Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 18

Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 18
SALA UPPLÝSINGA Undanfarin ár hafa menn veitt þvi athygli að skilið hefur á milli fyrirtækja, sem tekist hefur vel upp við að tölvuvæða verkefni sin og þeirra, sem hafa verið mislagðar hendur. Núorðið eru menn nokkuð á einu máli um að þeim aðilum, sem lagt hafa áherslu á gildi upplýsinga og reynt að nota þær, sem mest i starfi sinu, hafi farnast vel. Upplýsingar sem skráðar eru i tölvukerfum hafa einar útaf fyrir sig litið gildi. Þeim má á vissan hátt likja við óunnið hráefni. Til þess að breyta hinum tölvutæku upplýsingum i það horf að draga megi af þeim lærdóm og að þær auki þekkingu manna er nauðsynlegt að fara um þær höndum. Það er gert i sérhönnuðum tölvukerfum, sem nú eru tekin að ryðja sér til rúms. í nútimaþjóðfélagi vesturlanda er það viss mæli- kvarði á möguleik fyrirtækja, hversu vel þeim tekst að safna saman og halda til haga upplýs- ingum og breyta þeim i vitneskju, sem er aðgengi- leg fyrir stjórnendur þeirra. Tölvunotkun er orðin fastur liður i rekstri allra merkari fyrirtækja i okkar heimshluta. Þrátt fyrir það er langur vegur frá þvi að þau hafi almennt lært að notfæra sér upplýsingar, sem safnast hafa i tölvukerfum þeirra. Menn eru reyndar eins og áður segir farnir að gera sér grein fyrir verðmæti tölvutækra upplýsinga. Mörg fyrirtæki hafa nú þegar náð góðum árangri með þvi að nýta gildi þeirra i daglegum rekstri. önnur eru að undirbúa sig. Þvi sjónarmiði vex sifellt fylgi að upplýsingar séu verðmæti, sem nota þarf i rekstri fyrirtækja á hliðstæðan hátt og vinnu- framlag starfsfólks, fjármagn og orku. Hér á eftir er sagt frá nokkrum athyglisverðum fyrirtækjum, sem selja upplýsingar i einu eða öðru formi eða nota upplýsingarkerfi i eigin þágu. Hafa verður i huga að fyrirtækin eru öll i 18

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.