Alþýðublaðið - 08.08.1965, Qupperneq 11
iRitstgóri Örn Eidsson
ÍBK sigraði B-36
naumlega 2 gegn 1
FÆREYSKA liðið B-36, frá Þórs-
höfn, sem dvelur í Keflavík um
Jiessar mundir á vegum ÍBK, lék
sinn fyrsta leik við gestgjafa sína
sl. fimmtudagskvöld. Lauk þeirri
viðureign með naumum sigri ÍBK
2:1 eftir mjög misheppnaðan leik
af hálfu íslandsmeistaranna, en
þeir mættu með sitt sterkasta lið,
eftir að hafa fengið undanþágu hjá
landsliðsnefnd .fyrir þá leikmenn
ÍBK, sem eiga að leika gegn írum
næstk. mánudag. Flestir bjuggust
líka við frekar ójöfnum leik og
sú spó virtist líka ætla að rætast,
því að er 20 m£n. voru liðnar á
fyrri liálfleik höfðu Keflvíkingar
fengið nokkur góð tækifæri og
nýtt tvö þeirra. Rúnar Júlíusson
skoraði, undan norðvestan kaldan
lim (og peningalyktinni frá Fisk-
iðjunni, sem lagði yfir vallarsvæð
ið) mjög glæsilegt mark utan frá
hliðarlínu á um 35 metra færi. —
Fór knötturinn í bláhornið, fjær,
þrátt fyrir góða tilraun færeyska
markmannsins til að verja. Kefl-
víkingar virtust næstu mínúturnar
helzt binda vonir sínar við lang-
skotin, sem vænlegust til árang-
urs, en þau ui-ðu mörg, og geiguðu
jafnan.
Á 20. mínútu fór Jóni Jóhanns-
syni að leiðast þófið. Hann lék í
gegnum vörnina og seinast mjög
laglega á T. Holm miðvörð, og
skoraði af stuttu færi. Ekki var
að sjá að B-36 menn létu mótlæti
mikið á sig fá, þrátt fyrir tauga-
óstyrk og langar spyrnur í upp-
hafi leiks. Þeir hófu að leika
styttra og gátu ógnáð marki Kefl-
víkinga nokkrum sinnum, en án.
árangurs þar til að Högni, í mjög
þröngri stöðu, tók af þeim ómak-
ið og sendi knöttinn í sitt eigið
mark, á 45. mínútu. Eftir mjög
óskipulegan leik í fyrri hálfleik
hefði mátt ætla að Keflvíkingar
bæru saman bækur sínar í leik-
hléi og tækju upp styttra spil —
gegn vindinum — í seinni hálf-
leik, sérstaklega þegar þess var
að gæta að færeyska vörnin virt
ist nokkuð traust og ekki svo auð-
velt að brjótast í gegn um hana
eiris og Karl Hermannsson vai
þegar búinn að fullreyna, með sín
um mörgu einleiksspyrnum, sem
enduðu jafnan á einn veg — að
hann missti knöttinn. En þrátt
fyrir góða viðleitni Sigurðar AI-
bertssonar að binda liðið saman
til sóknar og dreifa spilum út á
kantana, fór allt í handaskolum,
þótt svo að sókn Keflvíkinga væri
þung mestan hluta hálfleiksins.
Færeyingum tókst samt að ná
snöggum upphlaupum af og til með
stuttum samleik, en hættan af
þeim varð aldrei geigvænleg, —■
enda vörn andstæðinganna vör
um sig með Sigurvin Ólafsson sem
traustastan mann.
Ekki er gott að ákveða styrk-
leika B-36 eftir þessum fyrsta
leik þeirra hér að þessu sinni. —
Þeir eru lítt vanir grasvelli og
taugaóstyrkur þeirra var greini-
lega mikill í fyrri hálfleik. Vörn-
in var betri helmingur liðsins
með hinn danska þjálfara Enne-
mann, sem beztan mann. Stjórn-
aði hann vörninni af kunnáttu hins
leikreynda manns. Honum hefur
að mínu áliti, tekizt að gera B-36
að mun betra liði en það var fyrir
þremur árum og lék hér. Einnig
er T. Holm athyglisverður mið-
vörður. Hinn knái Thorstein Mag-
Myndin er jrói leik Islend-
inga og Dana. Baldvin Bald-
vinsson, nr. 9, er að skora
mark íslands í leiknum. —
Hvernig skyldi honum ganga
í leiknum við íra annað
kvöld?
nussen átti ekki góðan dag, enda
vel gætt af Ólafi Marteinssyni.
Leikur Keflvíkinga olli, eins og
áður en sagt, miklum vonbrigð-
um af íslandsmeisturum til að
vera. Sérstaklega gerði framlínan
sig seka um illa útfærðan leik og
ónákvæmar spyrnur ásamt mikilli
einleikstilhneigingu. Hún á sér þó
þá afsökun, að varnarmenn B-36
gáfu henni aldrei stundarfrið til
að athafna sig. Á vörnina reyndi
ekki svo ýkja mikið og slapp hún
nokkuð vel frá leiknum — að und
anskildu einu sinni.
E. M. M.
Landsleikur fslands og
írlands kl. 20 á morgun
FIMMTI landsleikur íslands
og írlands í knattspyrnu jer
fram á Laugardalsvellinum
annað kvöld og hefst kl. 20.
