Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 16
tölva. Datapoint, Computervision og Control Data
njóta þessa vafasaxna heiðurs.
Á meðal þeirra tiu fyrirtækja, sem uku hagnað
sinn mest á milli áranna 1984 og 1985 var enginn
tölvuframleiðandi. Á lista þeirra tiu, sem urðu
að þola mesta minnkun hagnaðar eru hins vegar
tveir kunningjar. Intel er næstlélegast hvað
þetta áhrærir og Wang Labratories er i fjórða
sæti.
Þessi upptalning bendir til þess að árið 1985
hafi þegar á heildina er litið verið
tölvuframleiðendum og öðrum fyrirtækjum i upp-
lýsingaiðnaði óhagstætt. Stóru fyrirtækin, sem
hafa tryggt stöðu sina á markaðinum sýna
þokkalega afkomu en mörg hinna nýrri hafa þó
vissulega slæma daga. Nokkur af "gömlu"
fyrirtækjunum hafa orðið að þola mótlæti.
Control Data og Wang Laboratories eru dæmi um
það.
Til að undirstrika slæma afkomu ársins eru sjö
tölvuframleiðendur á meðal þeirra 50 fyrirtækja á
FORTUNE 500, sem töpuðu mest árið 1985.
Til fróðleiks eru hér á eftir talin upp tiu hæstu
fyrirtækin á FORTUNE 50 og TOP 1000 listinn.
FORTUNE 500: Velta Eignir Hagnaður
1. (2) General Motors 3.950 2.620 1.640
2. (1) Exxon 3.550 2.840 2.000
3. (3) Mobil 2.290 1.710 430
4. (4) Ford Motor 2.165 1.300 1.031
5. (6) IBM 2.050 2.160 2.690
6. (5) Texaco 1.900 1.550 510
7. (11) Chevron 1.710 1.550 630
8. (8) AT&T (Bell) 1.431 1.660 640
9. (7) du Pont 1.210 1.030 460
10. (9) General Electric 1.160 1.080 960
16