Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 19
fremstu röð á sínu sviði og hafa annaðhvort náð þeim áfanga með tölvuvæðingu eða notað hana til að styrkja stöðu sina. Þau eru alls ekki dæmigerð fyrir rekstur annarra fyrirtækja i sömu starfsgrein. Mat á kostnaði við bílaréttingar Hollenska efnafyrirtækið Akzo framleiðir meðal annars bilalakk. Á meðal viðskipavina Akzo Coatings, sem er málningardeild fyrirtækisins eru ótal réttingaverkstæði og varahlutasölur. Flestir bifreiðaeigendur kannast við þá ónotakennd, sem þvi fylgir að setja bifreið á verkstæði, enda kemur kostnaðurinn við dvölina þar oft illilega á óvart. Hollendingar eru engin undantekning hvað þetta varðar.í þeim tilgangi að hjálpa verkstæðum til að gefa viðskipamönnum sinum hugmynd um það hver endanlegur viðgerðakostnaður verði hefur hollenska fyrirtækið látið hanna sérstakt tölvu- kerfi. Viðgerðarmenn skrá lýsingu á bifreiðar- tegundinni ásamt þeim varahlutum, sem nota þarf til viðgerðar og lýsingu á þeirri viðgerð, sem framkvæma þarf. Tölvukerfið skilar siðan kostnað- aráætlun, verklýsingu og varahlutalista. Áætlunarkerfið er hannað fyrir einmenningstölvur. Upplýsingar i verðbanka þess taka að sögn til 2000 bifreiðategunda. Kerfið hefur verðlista fyrir varahluti og áætlun á vinnuþörf fyrir viðgerðir. í kerfinu eru einnig staðgóðar upplýs- ingar um bilamálningu og bilalökk. Sérstaklega er framleiðslu Akzo þó gerð skil. Þegar bileigandi kemur með bifreið sina á verkstæði skráir viðgerðarmaðurinn lýsingu á bifreiðategund, þeim varahlutum sem þarf að nota og lýsingu á viðgerðinni. Út úr tölvukerfinu fær hann siðan kostnaðaráætlun ásamt verklýsingu og varahlutalista. Á grundvelli þessara upplýsinga getur verkstæðið siðan gert eigandanum tilboð i viðgerðina eða einfaldlega sýnt honum hana sem áætlun. Akzo reiknar með þvi að auka sölu sina á bifreið- amálningu, sem 50% á ári i nánustu framtið. Auk 19

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.