkunarskipið hafi
verið á alþjóðlegri siglingaleið og
fallbyssubáturinn hafi reynt að
hertaka dýpkunarskipið.
□ a o
□ □ D
ÞJÓÐVILJANUM gremst þessa
dagana, að í blöðum skuli vera
bolíalagt um framtíð Alþýðu-
bandalagsins og Sameiningar-
flokks alþýðu, Sósíalistaflokks-
ins. En þar logar nú allt í ill-
deilum og er hver klíkan upp
á móti annarri sem fyrr. Til úr-
slita dregur væntanlega um
næstu helgi á flokksþingi
kommúnista.
Svo virðist sem samkomulag
þjóðvarnarmanna og kommún-
ista, sem gengu í eina sæng
fyrir síðustu kosningar, sé ekki
lengur upp á marga fiska, ends
hefur Frjáls þjóð undanfarið
vegið óvægilega að kommúnist-
um hvað eftir annað( og virðist
blaðið nú fyrst og fremst orðið
málgagn Hannibals Valdimars-
sonar í viðureign hans við
Moskvukommúnistana.
Svo bregður við í gær, að
Þjóðviljinn ræðst harkalega á
Frjálsa þjóð fyrir að einbeita
sér að þvargi um skipulagsmál
Sósíalistaflokksins og Alþýðu-
bandalagsins. Má af skrifum
Þjóðviljans ráða, að hér sé um
að. ræða mál, sem hjásvæfunni,
eða öðrum komi ekki i)jð
minnsta við, og aðrir hafi raun
ar ekki leyfi til að ræða en
kommúnistar sjáifir.
Þjóðviljinn segir að ekki
mundi ófróðlegt, ef Frjáls þjóð
ræddi í nokkrum greinum ára
tugs reynsiu Þjóðvarnarflokks-
ins í sk>p.u.lagsmálum, og klykk
ir út með að segja, að sú
reynsla sé lærdómsrík.
Vissulega er sú reynsla lær
dómsrík fyrir <þá Þjóðvarnar-
menn, sem nú telja sig illa
blekkta af kommúnistum eftir
að hafa verið beitt fyrir vagn
þeirra án þess að ráða sjálfir
neinu um förina.
Almennt er þess vænzt að ti’
nokkurra tíðinda muni draga
þegar kommúnistar 'byrja að
þinga um framtíð sína hér á
landi um næstu helgi. Á síð-
asta flokksþingi tókst nokkurn
veginn að svæfa deilurnar, en
nú er hætt við að á annan veg
fari. ,
WWWWWVVWWWIIVWWVWWWVWHWWWWVWWWWVWWWWWVWVWWVWMWV
Frh. af 1. síðu.
Handaritastofnunin í Reykja-
vík og Árnasafn í Kaupmanna
höfn, muni hafa nógum verk-
efnum að sinna í sambandi við
handritin, þó, að þau verði flutt
til íslands. En forsenda þes?
er, að fyrst verði handritin Ijós
mynduð vendilega og geymd
þannig.
Jón Helgason segir, að sé lit-
ið á vísindin frá alþjóðlegu
sjónarhorni, án þjóðernislegra
fordóma, þá sé það hentugt og
skynsamlegt að hverri þjóð séu
fengin til úrlausnar vísindaíeg
verkefni, sem hún hefur eink-
um möguleika á að leysa. Sé
það skynsamlegt að rannsaka
danska fornfræði og danskar
mállýskur í Danmörku, þá sé
það einnig skynsamlegt að rann
saka íslenzka tungu og bók-
menntir á íslandi. Jón kvað
nauðsynlegt að gera mun á út-
gáfu handritanna og öðrum
rannsóknum og texta þeirra.
Hann kvaðst vera undrandi á
því, hve margir vísindamenn
hefðu lagt mikla áherzlu á að
stórt bókasafn væri við hendina
í sambandi við rannsókn hand-
ritanna. í vissum tilvikum sé
það nauðsynlegt, en ekki við
útgáfu sjálfs textans. Þurfi
menn að rannsaka frumhand-
ritin^ sé ekkert auðveldara en
að skreppa til Reykjavíkur iða
fá handritið lánað, slík lán séu
algeng um heim allan meðal
vísindamanna og vísindastofn-
ana. Jón segir að lokum, að
spurningin um það, hvort frum
ritin eða hin ljósmynduðu hand
rit eigi að vera í Kaupmanna-
höfn eða Reykjavík, sé fyrst og
fremst um minjagildi þeirra.
