Tölvumál - 01.07.1992, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.07.1992, Blaðsíða 20
Júlí 1992 þessara 10 hlutfalla og það er kallað SPEC tala (SPEC nrark) tölvunnar. I faldmeðaltali eru lölurnar margaldaðar saman og tekin tíunda rót af margfeldinu í stað þess að leggja tölurnar sarnan og deila í summuna með 10. I töflu 1 er útreikningur á SPEC tölu tölvunnar IBM RS/ 6000 550. Tölurnar í dálkunum fyrir tölvurnar tvær eru keyrslu- tímar forritana í sekúndum. Þau forrit sem merkt eru með (*) ítöflu 1 eruheiltöluforritin.Stund- um eru heiltöluforritin fjögurtekin saman og reiknað út frá þeim heiltölu-SPEC og einnig fleyti- tölu-SPEC út frá hinum sex. Það getur verið nokkur munur á þessum tveimur tölum, til dæmis hefur IBM RS/6000 550 heiltölu- SPEC 33,9 en fleytitölu-SPEC 119,7. A þessu ári verður tekinn upp nýr SPEC staðall. í honum eru alltaf gefnar upp tvær niðurstöðutölur: heiltölu-SPEC og fleytitölu- SPEC, og þær aldrei sameinaðar í eina tölu. I safninu með heiltölu- forritunum eru 6 forrit, en 14 í fleytitölusafninu. Öll forritin úr gamla safninu eru áfram nema forritið Matrix300. Það er stutt Fortran forrit sem margfaldar saman tvö 300x300 fylki. Það kemst því líklega fyrir í skyndi- minni tölvanna, auk þess sem sumir tölvuframleiðendur eru grunaðir um að hafa breytt þýð- endum sínum þannig að þeir meðhöndli þetta ákveðna forrit sérstaklega. Óeðlilega mikill hraði hefur náðst í þessu ákveðna forriti á nokkrum tölvugerðum, eins og sjá má í töflunni hér að ofan. Það skal tekið fram að IBM er alls ekki eitt um að hafa náð ótrúlegum hraða í keyrslu þessa forrits. I töflu 2 er til gamans saman- burður á SPEC tölum nokkurra tölvugerða. Þessar tölur eru sam- kvæmt gamla SPEC staðlinum og hafa ber það í huga að gæði þýðendanna skipta miklu máli í niðurstöðum. Eftir því sem C og Fortran þýðendur fyrir tölvurnar batna þá hækka SPEC tölurnar. Eins og sjá má í töflu 2 getur verið talsverður munur á milli hraða í heiltölu og fleytitölu- reikningum. Að vísu er nokkur hluti af muninum á IBM og HP tölvunum líklega tilkominn vegna sérstakrar meðhöndlunar þýð- enda á forritinum Matrix300. Þar sem því hefur verið kippt út úr nýja SPEC staðlinum má búast við að nýju fleytitölu-SPEC tölurnar verði eitthvað lægri. Nokkur varnaðarorð Tölvum er gjarnan skipt upp í einkatölvur, vinnustöðvar, milli- tölvur og ofurtölvur. Það er nrjög hæpið að bera saman tölur um afkastagetu milli tölva í mis- munandi tölvuflokkum. Þeim er ætlað mjög ólíkt hlutverk og eiginleikar sem standa fyrir utan afkastamælingarnar, eins og stærð minnis og jaðartækja, hafa mikil áhrif á notagildi þeirra. Sniðsmœkkun (downsizing) felst í því að flytja tölvuvinnslu niður milli tölvuflokka, til dærnis úr millitölvum í vinnustöðvar eða einkatölvur. Þó að rétt með- höndlaðar niðurstöður afkasta- mælinga geti verið mikilvægur þáttur í ákvörðun urn snið- smækkun er alls ekki rétt að byggja slíka ákvörðun eingöngu á tölum um afkastagetu. Að lokum skal minnt á að það sem notandinn hefur mestan áhuga á er svar við spurningunni "Hvað framkvæmast mín forrit hratt á tölvunni?". Afkastamælingargeta aldrei gefið annað en misjafnlega góða nálgun á því svari. Tölva Heiltölu-SPEC Fleytitölu-SPEC SPEC tala Intel 486 25 MHz 13,3 6,6 8,8 DECstation 5000 19,1 18,2 18,5 Sun SPARCstation 2 20,2 21,5 21,0 IBM RS/6000 550 33,9 119,7 72,3 HP 90000/730 51,5 101,6 77,5 Tafla 2. 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.