Þetta er 41. landsleikur ís-
iands í knattspyrnu, en sá
fyrsti jór jram 1946, þá var
leikið við Dani og þeir sigr-
uðu með 3-0.
Það er ekki gott að spá
neinu um væntanleg úrslit
leiksins, við vitum lítið um ír-
íina, þetta eru að visu áhuga-
menn, en áhugamannalandslið
þeirra er í stöðugri jramför og
þeir verða harðir. Ef íslenzka
’.iðið verður samstillt og sýnir
baráttiLVÍlja eins og á móti
Dönum fyrir rúmum mánuði,
er ekki gott að segfa nema
við sjáum íslenzkan sigur.
Samtök íþróttafréttamanna
gefa út vandaða leikskrá í til
efni leiksins, en í henni er að
linna ýmsar upplýsingar um
Ieikmenn beggja liða. Þar er
cinnig grein um írland — land
og þjóð og Knattspyrnusam-
band íslands. Þá er skrá yfir
alla landsleiki íslands frá upp-
hafi. Leikskráin er til sölu um
helgina ásamt aðgöngumiðum
í sölutjaldi við Útvegsbank-
unn. Þá verður hún einnig seld
(í Laugardalsvellinum áður en
leikurinn hefst.
Síðast en ekki sízt skorar
íþróttasíðan á áhorfendur
landsleiksins að hvetja nú land
ann til dáða, hin miklu hvatn-
ingaróp í leiknum við Dani
á dögunum höfðu mikið að
segja og ef til vill nægja lwatn
ingaróp nú til sigurs.
Rússar Evrópumeistarar
í körfuknattleik 1965 -
Körfuknattleikssambandi ís-
lands barst nýlega í hendur úrslit
leikja í 14. keppni evrópskra
landsliða í körfuknattleik, er fram
fór í Sovétríkjunum á tímabilinu
30. maí til 10. júní. Undankeppni
fór fram í tveimur riðlum og var
A riðill í Moskva, en B riðill í
Tbilisi.
Undankeppni:
A-riðill — Moskva
Ungverjal.-ísrael
Finnland-Rúmenía
A-Þýzkal.-Tékkóslóvakíu
Sovétríkin-Ítalía
A-Þýzkal.-Finnland
(Eftir venjulegum leiktíma var
staðan 51-51, en framlengja
þurfti leiknum tvisvar sinn-
um).
Ungverjal.-Rúmenía
Sovétríkin-Ísrael
Ítalía-Tékkóslóvakía
Ísrael-Rúmenía
Ítalia-Finnland
Ungverjal.-A.-Þýzkaland
Sovétríkin-Tékkóslóvakía
Ísrael-A-Þýzkaland
Tékkóslóvakía-Finnland
Ítalía-Ungverjaland
Sovétríkin-Rúmenía
Tékkóslóvakía-Ungver j al.
Ísrael-Ítalía
Sovétríkin-Finnland
Rúmenía-A-Þýzkal.
Tékkóslóvakía-Ísrael
(Eftir venjulegan leiktíma var
staðan 61-61).
Rúmenía-Ítalía 75-81
(Eftir venjulegum leiktíma var
staðan 73-73).
Sovétríkin-A-Þýzkal. 65-41
Finnland Ungverjaland 67-46
Finnland-ísrael 51-52
Rúmenía-Tékkóslóvakía 69-90
49-60
61 85
55-73
87-48
59-63
52-76
88- 50
78- 69
59-57
59-60
55- 56
79- 74
56- 55
68-40
66-64
62-60
77-53
47 68
89- 52
55-59
71-69
A-Þýzkaland-Ítalía 64-87
Sovétríkin-Ungverjal. 76-45
B-riðill — Tblisi:
Búlgaría-V-Þýzkaland 74-ot
Sviþjóð-Grikkland 69-71
Júgóslavía-Frakkland 80-54
Pólland Spánn 82-57
Spánn-V-Þýzkaland 86-58
Búlgaría-Sviþjóð 113-56
Júgóslavía-Grikkland 76-68
Pólland-Frakkland 72-53
Frakkland-Grikkland 63-64
Pólland-V-Þýzkaland 92-64
Spánn-Svíþjóð 78-74
Júgóslavía-Búlgaría 89-69
V-Þvzkaland Svíþjóð 72-49
Frakkland-Búlgaría 67-70
Pólland-Grikkland 74-62
Spánn-Júgóslavía 65-113
Pólland-Svíþjóð 93-41
V-Þýzkaland-J úgósla vía 50-115
Grikkland-Búlgaría 65-59
Frakkland-Snárin 77-90
V-Þýzkaland-Frakkland 47-74
Svíþióð-Júgóslavía 46-91
Grikkland-Spánn 89-82
Pólland-Búlgaría 75-63
Grikkland-V-Þýzkaland 81-72
Svíþjóð-Frakkland 61-90
Búlgaría-Spánn 79-56
Pólland-Júgóslavía 69-78
Undanúrslit:
Svíþjóð-Rúmenía 60-66
V-Þýzkaland-Ungverjaland 53-52
Frakkland-Finnland 55-42
Snánn-A-Þýzkaland 76-78
(Kftir veniulegan leiktíma var
staðan 69-69).
Búlaaría-Tékkóslóvakía 77-70
Grikkland -ísrael 67-69
(Eftir veniulegan leiktíma var ?
staðan 61-61). , ;;
Framhald á 15. síffu -
* »
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. ágúst 1965 %%