Þá segir í skeytinu, að í dag
hafi danski rithöfundurinn
Palle Lauring skrifað tveggja
blaðsíðu grein í óháða blaðið
Information um handritamál-
ið. Kemur hann mjög víða við
fer hörðum orðum um lýðveld-
isstofnunina 1944 og viðskiln-
að íslendinga við Dani eftir 550
ára samband. Hann telur kröfur
íslendinga til handritanna varla
sæmandi fullorðnu fólki og að
afhending þeirra yrði til þess
að ýta undir þjóðernistilfinn-
ingu islendinga, en af 'henni
hafi þeir meira en nóg.
Hann hafi verið á íslandi og
rætt við marga íslendinga, og
burtséð frá afstöðunni til hand
ritanna, séu þeir eins og ann-
að fólk. En þeir hafi íslendinga
sögurnar blátt áfram á heilan-
um. Á Þingvöllum séu t. d.
steinar með áklöppuðum heit-
unum Gunnarsbúð, Njálsbúð og
öðrum slíkum. Segir Lauring
að það megi lengi leita til að
fyrirhitta fólk, sem sé svo skað
að af einangrun og af því að
hugsa stöðugt um fjarlæga for-
tíð og séreinkenni. Þeir þurfi
nauðsynlega að eignast lista-
safn, myndasafn og alþjóðleg
menningarleg verðmæti, en
ekki meira af íslenzkum sáfn-
gripum.
Um vonina góðu
Framliald af síðu 3.
stígandi, endi. Vonin góða, glaða,
sem er rauði þráðurinn í vefnað-
inum, er innifalin í lífinu sem hér
er lýst, ekki lífsatvikunum.
A UÐVITAÐ er William Heine-
sen færeyskur höfundur þó
svo hann skrifi á dönsku og þó
honum sé fundinn staður í donsk
um bókmenntum. Alveg á sama
hátt og við teljum okkur Gunnar
Gunnarsson, íslenzkan höfund;
frekari samanburður þessara
gagnólíku höfunda kynni að vera
ekki með öllu út í hött. Færeyj-
ar eru ríki Heinesens í dönskum
bókmenntum, Færeyjar í sjálfs-
reynslu hans og endurminningu,
Færeyjar þjóðsögu og veruleika;
þaðan er það mánnlíf kynjað sem
hann endurskapar og staðfestir i
nýrri mynd í skáldskap sínum. Og
mannlíf 17du aldar sem Det gode
Háb lýsir og reynir að skipa í al-
gilda lífssýn er að 'allri gerð sama
líf sem lifað er í minningasögum
hans, De fortabte SpiIIemmnd,
sem er furðulegur samspuni æv-
intýrs og virkileika, draum-
skyggni og raunsýnis, og mörgum
fremstu smásögunum.
Við eigum William Heinesen
það að þakka, <að hann hefur fært
Færeyjar inn í bókmenntir um-
heimsins, veitt okkur nýja vitund
um það líf sem þar e;r lifað, dreg-
ið upp mynd þess á hafinu, undir
himninum. Og sú mynd finnst
mér, þrátt fyrir stórvirkið síðasta,
ferskust og fulinuðust í þessum
síðastnefndu sögum. — Ó. J.
wvvvvvvvvvvvwwwvvwwvwvW
<!
Fundur í Kven-
félagi Alþýðu-
flokksins
KVENFÉLAG Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík heldur fund
miðvikudaginn 18. nóv. n.k.
klukkan 8,30 í félagsheimili
prentara aff Hverfisgötu 21.
Ilalldór Hansen yngri lækn
ir flytur erindi um heilsu-
gæzlu barna og mæffra. Auk
þess_ verða rædd félagsmál.
wvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvw
í Hafnarfirði
Kvenfélag Alþýffuflokksins í
Hafnarfirði heldur skemmti-
fuuid mánudaginn 16. nóvem-
ber klukkan 8,30 í Alþýffu-
húsinu. Fundarefni: Upplest-
ur, kvikmynd, bingó og kaffi
drykkja.
WWVWWWMMMMMMWWMW
Auglýsið í Alþýðublaöinu
Auglýsingasíminn 14906
4 15. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