Alþýðublaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 8
 EFTIR kosningarnar í Banda- ríkjunum 1860, þegar Abraham Inncoln var kjörinn forseti, voru fáir í nokkrum vafa um það, að alvarleg tíðindi væru í vænd um. Djúpstæður ágreiningur hafði ríkt í landinu allt frá stofnun lýðveldisins og sífellt aukizt þrátt fyrir margar til- raunir til að jafna hann. Eftir kosningarnar lýstu demókratar því yfir, að þeir mundu aldrei sætta sig við það, að Lincoln yrði forseti og heldur segja sig úr lögum við sambandsríkið. Repúblikanaflokkur Lincolns fylgdi þeirri stefnu, að jafna yrði ágreininginn og koma í veg 'fyrir upplausn sambandsríkis- ins. Ágreiningur íbúanna í Suður- ríkjunum og Norðurríkjunum gerði styrjöld óhjókvæmilega. Þrælahald liafði tíðkazt í Banda ríkjunum allt frá dögum brezku nýlendustjórnarinnar, en þá var skortur á vinnuafli. Þrælaliald hafði eiginlega aldrei fest rætur í Norðurríkjunum en var undir- staða velmegunar íbúanna í Suð- urríkjunum. Á 19. öld jókst mannúðarstefnunni fylgi og upp rísu hreyfingar í Norðurríkjun- um, sem börðust gegn út- breiðslu þrælahalds. Hins vegar leið á löngu þar til almennings- álitið krafðist þess, að þræla- hald yrði afnumið. Allir vissu, að afnám þrælahalds gæti riðið hinum stóru plantekrum í Suð- urríkjunum að fullu. Aðskilnaður Þótt deilan um þrælahald væri hörð er hins vegar vafa- samt hvort norðanmenn og sunnanmenn hefðu farið í styrj- öld, ef aðskilnaðarmálið hefði ekki komið upp. Sunnanmenn sáu að aðstaða þeirra í öldunga- deildinni var í hættu og óttuð- ust að norðanmenh mundu þröngva upp á þá lögum, sem þeir væru andvígir. Flestir sunn anmenn vildu að völdin væru sem mest í höndum hinna ein- stöku ríkja og voru andvígir of miklum völdum sambandsstjórn- arinnar. Þetta kann að hafa ver- ið ríkjandi skoðun á fyrstu ár- um lýðveldisins, en breytingar, sem urðu á lífi manna í Norð- urríkjunum, gerðu það að verk- um, að nauðsynlegt var að sambandsstjórnin hefði mikil völd. í Suðurríkjunum lifðu flestir íbúanna enn á landbúnaði og voru tiltölulega lítt háðir í- búum annarra rikja. Sunnan- menn lýstu því þess vegna yfir, að þeir mundu segja sig úr sam- bandsríkinu, ef þeir gætu ekki sætt sig við stefnu sambands- stjórnarinnar. Þetta olli miklu uppnámi í Norðurríkjunum, þar sem því var haldið fram, að ekk- ert ríki hefði rétt til að lýsa yfir aðskilnaði án samþykkis hinna ríkjanna. Þannig var málum háttað þeg- ar forsetakosningarnar fóru fram 1860. Þremur árum áður höfðu lög verið sett sem stuðluðu að útbreiðslu þrælahalds. Einu ári. áður hafði John Brown reynt að hvetja blökkumenn í Virginia til uppreisnar í Harpers Ferry. í kosningabaráttunni hafði Lin- coln tekið skýrt fram, að hann mundi berjast gegn þrælahaldi og aðskiinaðarstefnu, og sunn- anmenn óttuðust að hann mundi setja lög þar að lútandi. Hinn 20. desember 1860 lýsti ríkið North-Carolina yfir aðskiln- aði, og skömmu síðar fóru Ge- orgia, Florida, Alabama, Louis- iana, Texas og Mississippi að dæmi þess. Fulitrúar frá þess- um ríkjum komu saman til fundar í Montgomery, Alabama, 4. febrúar 1861 og stofnuðu Suðurríkjasambandið. — Jeffer son Davis var kjörinn forseti. Fort Sumter í i Stjórnin í Washington hafðist ékkert að um hríð, enda var embættistíma James Buchanans forseta enn ekki iokið og hann neitaði að taka ákveðna afstöðu með eða á móti sunnanmönnum. Á meðan bjuggu sunnanmenn sig undir styrjöld af kappi, — Hinn 4. marz tók Lincoln við embætti og gerði allt sem í hans valdi stóð til að finna frið- Öld er Iiðin síðan þrælastríðinu Sauk; það er sögufrægasta styrjöld, sem háð hefur verið á meginlandi Ameríku. í þessari grein er rakinn gangur strfðs- ins og sagt frá Lincoln forseta, sem leiddi þjóð sína í styrjöldinni. V : m * y: ■ ; ■ ■ ■ IfÉÉIiÍltSfc Hin sögufræga stund, þegar Robert E. Lee hershöfðingi Suðurríkjanna gafst upp fyrir Uiysses S. Grant samlega lausn, en allt kom fyrir ekki. Að lokum létu sunnanmenn til skarar skríða. Fort Sumter í South-Carolina var á valdi her- sveita sambandsstjórnarinnar, og Lincoln reyndi að koma vistum þangað. Sunnanmenn komust að þessu, og skipuðu yfirmanni setuliðsins að gefast upp. Þegar hann neitaði því, hófu sunnan- menn árás á virkið og stóð hún í tvo daga. Hinn 14. apríl gafst setuliðið upp. Lincoln skoraði á menn að bjóða sig fram sem sjálfboðaliða. Styrjöldin var haf- in. Nú lýstu ríkin Virginia, N.