Alþýðublaðið - 21.02.1965, Blaðsíða 1
Byltingin í Vi
fór öll út um
Saigon, 20. febr. (ntb-afp-rt). I útlit fyrir að Khan hershöfðingi
Stjórnarbyltingin, sem gerð var hefði náð völdum í Saigon að
j í Vietnam í gær er nú farin út nýju.
um þúfur. Og í 'morgun var allt | Fallhlífahermenn sem studdu
varnarmálaráðherra landsins
komu til Saigon og umkrjngdu höf
uðstöðvar uppreisnarmanna og
settu þeim jafnframt úrslitakosti.
Fréttir herma, að forsprakki upp-
reisnarmanna Phan Ngo Thao sé
flúinn frá Saigon.
Saigon útvarpið tilkynnti klukk-
an hálf eitt í nótt að hermenn
Khans hefðu umkringt höfuðstöðv
ar uppreisnarmanna, og var þeim
skipað að hverfa brott úr húsinu
annars yrði eldur lagður að því.
Forseti landsins hélt einnig ræðu
í útvarp þar sem hann sagði, að
herforingjar og stjórnmálamenn
hefðu orðið ásáttir um að halda
sáttafund til að ræða síðustu at-
burði og hvatti hann menn til að
aðhafast ekkert fyrr en þeim fundi
væri lokið.
Skýrt hefur verið frá þvi, að
Framhald á 15. síðu.
Þróttur SH4
sjósettur
Stykkishólmi, 20. febr. ÁÁ.-GO.
í dag var hleypt af stokkunum
nýjum 68 tonna eikarbáti hjá
skipasmíðastöðinni Skipavík hér
í bæ. Báturinn hlaut nafnið
45. árg. — Sunnudagur 21. febrúar 1965 — 43. tbl.
SÍÐASTI dagur á málverkasýningu
Veturliða í Listamannaskálanum
er í dag.--Aðsókn hefur verið
góð og seldar 27 myndir. Sýningin
er opin frá kl. 1—10. .
★ Svissneski aluminíumhringurinn, sem á námur eða verksmiðjur í 15 löndum, er um þessar mundir
að reisa nýja aluminíumverksmiðju í Husnes vlð minni Harðangursfjarðar í Suður-Noregi. Hefur ver-
ið stofnað hlutafélag um verksmiðjuna, Sör-Norge A/S, en verksmiðjan verður svissnesk eign. ____ Á
þennan hátt hafa Norðmenn komið upp miklum aluminíumiðnaði, og eiga nú einnig sínar eigin verk-
smiðjur. Myndin sýnir Husnes og er hin fyrirhugaða verksmiðja teiknuð inn á hana.
Pasadena, 20. febr. (ntb-rt).
LAUST fyrir kl. 11 í dag lenti
bandaríska tunglflaugin Ranger
8 á „Hafi þagnarinnar” á norð-
austurhluta. tunglsins. Áður en
tunglflaugin lenti tóku sjónvarps !
vélar hennar um 7000 myndir af
yfirborði tunglsins og voru þær
jafnharðan sendar til jarðar. Upp
runalega var ráðgert, að myndirn-
ar yrðu um 4000, en myndavél-
arnar voru settar af stað eilítið !
fyrr en áætlunin gerði ráð fyrir j
og þess vegna nærri tvöfaldaðist
fjöldi myndanna.
Lenti a
tunglinu
Framhaldsviöræður um
aiuminíumverksmiðju
í KOMANDI VIKIT fer sendinefnd á vegum ríkistjórnarinnar til
Bandarikjanna ti'. framhaldsviðræðna um hugsanlega byggingu alum-
iníumverksmiðju á X.’andi. Viðræður verða við fulltrúa svissneska
hringsins Alusin's'-e og Alþjóðabankann, og fara fundir að þessu
sinni fram í New York og Washington. Síðustu viðræður um þessi
mál fóru fram í Ziirich í Sviss skömmu fyrir jól.
Hér er um algerar könnunarvið-
ræður að ræða, enda mun þurfa
miklar og ítarlegar upplýsingar,
áður en íslenzkir aðilar treysta sér
til að taka ákvarðanir um málið.
