Vísir - 29.09.1961, Page 7

Vísir - 29.09.1961, Page 7
Föstudagur 29. september 1961 VÍSIR 7 , þerf samasfað undir Öskjuhlíð. Samtal við Valgarð Thoroddsen yfirverkfræðing. Fyrir nokkru kom Vísir að máli við Valgarð Thorodd- sen yfirverkfræðing Raf- magnsveitu Reykjavíkur til að ræða við hann um ýms þau mál, sem nú eru efst á baugi hjá þessari stóru stofnun, sem á síðasta ári mun hafa velt kringum 100 milljónum króna. Valgarð skýrði svo frá, að nú væri búið að bjóða út nýja vélasamstæðu fyrir írafosstöðina í Sogi. Þegar stöðin var byggð, var gert ráð fyrir, að þar yrðu þrjár vélasamstæður er stöðin væri fullnýtt. Eru þar nú tvær. Tilboð hafa borizt frá Frakklandi, V.-Þýzkalandi, Ítalíu og Svíþjóð. Standa málin nú þannig, sagði Val- garð, að verið er að leita samninga við sænsk fyrir- tæki um sjálfa rafvélina, spenna og rafbúnað að íra- fossi og við Elliðaár og eins smíði vatnstúrbínunnar. Okkar áætlun er sú, að þessi vélasamstæða verði tekin í notkun haustið 1963 — eða eftir 2 ár. Þessi aukning á orku frá Sogi verður tiltölu- lega ódýr nú vegna þess, að með þessu var reiknað þegar stöðin var byggð, svo gera má ráð fyrir, að kostnaður- inn, sem nú þarf að leggja í, verði aðeins um 1/3 af venju- legum virkjunarkostnaði.. Þessi nýja vélasamstæða á að gefa 21.000 kw afl. Munu verksmiðjurnar senda sína sérfræðinga hingað til þess að setja niður vélar og ann- an útbúnað í samvinnu við starfsmenn R. R. Þá sagði Valgarð Thorodd- sen frá því, að nú væri ver- ið að gera áætlanir um frek- ari stækkun varastöðvarinn- ar við Elliðaár, og setja þar niður eina vélasamstæðu til viðbótar. Hún á að geta framleitt 10.000 kw orku. Er ketillinn þegar kominn og búið að setja hann upp, en um sjálfa túrbínuna hefir verið leitað álits hjá fyrir- tæki einu í Bretlandi, en gert er ráð fyrir að þessi stækkun varastöðvarinnar verði lokig á árinu 1964. Þá má geta þess, sagði Val- garð, að nú er verið að at- huga um stækkun Ljósafoss- stöðvarinnar, — hinnar fyrstu, er byggð var við Sog- ið. Einnig er í ráði að jera vélgæzlusalinn í írafossstöð. inni, að stjórnarstað fyrir öll orkuverin þrjú, með því að setja þar upp fjarstýri- búnað fyrir stöðvarnar. Er slíkur búnaður þar nú þegar fyrir Steingrímsstöðina nýju. Og hvað er helzt að segja hér í bænum? Okkur er vel ljóst, að í nokkrum nýjum úthverfum bæjarins er spennan ekki nógu há! Um þessar mundir eru vinnuflokkar frá R. R. að endurbæta kerfið í þessum hverfum. Þetta er að vísu bráðabirgðaráðstöfun, sem stafar m. a. af því, að efni til spennistöðvanna í hverfum þessum hefir tafizt í af- greiðslu frá verksmiðju. Við vonum, að þær ráðstafanir, sem við erum nú að gera, dugi til að tryggja að ekki verði alvarlegt spennufall í þessum hverfum í vetur. í sambandi við byggingu spennistöðvarhúsa má geta þess, sagði Valgarð, að R. R. mun reyna nýjar leiðir í þeirn efnum. Verða verkin boðin út, en stöðvarnar steyptar í verksmiðju, þann- ig, að aðeins þarf að skrúfa saman hina ýmsu stein- steypuhluta þeirra, þar sem þær eiga að vera. Vonumst við til þess, að þetta verði ódýrara fyrir R. R. en ella. Á sviði götulýsingarinnar er unnið að endurbótum á henni og aukuingum með ýmsum hætti, en því vil eg ekki leyna, sagði Valgarð. að það er vissulega til hinnar mestu óprýði, litlu „lamp- arnir<,: meðfram Hringbraut- inni, við enda flugbrautar- innar á Reykjavíkurflug- velli. En hvað getur R. R. gert, þegar flugmálastjórn- in telur hina stóru ljósa- staura beinlínis geta valdið flugslysum í aðflugi að flug- vellinum. En við höfum gert ráðstafanir til að fá í þessa litlu ljósastaura hentugi’i ljósker og koma þau frá Hol- landi. Það er svo aftur ann- Kalli frændi að mál, að reynslan sýnir okkur, að sumt ungt fólk virðist ekki skilja tilgang götulýsingarinnar og frem- ur því beint tjón með grjót- kasti eða snjókúlum á götu- lýsingu Reykjavíkur, sem kostar R. R. og þar, með bæjarbúar mjög miklar upp- hæðir á ári hverju. En við skulum vona, að allir reyni sitt bezta til að sporna við skemmdaræði þessu, sagði Valgarð. Á Hafnarhúsið að verða aðalbækistöð Rafmagnsveitu Reykjavíkur? Nei, það ætla eg að vona að aldrei verði. Höfnin mun hafa fulla þörf á þessu hús- næði öllu er fram líða stund- ir. í dag er starfsemi Raf- magnsveitu Reykjavíkur, með hundi’aða starfsliði, dreift niður á nálægt 15 stöð- um í bænum. Eg myndi telja það mesta hagsmunamál fyr- irtækisins í dag, að geta sameinað alla sína starfsemi á einum og sama stað. Það myndi hafa mikinn sparnað í för með sér og