Tölvumál - 01.07.1992, Blaðsíða 19
Júlí 1992
Forrit RS/6000 550 VAX-11/780 Hlutfall
GCC(*) 51 1482 28,9
Espresso(*) 67 2266 33,8
Spice 507 23951 47,2
DODUC 38 1863 49,4
NASA7 139 20093 144,4
□(*) 184 6206 33,8
Eqntott(*) 28 1101 39,9
Matrix300 6 4525 729,8
FPPPP 35 3038 86,8
TOMCATV 19 2649 138,0
SPEC tala: 72,3
Tafla 1.
og komast því fyrir í sky ndiminni,
sem þýðir að þeir gætu fram-
kvæmst óeðlilega hratt. Kjarnar
gefa þó oft nytsamar vísbendingar
um flöskuhálsa í tölvukerfum og
eiga því rétt á sér ef niðurstöður
þeirra eru túlkaðar á réttan hátt.
Síðasti flokkurinn inniheldur
raunverulegforrit, sem notandinn
mun keyra þegar hann hefur keypt
tölvuna. Það er auðvitað
misjafnt milli notenda hvaða
forrit þeir nota mest og því eru til
nokkur söfn forrita sem eiga að
gefa þverskurð af dæmigerðri
notkun.
Linpack forritasafnið inniheldur
Fortran forrit til að leysa línuleg
jöfnuhneppi. Jack J. Dongarra
við Oak Ridge rannsóknar-
stofnunina í Bandaríkjunum
safnar saman og birtir reglulega
lista yfir niðurstöður úr keyrslu
forrita úr Linpack sem nota Gauss-
eyðingu til að leysa 100x100
jöfnuhneppi. Þessar niðurstöðu-
tölur gefa til ky nna raunverulegan
fleytitöluhraða tölvanna. Á
þessum lista eru nú yfir 500 tölvur,
allt frá öflugustu Cray tölvunum
niður í Macintosh Plus. Það eru
eflaust ekki margir sem nota
Gauss-eyðingu daglega, auk þess
sem nauðsynlegt er að hafa
góðan Fortran þýðanda, þannig
að þessar niðurstöður ber að
taka með varúð.
SPEC mælingar
Árið 1988 bundust tölvufyrir-
tækin HP, DEC, MIPS og Sun
samtökum um að útbúa safn
raunverulegra forrita sem hægt
væri að nota til að mæla afkasta-
getu vinnustöðva. Síðan hafa
fleiri fyrirtæki bæst í þessi samtök,
sem bera nafnið SPEC (System
Performance Evaluation Co-
operative). SPEC forritasafnið
inniheldur 10 forrit í C og Fortran.
Þar á meðal er C-þýðandi,
hermiforrit, forrit fyrir fylkja-
reikning og fleira. Afþessum 10
forritum eru 4 sem nota ekki
fleytitölur, en hin 6 notafleytitölur
í misjafnlega miklum rnæli.
Niðurstöður SPEC mælinganna
eru hlutfallsleg MIPS, þar sem
viðmiðunartölvan er VAX-11/
780. Mælingin fer þannig fram
að forritin 10 eru keyrð á tölvunni
sem verið er að mæla og tírninn
er tekinn á hverri keyrslu. Síðan
er deilt upp í þann tíma með
tímanum sem forritin tóku á VAX-
11/780. Loks er fundið fald-
meðaltal (geometric nrean)
19 - Tölvumál