Alþýðublaðið - 15.04.1965, Page 3
Ávarp írá Skálholtsnefnd
SKÁLHOLT er einn frægasti
og virðulegasts sögustaður á ís-
landi. Um aldaraðir var — Skál
holt — ásamt Hólum — mið-
stöð menntunar og trúarlífs,
kirkju og skólahalds. Þjóðlífið
átti þar sína háborg í andlegum
og veraldlegum efnum. í ná-
grannalöndunum urðu samsvar
andi staðir að grónum og fræg-
tim háskólaborgum, sem eru
•aflgjafar í lífi þjóðanna. En á
neyðar- og niðurlægingartím-
um var biskupsstóllinn í Skál-
lsolti lagður niður og skólinn
settur á flæking. Sú ráðstöfun
að leggja niður aldagamlar
menningarstofnanir sambæri-
legar, á sér vart hliðstæðu í
sögu nálægra þjóða. Vér lítum
svo á, að brýna nanðsyn beri til
að bæta fyrir þetta mcð því að'
endurreisa hin fornu biskups-
setur á þann hátt, að sæmi forn
um nienningar- og menntasetr-
um íslenzku þjóðarinnar.
Endurreisn Skállioltsstaðar
er mikið átak. Áhugamenn, ís-
lenzkir og erlendir, hafa gefið
til Skálholts. íslenzka ríkið,
ríkisstjórn og alþingi, liafa þeg-
ar Tagf fram verðmætan og
mikilvægan skerf. Frændþjóð-
ir vorar á Norðurlöndum Iiafa
sýnt Skálholti mikla ræktar-
semi og stutt endurreisn stað-
arins með verðmætmn gjöfum.
En það er fyrst og fremst hlut-
verk íslenzku þjóðarinnar, hlut
verk hvers einasta íslendings,
að vinna að þessari endurreisn.
Skálholt er dýrmæt sameign
allrar þjóðarinnar. Því leitum
vér nú til allra Iandsmanna um
fjárframlög til Skálholtsstaðar,
til kaupa á bókasafni og til end-
urreisnar menntaseturs þar. —
Frændþjóðir vorar á Norður-
löndum hafa efnt til fjársöfn
unar til byggingar lýðháskóla í
Skálholti. Vér ætlumst nú til
þess af Dönum, að þeir láti oss
fá handritin. Vér viljum að
þjóðin ætlist einnig til mikils
af siálfri sér. Bókagjöfin til
Skálholts er vottur þakklætis-
hugar til þeirra, sem þar rækt-
uðu fræga bókmenningu.
Vér skírskotum til metnaðar
íslendinga varðandi þetta mál
og væntum þess að þjóðin sýni
í verki að vér viljum öll að
Skálholtsstaður verði endur-
reistur og honnm sýnd sú virð-
ing, sem honum er samboðin í
vitund manna, í fullri vissu
þess. að Skálholt muni auðga
og treysta heilbrigt þjóðlíf. Sér
hverri þjóð er nauðsyn og
skylda að varðveita menning-
ararfleifð sína og tengja sögu
og afrek genginna kynslóða
traustum böndum við nútíð og
framtíð. í sögu sína og forna
mennt sækir þjóðin styrk, sjálfs
traust og afl til nýrra átaka og
framfara. Vér lítum svo á, að
hin öra fólksfjölgun og vöxtur
atvinnulífsins muni skapa ríka
þörf fyrir myndun byggðar í
Skálholti, kringum þær mennta
og menningarstofnanir, sem
þar eiga að rísa, enda mundi sú
byggðarmyndun studd af legu
staðarins, svo og jarðhita og raf
magni. Vér viljum þess vegna
beina öflum, sem eru að verki
með þjóðinni, inn á brautir, þar
sem þau þjóni sem bezt í senn
eðíilegnm tilgangi sínum og
heilbrigðum þjóðarmetnaði. —
Með framlagi sínu greiðir hver
íslendingur gamla skuld og
leggur um leið stein í byggingu
musteris og menntaseturs, er
verða mun þjóðinni til blessun-
ar á ókomnum tímum.
Reykjavík, í marz og apríl 1965.
Nöfn undirritenda: .