í alla staði verða hagstætt fyrir rekstur fyrirtækisins. Og R. R. hefir látið í ljósi ósk um hvar þessi samastaður hennar eigi að vera. Suður við Öskjuhlíð í • námunda við Hlíðarenda er sá staður, sem Rafmagns- veitan er vel í sveit sett, því hún væri þá á næsta leiti við helztu samgönguæðina í gegnum bæinn, Miklu- brautina, en óðum færist umferðin meira og meira í þá átt, að allra leið liggi um Miklubraut. Þarna suður við Öskjuhlíð mun hin nýja slökkvistöð verða reist, svo nokkuð má af því marka að staðurinn er allur hinn heppi- legasti. Já, húsnæðismálið, framtíðarlausn þess er nú mest aðkallandi fyrir Raf- magnsveituna og alla starf- semi hennar. Annars má geta þess að nú fer að líða að því, að ýms- ar framkvæmdir tefjist að mun vegna yfirstandandi verkfalls verkfræðinga. Væri óskandi fyrir Rafmagnsveit- una, að lausn fengist á því máli sem fyrst, saeði Val- garð Thoroddsen yfirverk- fræðingur að lokum. Enn sagði Jón Magnús- son í frétta- auka frá vesturför for- seta íslands ag kvað nú vera komin ferðalok. För forsetans hefur vakið mikla athygli vestra, geipimargt ver- ið skrifað um ísland og kynn- ing lands og þjóðar orðið meiri og fjölþættari en orðið hefði á nokkurn annan hátt á jafnstutt- um tíma. En auk þess hefur för forseta — og þá einkum heim- sókn hans í íslendingabyggðir áreiðanlega orðið íslendingum vestra mikil örvun til aukinnar samheldni um rækt við ís- lenzkar erfðir og öllum þeim, sem að íslenzkum þjóðernismál- um hafa þar unnið, mikil og verðug viðurkenning. Þá var nútímatónlist, lög, er Musica Nova kórinn í Berlín söng — sér til mikillar ánægju — trúlega. En síðan flutti Jón skólastjóri Hjálmarsson skipu- Leiðréttíng Þau mistök urðu við umbrot blaðsins í gær, að að aflokinni setningu á 16. síðu blaðsins, er hljóðaði svo: „Kafla_r úr grein- argerðinni birtast á 5. síðu blaðsins í dag“, kom ekki sjálf fréttagrein blaðsins, eins og vera átti, heldur greinargerð S. R. sem hins vegar átti að birtast á 5. síðu. Grein blaðsins kom hins vegar undir rangri fyrirsögn á 2. síðu. Eru lesend- ur beðnir velvirðingar á þessu. Leiðrétting. Meinleg prentvilla var í greininni Góðir íslendingar, sem birtist í blaðinu í fyrrad. Orðið græzka var tvisvar ritað „gæzka“. Flestir munu þó hafa kannazt við orðtakið svo og lesið í málið. -jic Boeing 707 farþegaþota nauð lenti 24. sept. í Loganflug höfninni í Boston á 2ja m. dýpi. Þykir það ganga kraftaverki næst, að allir komust lífs af. í flugvélinni voru 71 farþcgi. legt erindi um Maríu Stúart, sem ekki er laust við, að fyrr hafi verið getið, enda orðið ýmsum stórskáldum efni í skáldverk, sem hafa hlotið mikla frægð, og er erfitt að bæta um þær myndir, er bæði sagnfræðingar og skáld hafa brugðið upp af þessari fögru konu, sem örlög og atvik gerðu eftirminnilega. Sigurður A. Magnússon las þýðingu sína á ritgerð eftir George Orw'ell, höfund bókanna Búgarður dýranna og Nítján hundruð áttatíu og fjögur — og síðast en ekki sízt merkilegr- ar bókar um svik kommúnist- anna spænsku í borgarastyrj- öldinni þar í landi, en þau svik voru að undirlagi ráðstjórnar- innar í Moskvu, sem taldi heppilegra rússneskri heims- veldisstefnu, að ■ á Spáni ríktu fasistar en að þar kæmust til valda sannir lýðræðissinnar, er brytu á bak aftur kúgunaröflin, bættu kjör almennings og veittu honum uppfræðslu. Rit- gerð Orwells fjallaði um ástæð- ur þess, að hann helgaði sig rithöfundarstörfum, og var hún athyglisverð og skemmtileg, en hins vegar með sama marki brennd og flest slík skrif rithöf- unda, reynt að gera margbrotið mál einfalt — án þess — að vonum — að það tækist. Það, sem þar var sagt um áhrif að- stæðna í bernsku á starf og stefnu rithöfundarins, mun ó- umdeilanlega rétt, en flest ann- að meira og minna líklega til getið, en ekki meir. Sannast mundi, að það muni einn af leyndardómum mannlegs eðlis, hvers vegna skáld finnur sig knúið til að skrifa — þó að hins vegar geti margt mótað form, efnisval og viðhorf .... En sama er að segja um þessa grein Orwells og flest annað, sem þeir Guðmundur Steinsson og Sigurður A. Magnússon hafa þýtt og flutt í útvarp upp á síð- kastið, að bað er skyni gæddum verum bjóðandi, það er hugs- að og formað af gáfuðum mönn- um og snjöllum sitt á hvað, en staðreyndirnar á reiki — máski góðu heilli. Hafa lestrar þeirra stórum bætt hina fátæklegu, stundum ömurlega nöturlegu útvarpsdagskrá þess sumars, sem nú er á leið að kveðja okk- ur. Guðm. Gíslason Hagalín.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.