Tölvumál - 01.07.1992, Page 28
Júlí 1992
Landsvirkjun valdi þá leið að
kaupa vandaðan búnað í þeirri
von að það myndi skila sér í
lágum viðhaldskostnaði síðar.
Það hefur gengið eftir enda er
viðhaldskostnaður á tölvubún-
aðinum hverfandi. Það bila ör-
fáar tölvur á ári. Þá þarf að hafa
það í huga þegar kostnaðartölur
eru skoðaðar að um er að ræða
meðalkostnað. Sumir notendur
eru með dýrar vinnustöðvar, sér-
staklega þeir sem vinna við töl vu-
teiknun. Að lokum ber einnig að
geta að Landsvirkjun er með
starfsemi víða og gerir það að
verkum að jaðarbúnaður nýtist
ekki eins vel og við bestu
aðstæður.
Það liggur nærri að kostnaður á
starfsmann (vinnustöð) sé 490
þúsund krónur, sem skiptist
þannig að þjálfun starfsmanns
að meðtöldum launakostnaði er
u.þ.b. 70 þúsund krónur, hugbún-
aður 75 þúsund, netkerfi 75 þús-
und og vinnustöð og jaðartæki
kosta u.þ.b. 270 þúsund krónur.
Eins og drepið var á er náms-
kostnaður beinn kostnaður vegna
námskeiða og launakostnaður
starfsmanns meðan á námskeiði
stendur. Það er mjög mikilvægt
að vanda vel til þessara hluta.
Starfsmaður verður að fá að
komast úr sínu daglega amstri til
að læra á tölvuna og átta sig á í
næði hvernig hann getur beitt
tölvunni í sínu starfi.
Varðandi hugbúnað hefur verið
reynt að kaupa netútgáfur af
forritum og miða við hámarks-
fjölda samtímanotenda. Það tel
ég vera réttlátasta mælikvarðann
þegar um stærri fyrirtæki er að
ræða. Nokkrir hugbúnaðar-
framleiðendur eru að taka upp
þá verðstefnu en það mætti vera
almennara.
Netbúnaður kostar 75 þúsund
krónur á hvern starfsmann. Með
því er átt við vinnu og efni við
að leggja netkerfi, netmiðlarar,
sameiginlegar tölvur svo sem
faxgátt o.þ.h. Það má til gamans
Landsvirkjun var
meö fyrstu
fyrirtækjum
hér á landi
að taka í notkun
textavinnslu í tölvu
geta þess að á Háaleitisbraut sér
ein 25 megariða 386 tölva um að
þjóna 60 notendum og stendur
sig eins og hetja.
Kostnaður við vinnustöð og
jaðartæki er u.þ.b. 270 þúsund
krónur. En PC tölva kostar ekki
nemarúmlega 100 þúsund krónur
kanneinhveraðsegja. Þessvegna
þarf að athuga þennan kostnað
nánar. Þess ber að geta að í þær
tölvur sem auglýstar eru á 100
þúsundkrónurvantarnetkort. Þá
er ekki hægt að keyra Windows á
einu eða tveimur megabætum svo
vel sé, sumirþurfareikniörgjörva
og talsverður kostnaður liggur í
jaðartækjum.
Ef til vill er hægt að ná stofn-
kostnaðinum niður með ódýrari
vinnustöðvum, en þegar vinnu-
stöðvar voru valdar var tekið
tillit til gæða þeirra, tæknimenn
rýndu í frágang rökrása, skjáir
voru mældir og metnir, og tekið
tillit til hávaða úr viftum og
diskadrifum og jafnvel ásláttur á
lyklaborð athugaður. Það verð-
ur að taka tillit til þessara þátta
þegar verið er að velja tölvu-
búnað fyrir starfsfólk, sem situr
klukkutímum saman fyrir framan
skjáinn á tölvunni. Þetta gerir
það að verkum að við erum
með tölvur, sem bila afar lítið og
þægilegt er að vinna með.
Gengið var til samninga við
lægstbjóðanda, Örtölvutækni-
Tölvukaup, um tölvuvæðinguna
eftir að tilboð höfðu borist frá
þeim, sem uppfylltu tæknilegar
kröfur.
Hvert stefnir síðan í tölvumálum
fyrirtækisins? Lögð er mikil
áhersla á að koma öllum hug-
búnaði í MS-Windows. Eina
forritið, sem notað hefur verið
að einhverju marki og keyrir ekki
undir Windows er skjáhermir við
VAX tölvuna, en nú er verið að
færa hann undir Windows. Og af
hverju Windows?
MS-Windows hefur selstíyfir 10
milljón eintaka. Það er gífurleg
gróska í hugbúnaðargerð fyrir
Windows og framleiðendur, sem
hafa einskorðað sig við önnur
notendaskil eru að átta sig á villu
síns vegar. Windows umhverfið
uppfyllir þarfir yfir 90% skrif-
stofufólks. Vélbúnaður, sem
keyrir Windows er mun ódýrari
en vinnustöðvar, sem keyra önnur
opin gluggakerfi. Það er margt
til í því að MS-DOS tölvukerfið
sé opið, og sennilega er það best
skilgreinda tölvuumhverfið sem
til er og ekki er einokað af einum
tölvuframleiðanda.
Ég spái því að Windows not-
endaskilin verði ráðandi á
skrifstofum ánæstu árum, jafnvel
næstu lOárin. Hvortþaunotenda-
skil byggja á stýrikerfinu DOS,
NT, OS/2 eða einhverju allt öðru
er of fljótt að spá. Ég spái því
einnig að tölvuvinnsla muni
byggja á Intel örgjörvum a.m.k.
þangað til önnur tölvuhögun
keyrir Windows notendaskil og
er samkeppnisfær í verði við
tölvubúnað byggðan á Intel
örgjörvum.
28 - Tölvumál