Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 21
American Airlines af Sabre liðlega 14 miljörðum
króna. Nettóhagnaður af kerfinu er einnig
ótrúlega hár. Þetta ár nam hann hvorki meira né
minna en tæplega 7 miljörðum króna. Það var
talsvert meiri hagnaður en félagið hafði af
flugrekstrinum sjálfum.
Pöntunarkerfi fyrir sjúkrastofnanir
American Hospital Supply Corp. dreifir vörum til
aðila i heilsugæslu eins og nafnið bendir raunar
til. Þetta er mjög stórt fyrirtæki, sem sést á
þvi að það dreifir vörum frá 8.500 framleiðendum
til 100.000 aðila.
Á siðasta áratug ákvað American Hospital Supply
að koma á tölvusambandi á milli framleiðenda og
notenda. í þeim tilgangi setti fyrirtækið upp
eins konar pöntunarkerfi. Kerfið gerði sjúkra-
stofnunum mögulegt að rita sjálfar pantanir sinar
inn á skjá.
Þessi tækni opnaði fyrirtækinu ýmsar leiðir til
hagræðingar. Árangur kerfisins fór reyndar langt
fram úr upphaflegum vonum aðstandenda þess. Unnt
reyndist að minnka birgðir og stytta um leið
afgreiðslutima. Þetta minnkaði fjármagnskostnað
fyrirtækisins mikið. Auk þess var mögulegt að
kaupa birgðir i meira magni en áður. Á þann hátt
minnkaði kostnaður við innkaup auk þess, sem þau
urðu hagkvæmari.
Kerfið bætti auk þess þjónustuna við viðskipta-
menn ótrúlega mikið. Beinni tengsl sköpuðust við
notendur og samkeppnisaðstaðan batnaði bæði sökun
þess og hagkvæmrar þjónustu.
Upp á síðkastið hefur American Hospital Supply
Corp. útfært notkun sina á kerfinu. í þvi hafa
á siðustu árum safnast saman miklar upplýsingar.
Þessi vitneskja er nú notuð til þess að finna út
hvernig markaður fyrir sjúkrahúsvörur hefur
þróast. Á þann hátt viðheldur fyrirtækið þvi
forskoti, sem það hefur náð á keppunauta sina.
21