Tölvumál - 01.10.1988, Blaðsíða 23
SKÝRSLUVÉLAR RÍKISiNS
OG REYKJAVÍKURBORGAR
Upplýsingar, upplýsingar
1.10.1988 Verknr.
Hefur þú aðgang að fyrsta uppiýsingabanka landsins?
Það er fyrirhafnarlitið að fá upphringisamband við SKÝRR.
Hér er lýsing á þvi sem þú þarft að gera og hvað SKÝRR sjá
um fyrir þig.
1 Þú þarft að eiga einmenningstölvu, annað hvort af
gerðinni IBM (IBM samhaefð) eða Macintosh.
2 Þú þarft að gefa SKÝRR skriflega upp hvaða gagna-
söfn og/eða tölvukerfi fyrirtækið hyggst nota og
hvaða starfsmenn hjá fyrirtæki þinu ætli að nota
aðganginn.
SKÝRR sjá um allt annað:
1 Útvega leyfi eigenda gagnasafna ef þarf.
2 Veita fyrirtækinu/stofnuninni og starfsmönnum að-
gang að gagnasöfnunum.
3 útvega tengibúnað (mótald, samskiptaforrit, tengi-
snúru og tengilykil).
4 Koma til þin með búnaðinn, setja hann upp, prófa að
hann virki rétt og kenna starfsmönnum að komast i
samband við SKÝRR.
5 Halda formlegt námskeið til að kenna starfsmönnum
að nota gagnasöfnin og kerfin ef óskað er.
SKÝRR sjá einnig um alla þjónustu eftir að tenging
er komin á og notkun hafin. Gangi sambandið eða
notkunin ekki eins og til er ætlast hafa SKÝRR
alltaf tiltæka aðstoð hvenær dagsins sem er.
6