- Carolina, Arkansas og Tennes- see, sem til þessa höfðu lialdið tryggð við sambandsstjórnina, 5'fir aðskilnaði, og Richmond í Virginia var gerð að höfuðborg Suðurríkjanna. Hin ríkin, sem lágu milli Norður- og Suður ríkjanna, Delaware, Maryland, Kentucky og Missouri, héldu tryggð við sambandsstjórnina öll styrjaldarárin, þótt skoðanir íbúanna væru svo skiptar í tveimur síðastnefndu ríkjunum, að stundum fyigdu þau sam- bandsstjórninni aðeins að málum vegna mikils liðsafla, sem stjórnin hafði í ríkjunum. Lincoln óskaði eftir 75000 sjálfboðaliðum í þrjá mánuði. í rauninni stóð styrjöldin í fjögur ár og alls börðust 4000000 menn og 750 þúsundir manna féllu. Nauðsynlegt er að glöggva sig á ástandinu til að skilja hvers vegna Lincoln skjátlaðist svo hrapallega. S tyrkleikamunur Ellefu Suðurríki tóku þátt í styrjöldinni. íbúar þeirra voru yfir 10 milljónir, þar af þriðj- ungurinn þrælar. R<kin voru þá nær eingöngu landbúnaðarríki. Verksmiðjur voru fáar og iðn- aður lítill og þar af leiðandi var hergagnaframleiðslq lí+il. Sunn- anmenn áttu fá skip, sem gátu fjutt vörur frá öðrnm löndum, og nær enga sjómenn. Þeir höfðu til þessa verið háðir vör- um frá Norðurríkiunum. í samanburði við þetta virtust Norðurríkin öflug og standa vel að vígi. íbúar þeirra voru um 22 milljónir. Landbúnaður var mikill og því enginn skortur á matvælum. Iðnaður var einnig mikill og þess vegna enginn skortur á hergögnum eða lífs- natiðsynjum. Noi'ðanmenn höfðu öflugan flota og gátu haldið uppi hafnbanni á Suðurrikin. Mikill auður og fjármunir voru saman komnir í Norðurrík.iunum. Hins vegar skorti norðanmenn reynda herforingja, og háði það þeim mjög í fyrstu. Að þessu undan- skildu virtist fátt benda til þess, að sunnanmenn gætu veitt öfl- ugt viðnám. En norðanmenn urðu ekki aðeins að vinna sigur þeir urðu að brjóta á bak aftur ákveðna og sameinaða þjóð, sem bjó á víð og dreif á landssvæði sem var á við hálfa Evrópu að stærð (Bretland, írland, Frakk- land, Belgíu, Holland, Þýzka- land, Danmörku, Svissland, Austurríki, Ungverjaland og Portúgal). Og þetta land var auk þess mjög erfitt yfirferðar með háum fjallahryggjum, breiðum fljótum og víðáttumiklum skóg- um. Fátt var um vegi og íbú- arnir voru að sjálfsögðu fjand- samlegir. Jefferson Davis hafði sjálfur verið hermaður, og þekkti flesta helztu herforingja sunnanmanna persónulega. Hann gat valið rétta menn í skyndi, þannig að sunnanmenn höfðu á færum hers höfðingjum að skipa þegar í upp- hafi. Hermenn Suðurríkjanna voru ekki úr stórborgum, því þær voru engar, heldur úr sveitum og voru vanir vopna- burði. Hermenn Norðurríkjanna. voru aftur á móti úr stórborg- um og þurftu því hernaðar- lega þjálfun. Sunnanmenn höfðu búið sig rækilega undir átökin, en það tók norðanmenn aftur á móti tvö ár. Herskyldu var ekki komið á í Norðurríkjunum fyrr en í marz 1863, og leiddi þaS til óeirða í New York. Á því ári veitti Lincoln þrælunum frelsi, og veitti það hermönnum Norð- urríkjanna siðferðilegan bakhjarl því að þá töldu þeir sig ekki einungis berjast fyrir sambandi ríkjanna, heldur einnig fyrir hugsjón frelsisins. Þetta átti mikinn þátt í því að afla norð- anmönnum fylgis í Evrópu, eink- um Bretlandi, þar sem málstað- ur sunnanmanna hafði notið mikils stuðnings fyrst í stað, — einkum í valdastéttunum. 8 15. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.