Tölvumál - 01.04.1990, Page 12

Tölvumál - 01.04.1990, Page 12
Tölvumál Apríl 1990 Reglur íþekkingarkerfum eru á forminuIF <skilyrði> THEN <niðurstaða>. Kostirnir við að nota einfalt og ódýrt kerfi eins og LEVEL5 eru þeir, að hæg' er að byrja strax að skrifa þekkinguna á regluform ogfá hugmyndir að uppbyggingu og framsetningu. Sérfræöingur Þekkingarkerfi Langtímaminni Þekkingargrunnur (viska, reynsla) (Reglur, staöreyndir) Hugsun, áiyktanir Ályktunarvél (Hvar á aö byrja, hvaða aöferö) Mynd 1 í þekkingarkerfum eru staðreyndir til dæmis tengdar saman með reglum, en þessi framsetning þekkingar er sú algengasta í þekkingarkerfum. Reglur í þekkingarkerfum eru á forminu IF <skilyrði> THEN <niðurstaða>. Ef við tökum reglu úr daglegu lífí og yfirfærum hana á þetta form þá fáum við til dæmis eftirfarandi reglu: IF rautt Ijós á götuvita THEN nema staðar Á sama hátt og staðreyndimar tengjast saman í reglum, tengir ályktunarvélin reglumar í þekkingargrunninum saman. Uppbygging vélgæsluráögjafans Vélgæsluráðgjafinn er settur upp sem bilanagreiningartré. Hver hnútpunktur í trénu er tilgáta sem þarf að sanna og krefst það þess að við hvem hnútpunkt trésins séu ein eða fleiri reglur skoðaðar. Ef reglan (reglumar) sem tilheyra hnútpunktinum em sannar, þá fer ályktunarvélin niður eftir trénu að næsta hnútpunkti og svo koll af kolli, þar til lausn er fundin (sjá mynd 2). LEVEL5 Vélgæsluráðgjafinn er forritaður í forritunarmáli sem fylgir LEVEL5 skelinni, en skel er umhverfi sem auðveldar mönnum að búa til þekkingarkerfi. Málfræði forritunarmálsins er þannig, að hægt er að skrifa reglumar beint niður og þar með einbeita sér að því sem skiptir máli, það er þekkingunni. Þetta forritunammhverfi er til á hinar ýmsu tölvur, en vélgæsluráðgjafinn er skrifaður fyrir einmenningstölvur (PC eða MAC). Kostimir við að nota einfalt og ódýrt kerfi eins og LEVEL5 em þeir, að hægt er að byrja strax að skrifa þekkinguna á regluform og fá hugmyndir að uppbyggingu og framsetningu. Gallamir eru hins vegar þeir að vegna einfaldleika er það ekki heppilegt við forritun stærri og flóknari kerfa. Fyrir vélgæsluráðgjafann er LEVEL5 ekki heppilegasti kosturinn, en þrátt fyrir einfaldleika kerfisins hefur vonandi tekist að gera ágætis kerfi. 12

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.