Alusuisse er stórfyrirtæki, ertt
hinna mestu í framleiðslu alum-
iníum í heiminum. Félagið hefur
Evrópumerkið fyrir 1965
eftir íslenzkan teiknara
Oslo, 20. febr. (ntb).
íslenzkur auglýsingateiknari
Hörður Karlsson, varð hlut-
skarpastur þegar fulltrúar á
póst og sjónvarpsráðstefnu
Evrópu, kusu evrópufrimerkið
fyrir 1965. Myndin á frímerk-
inu sýnir trjágrein með þrem-
ur laufblöðum, og ávexti, sem
eiga að tákna samstarfið milli
landa sem aðilar eru að sam-
tökunum. Merkið, sem var
lagt fyrir af íslenzku póst og
símamálastjórninni, verður
gefið út 25. september. Hörð-
ur Karlsson starfar nú í Was-
hington.
aðalbækistöðvar i Sviss, en á ýmis
konar námur og verksmiðjur auk
þess í Þýzkalándt, Frakklandi, íta-
líu, Hollandi, Belgíu, Grikklandi,
Sierra Leone, Guinea, Austurriki,
Noregi, Bandaríkjunum, Nigeríu,
Brazilíu og Bretlandi.
Aluminíumiðnaður er;. í fjórum
aðalstigum. Hreinn aluminium-
málmur finnst ekki, heldur er
hann unninn úr öðrum málmi, aðal
lega bauxíti. Úr því fæst ljósleitt
duft, sem kallast alumina (alum-
inium oxide) og úr þvi er hinn.
hreini málmur unninn. Er það gert
með notkun mjög mikillar raf-
orku. Fjórða stigið er svo fram-
leiðsla á ýmis konar vörum úr
aluminíummálmi.
Hér á landi er rætt um að reisa
verksmiðju á þriðja stiginu. Alum-
ína-duft mundi verða flutt hingað
til lands, líklega frá Rotterdam, óg
unninn úr því.málmur með þeirri
raforku, sem framleidd yrði í nýrri
stórvirkjun. Síðan yrði málmurinn
fluttur út, en þó er hugsanlegt að
koma hér upp einhverri fram-
leiðslu úr honum, þótt það verði
varla í stórum stíl í fyrstu.
Rætt hefur verið um marga staði
hér á landi, þar sem til greina
Framhald á 15. síðu.
Þróttur og skrásetningarnúmerið
SH 4. Eftir er að smíða á hann.
stýrishúS og setja niður vélina,
sem er Kelvin 360 ha.
Bátinn teiknaði Egill Þorfinns-
son í Keflavík, en eigandi er nýtt
hlutafélag hér í bæ. Báturinn er
frumsmíð Skipavíkur hf., sem var
stofnað fyrir um það bil ári sið-
an, en forstjórar þess eru Ólafur
Guðmundsson og Þorvarður Guð-
mundsson skipasmiðir. Áætlað er
að báturinn verði tilbúinn til
veiða seinni hluta vetrar.
JárnbrautarsSys
í Mið-Svíþjóð
Skövde, 20. febr. (NTB-Reuter).
SKÖMMU eftir hádegið í dag ók
hraðlest á kyrrstæða lest við Skul-
torps, sem er milli Skövde og Fal-
köping í Mið-Svíþjóð. Báðar lest-
irnar vorn á leið frá Gautaborg
til Stokkhólms. Með lestinni, sem
stóð kyrr, var mikill fjöldi skóla-
barna. Fulltrúi sænsku rikisjárn-
brautanna tjáði fréttamanni Reut-
ers, að mikill fjöldi farþega hefði
| verið með hraðlestinni, og hafði
! henni verið bætt við áætlimina
sem aukalest. Sjúkrabílar og lækn-
ishjálp var þegar í stað send á
vettvang. Algjört öngþveiti ríkti á
slysstaðnum f
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Sjö manns fórust og 10 slbsuð-
ust, flestir mjög alvarlega. Allir
þeir, sem fórust, voru i kyrrstæðn
lestinni.
Þátturinn UM HELGINA er á blaðsíðu 5 í dag og fjallar um Búr-
felisvirkjunina. — Á þriðju síðunni ritar Otafur Jónsson grein
um Rómave'di eftir Durant. — í opnunni er m. a. viðtal við kennslu-
málaráðherra Dana, K. B. Andersen.