Tölvumál - 01.04.1990, Síða 5
Tölvumál Apríl 1990
Ráðstefnur
NordDATA90
NordDATA ráðstefnan er merkasti
viðburður síns eðlis á norður-
löndunum. Að þessu sinni verður
hún haldin í Gautaborg dagana 11.-
14. júní undir kjörorðunum:
“Arðsemi og gæði - NÚ!”
Haldnir verða rúmlega 200
fyrirlestrar, sem verða tengdir í
samstæð efni eða brautir. Ein þeirra
fer algjörlega fram á ensku fyrir þá
sem ekki treysta sér í norðurlanda-
málin.
Rúsínan í pylsuendanum verður
fyrirlestur William H (Bill) Gates,
framkvæmdastjóra Microsoft
Corporation, semætlar að segja frá
framtíðarsýnum sínum um
tölvunotkun.
Fyrir samferðafélaga, sem ekki vilja
taka þátt í sjálfri ráðstefnunni er
boðið upp á skoðunarferðir.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býðst
til að útvega farmiða og
hótelgistingu fyrir 67.880 til 95.720
krónur (með fyrirvara um gengi
o.fl.). Skráningargjald á
ráðstefnuna er ekki innifalið.
Nánari upplýsingar má fá hjá Ásu
Maríu Valdimarsdóttur,
Ferðaskrifstofunni Úrval-Úrsýn,
síma 603060 eða á skrifstofu SÍ,
síma 27577.
CASE onTrial Conference
British Information Society Limited
hefur sent SÍ tilkynningu um
ofannefnda ráðstefnu sem haldin
verður í Robinson College,
Cambridge, Englandi dagana 9.-11.
september 1990.
Hér er um að ræða fyrstu ráðstefnu
“CASE specialist Group” innan
breska skýrslutæknifélagsins og
aðalræðumenn eru Michael
Jackson, David Fairbaim frá James
Martin Associates og Paul Ward frá
Software Development Inc.
Nánari upplýsingar má fá á
skrifstofu SÍ, síma 27577.
Alþjóðaráðstefnaum
tölvur í skólastarfi.
Alþjóðaráðstefna um tölvur í
skólastarfi eða “World Confercnce
on Computers in Education” -
WCCE/90 verður, eins og fram
hefur komið áður, haldin í Sydney í
Ástralíu í júlí 1990.
Ráðstefnan stendur dagana 9.-13.
júlí en í tengslum við hana er um
fjölmarga aðra viðburði að ræða svo
sem stutt námskeið,
verkstæðisvinnu og heimsóknir í
skóla og víðar. Þá eru stuttar
ráðstefnur á Nýja Sjálandi á undan
og í Japan á eftir tengdar WCCE/90.
Ráðstefnur af þessum toga hafa
verið haldnar á fimm ára fresti
og hafa íslendingar sótt þær tvær
síðustu, sem haldnar voru í
Lausanne í Sviss og í Norfolk,
Virginiu í Bandaríkjunum. Þá sótti
stór hópur íslendinga
Evrópuráðstefnu af sama toga árið
1988.
Ástralíumenn hafa unnið árum
saman að undirbúningi þessarar
ráðstefnu í samvinnu við alþjóðlega
dagskrámefnd. Auk mjög
fjölbreyttrar dagskrár bjóða þeir
m.a. gistingu á heimilum.
Nánari upplýsingar má fá á
skrifstofu Skýrslutæknifélags
íslands eða hjá Önnu
Kristjánsdóttur, Kennaraháskóla
íslands, fulltrúa íslands í
dagskrámefnd ráðstefnunnar.
NUCC-1990
í framhaldi af NordDATA verður
síðan haldin í Gautaborg önnur
ráðstefna, NUCC - 1990, dagana 15.
til 17. júní.
NUCC er skammstöfun fyrir Nordic
University Computer Clubs og
er dagskrá þeirrar ráðstefnu í öðrum
og léttari dúr enn NordDATA.
Skráningu á NUCC má senda
bréfleiðis til Chalmers
Datorforening, Horsalsvagen 2,
412 96, Gautaborg Svíþjóð eða í
tölvupósti til netfangsins
d8andjo@dtek.chalmers.se
5