Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 10
ATHYGLISVERÐ FYRIRTÆKI
Tvö skandinavísk tölvufyrirtæki hafa vakið nokkra
athygli á liðnu ári. Annað þessara fyrirtækja er
sæmilega þekkt hér á landi þó að fáar tölvur frá
þvi hafi verið seldar. Hér er átt við NorskDATA,
sem eins og nafnið bendir til er norskt fyrir-
tæki. Árið 1985 nam sala NorskDATA 8,7 miljörðum
islenskra krónur. Ágóði fyrirtækisins var þá 1650
miljónir krónur.
NorskDATA er talið eitt athyglisverðasta
tölvufyrirtæki i Evrópu. Það veitir bæði IBM og
Digital Equipment harða samkeppni i Vestur
Evrópu. NorskDATA leggur enga áherslu á að ná
fótfestu á tölvumarkaði i Bandarikjunum heldur
einbeitir sér að þeim markaði sem nær liggur.
Eftir að samkomulag náðist við franska fyrirtækið
Metro, sem selur norsku tölvurnar undir eigin
vörumerki er reiknað með að NorskData nái enn
betri fótfestu á Evrópumarkaðinum. Til marks um
mikla og örugga þenslu Norsk Data er nefnt að það
ráði árlega til vinnu fleiri verkfræðinga en
útskrifast úr norskum háskólum.
Hitt fyrirtækið er sænskt og nefnist Datatronic.
Fyrir hálfu öðru ári keypti sænska fyrirtækið
Victor Tecnologies i Kaliforniu og komst þá á
siður heimsblaðanna. Stjórnarformaður Datatronics
Mats Gabrielsson lét allar hrakspár sem vind um
eyru þj óta.
Á siðasta ársfjórðungi 1985 seldi Datatronic 25
þúsund IBM-PC likar tölvur i Evrópu. Þessu
fylgdi fyrirtækið eftir með markaðssókn fyrir
seguldiska. Heildarvelta Datatronics 1985 var
3,6 miljarðar islenskra króna og hagnaður var 200
miljón krónur. Danielsson reiknar með að velta
fyrirtækisins tvöfaldist á þessu ári.
Bæði þessi norrænu fyrirtæki eru mjög stór á
okkar mælikvarða. Á hinn bóginn er fjallað um
þau og önnur fyrirtæki af svipaðri stærð, sem
smáfyrirtæki i bandariska timaritinu Business
Week, þaðan sem þessar upplýsingar eru fengnar.
-si.
10