Alþýðublaðið - 01.12.1965, Page 16

Alþýðublaðið - 01.12.1965, Page 16
t: i-. •L y i¥ W í á: — Þcir eru margir sem ganga með þessi vanheilindi að einhverju leyti og vil ég eindregið ráðleggja þeim að láta óhikað skera sig . . . F á 1 k i n n . Karlinn er argur yfir því að vita ekki hvað hann hefur í kaup. þótt kjaradómurinn sé kominn. Hann er nefni- lega svo einfaldur í stærð- fræði, að hann botnar hvorki upp né niður í þessum flokkaflækjum og talna- rugli. — — MÉR VAR að berast í hendur nýtt hefti af „Satt”, en það les ég ævinlega mér til óblandinnar ánægju. Og ég er ekki einn um það. Ég hef séð í auglýsingum mér vitrari og frægari menn vitna um ágæti þessa tímarits, enda er það bæði vel skrifað og skemmti- legt. Ég byrja alltaf á annarri síðunni, en hún er eins konar BAKSÍÐA hjá þeim, fleytifull af glensi og gamni. Allt er skensið innlent, en þó læðist sá grunur að manni, að sumar skopsögurnar séu af erlendum uppruna, þótt íslenzk nöfn séu sett inn í. Það gerizt nefnilega svo fátt skemmti- legt í blessuðu þjóðfélaginu okk- ar. Svavar Gests las í síðasta þætti sínum upp úr BAKSÍÐUNNI og þótti okkur það auðvitað mik- ill heiður, en að sjálfsögðu verð- skuldaður. Við vitum nefnilega sjálfir livað það er erfitt að vera fyndinn og hvað maður er himin- lifandi, þegar hjálp berst úr ein- hverri átt. Þess vegna ætlum við að taka okkur það bessaleyfi að birta nokkra brandara út nýjasta hefti af „Satt”, og vonum að út- gefandanum þ.vki það mikiii heið- — Og Skarðsbók fór á rúmar fjórar milljónir. — Ja, dýrar hafa máltíðir for- feðra minna verið . . . Hér kemur sá fyrsti: „Hagkaup fékk um daginn bréf frá bónda á Vestfjörðum, sem spurðist fyrir um verð á salernis- pappír hjá þeim. Hann fékk það | svar, að verðið væri að finna á I tiltekinni blaðsíðu í verðlistanum fi-á þeim. Bóndinn skrifaði þá annað bréf, þar sem hann sagði: — Ef ég hefði verðlista frá ykkur við höndina, þyrfti ég ekki að gera ykkur ómak út af sal- ernisþappír. — —. ★ Þjónar á veitingahúsum eiga alltaf annríkt og sjaldan gengur afgreiðslan hjá þeim eins fljótt fyrir sig og viðskiptavinurinn vill. Þess vegna fellur eftirfarandi saga í góðan jarðveg: — Þjónn á einu stærsta veit- ingahúsi i Reykjavík varð nýlega fvrir siysi og var ekið á Land spítalann. Þar var hann lagður á bekk og látinn bíða aðgerðar. Maðurinn var sárþjáður og þeg- ar hann sá lækni bregða fyrir, kallaði hann til hans: — Læknir, ég hef miklar þrautir. Getið þér ekki gert eitt- hvað fyrir mig. Læknirinn leit á þjóninn og anzaði: — Þetta er ekki mitt borð. ★ Sá þriðji er norðan úr Skaga- firði og hljóðar svo: — Nokkrir reykvískir ferða- langar komu að bæ í Skagafirði í sumar. Þeir höfðu hevrt, að húsfreyja væri orðlögð fvrir sóða- skaD og því var það með hálfum huea, að þeir þáðu góðgerðir, en boim voru bornar nýbakaðar flat- vöknr. Þeim varð starsýnt á mjallhvít- ar, lireinar hendur húsfreyju, en hún leit undan og sagði: — Það hreinsar gróflega vel á manni liendurnar að linoða flat- kökudeig. — — Loks kemur sá fjórði og síð- asti: — Hjón í Reykjavík fóru í úti- legu upp að Hreðavatni í sumar og var ungur sonur þeirra í för með þeim. Þau tjölduðu í göml- um.skógarlundi, og þegar maður- inn var að reka niður síðasta hæl- inn, ságði hann við son sinn: — Hér var það, sem við móðir þín áttum okkar fyrsta ástarfund. — Var ég þá með, spurði drengsnáðinn. , 1 — Jú, ætli það sé ekki óliætt að segja það, anzaði faðirinn, — þú komst með mér og fórst með henni móður þinni.--------- t — Þetta kostar 35 kall’ — Fífl. Þarna átti bara að sjást efri liluti líkamans. Nei, því miður forstjórinn verður ekki við alla þessa viku |

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.