Ásgeir Ásgeirsson
forseti íslands
Sigurbjörn Einarsson
biskup íslands
Séra Árelíus Níelsson
formaður Bandalags Æskulýðs-
félaga í Reykjavík
Ásmundur Guðmundsson
biskup 1
Axel Tulinius
sýslumaður Sunnmýlinga
Bjarni Guðbjörnsson
forseti bæjarstjórnar ísaf jarðar
Dr. theol. Bjarni Jónsson
vígslubiskup
Birgir Kjaran
formaður stjórnar Seðlabanka
íslands
Björn Fr. Björnsson
sýslumaður Rangæinga
Björn Sigfússon
háskólabókavörður
Björn Sigurbjarnarson
gjaldkeri Stúdentafélags
Suðurlands
Björn Teitsson
formaður stúdentaráðs Háskóla
íslands
Einar Haukur Eiriksson
skattstjóri, Vestmannaeyjum
Eiríkur Eiríksson
formaður Ungmennafélags
fslands
Séra Eiríkur Þ. Stefánsson
fyrrv. prófastur
Séra Erlendur Sigmundsson
prófastur, Seyðisfirði
Eysteinn Jónsson
formaður Framsóknarflokksins
Geir Hallgrimsson
borgarstjóri
Gísli Halldórsson
forseti íþróttasambands íslands
Guðmundur Halldórsson
forseti Landssambands
Iðnaðarmanna
Séra Gunnar Árnason
formaður Prestafélags íslands
Gunnar J. Friðriksson
formaður Félags íslenzkra
Iðnrekenda
Gunnar Guðbjartsson
Form. Stéttarsamban<Ts bænda
Gunnar Gunnarsson
skáld
Hannibal Valdimarssou
forseti Alþýðusambands íslauds
Helgi Elíasson
fræðslumálastjóri 1
Hilmar Stefánsson
form. fyrri Skálholtsnefndar
Hrefna Tynes
kvenskátahöfðingi
Hörður Bjarnason
húsameistari ríkisins
Séra Ingólfur Guðmundsson
formaður Stúdentafélags
Suðurlands
Ingólfur Jónsson
landbúnaðarráðherra
Jakob Frímansson
formaður stjórnar Sambands
íslenzkra Samvinnufélaga'
Jóhann Hafstein
kirkjumálaráðherra
Jóhann Hannesson
próf., forseti Guðfræðideildar
Jóhann S. Hannesson
skólameistari, Laugarvatni
Séra Jón M. Guðjónsson
Akraneisi
Jón Sigurðsson
formaður Sjómannasambands
Islands
Jón Þórarinsson
forinaður Bandalags íslenzkra
Listamanna
Séra Jón Þorvarðarson
kirkjuráðsmaður
Jónas B. Jónsson
skátahöfðingi
Kristinn Ármannsson
rektor Menntaskólans í
Reykjavík
Dr. Kristján Eldjám
þjóðminjavörður
Lára Sigurbjörnsdóttir
formaður Kvenfélagasambands
! fslands
Ludvig Storr
aðalræðismaður
Ólafur Þ. Kristjánsson
• stórtemplar
Páll Hallgrímsson
sýsliunaður Árnesinga
Dr. Páll ísólfsson
organleikari dómkirkjunnar
Páll V. G. Kolka
kirkjuráðsmaður
Séra Sigurður Einarsson
skáld í Holti
Séra Sigurður Kristjánsson
prófastur, ísafirði
Séra Sigurður Pálsson
prófastur, Selfossi
Dr. Sigurður Sigurðsson
landlæknir 1
Sigurður Stefánsson
vígslubiskup, Möðruvöllura
Stefán Júlíusson
formaður Rithöfundasambands
íslands
Séra Sveinbíörn Högnason
prófastur
Sverrir Júlíusson formaður
Lands°ambands
íslenzkra Útvegsmanna
Viljálmur Þ. Gfslasou
útvarpsstjóri
Þórarinn Björnsson
skólameistari, Akureyri
Þórarinn Þórarinsson
kirkjuráðsmaður
Séra Þorgrímur V. Sigurðsson
kirkjuráösmaður
Þórður Tómasson
safnvörður, Skógum
Þorsteinn Sigurðsson
form. Búnaðarfélags íslands
Örn Steinsson
formaður Farmanna- og
Fiskimannasambands íslands
SKÁLHOLTSNEFND 1965:
Benjamfn Eiríksson, formaður
Þórarinn Þórarinsson, rltari
Ólafur Jónsson, gjaldkeri
Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Erlendur Einars°on varaform.
Gunnar Friöriksson
Hróbjartur Bjarnason
Jóhanna Guðmundsdóttir
Jón Gunnlaugsson
Magnús Z. Sigurðsson
Magnús Víglundsson
Ottó A. Michelsen, varagjaldk.
Páll H. Jónsson, vararitari
Pétur Sæmundsen
Stefán Ililmarsson
Unnar Stefánsson
Sveinbjörn Finnsson,
framkvæmdastjóri
STÖDENTAKÓRINN HELDUR SÖNGSKEMMTUN i DAG
Reykjavík^ 13. april ÓTJ-
STÚDENTAKÓRINN heldur söng-
skemmtun á skirdag, og er það
í fyrsta skipti sem hann kemur
fram opinberlega á þennan hátt,
áður hefur hann komið fram í
útvarpi. Á fundi með fréttamönn
um sögðu forráðamenn kórsins
að á undanfömum . árum hefðu
öðru hvoru komið fram á vegum
Háskólans söngflokkar stúdenta,
mismunandl fjöímennir og aðal
lega skipaðir háskólastúdentum.
Flestir urðu þessir flokkar til
fyrir oinhverja háekól^itótiðina,
og leystust upp að henni lokinni.
Hugmyndin um varanlegan stúd-
entakór lá þó alltaf í loftinu, og
hann var svo stofnaður 1964. Hlut
verk kórsins er m.a. að æfa og
halda uppi akademískum karla-
kórssöng, efla sönglíf meðal stúd
enta, treysta tengsl stúdenta eidri
og yngri, utan skólans og innan
og stuðla með forystu í sönglífi
að auknum kynnum og félagslegu
samstarfi þessa^tr aðilak Þessi
áætlun virðist nokkuð á veg kom
in, því að í kórnum eru menn frá
tvítugsaldri að sjötugsaldri- Á
söngskránni verða einkum stúd-
entalög frá ýmsum löndum.
Skemmtunin fer fram í Sigtúnl
kl. 3.30. Söngstjóri verður Jón
Þórarinsson, en hann er fastráð
inn söngstjóri kórsins.
Áskriflasíminn er 14900
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. apríl 1965 | ::