Tölvumál - 01.03.1994, Qupperneq 8
Mars 1994
Myndræn forritun
Setningarávarp, flutt á ráðstefnu SI um myndrœna forritun, sem haldin var 18. nóvember 1993.
Eftir Gudna B. Guðnason
Þátttakendafjöldi á ráðstefnum
Skýrslutæknifélagsins ber þess
glöggt vitni hversu feginsamlega
félagsmenn taka opinni umræðu
um málefni er snerta tölvutækni
og tölvuvinnslu. Er þar skemmst
að minnast hádegisverðarfundar
þar sem umræðuefnið var Win-
dows NT og Unix en þar var
gríðarleg þátttaka. Mér skilst að
þátttakendafjöldi í dag hafi einnig
farið fram úr vonum enda brennur
umræðuefnið heitt á vörum
margra um þessar mundir.
Skýrslutæknifélagið hefur verið
í fararbroddi í ráðstefnuhaldi
varðandi tölvutækni og eru ráð-
stefnur þessar orðnar ómissandi
þáttur í tilveru okkar tölvumanna
hérlendis.
Það vekur vissulega upp spurn-
ingar hvers vegna Islendingar hafa
svo mikinn áhuga á tækni og
tækninýjungum sem raun ber
vitni. Það hefur oft verið talað
um að við íslendingar séum
"tæknióð" í þessum skilningi,
hlaupum eftir tækninýjungum
stundum án þess að gera okkur
grein fyrir tilgangi eða afleið-
ingum. Það var í það minnsta
forvitnilegt að þegar Skýrslu-
tæknifélagið hugðist fá stjórn-
endur fyrirtækja til að segja frá
sinni skoðun á tölvuvæðingu
fyrirtækja á ráðstefnu sem halda
átti nú í haust þá höfðu menn
ekki hinn minnsta áhuga á að
sækja slíka ráðstefnu svo fella
varð hana niður sökum lélegrar
þátttöku. Þannig erum við
Islendingar.
Mig langar að segja ykkur frá
skemmtilegu atviki sem ég upp-
lifði nú fyrir skemmstu. Það
hringdi í mig ágætur kunningi,
læknir sem er mikils metinn sér-
fræðingur í sinni grein hérlendis
og leitaði ráða hjá mér varðandi
tengingu við erlenda gagnabanka
og gagnsemi þess fyrir mann í
hans fagi.
Eg tjáði honum að ég hefði
reynslu af Compuserve, fjölþjóða
gagnabanka sem geymir upp-
lýsingar um allt milli himins og
jarðar og jafnvel ýmislegt fleira.
Eg hef verið áskrifandi að þessum
gagnabanka nú um alllangt skeið
og vissi m.a. af því að fagmenn á
hans sviði þ.e. læknar skiptust á
skoðunum í gegnum þennan
banka. Einnigvissiégaðbankinn
býður upp á fjölbrey tta möguleika
á leit í fagtímaritum að greinum
sem snerta ýmis sérfræðisvið og
þ.á.m. læknisfræði.
Svo ég ráðlagði honum að sækja
um upphringiaðgang að X.25
gagnaneti pósts og síma, kaupa
sér mótald og sækja um að-
gangsorð að gagnabankanum.
Jafnframt ráðlagði ég honum að
kaupa sérhæft forrit sem auð-
veldar allan aðgang að gagna-
bankanum auk þess að lágmarka
flutning upplýsinga. Þetta forrit
kannast margir Compuserve
notendur við og gengur undir
nafninu CIM eða Compuserve
Information Manager.
Læknirinn fór að öllum ráðum
mínum og hringdi síðan í mig að
tveimur mánuðum liðnum og
sagðist vera kominn með allt
sem ég ráðlagði honum að kaupa
og bað mig um að koma að
hjálpa sér við uppsetningu. Eg
taldi það sjálfsagt og kont til
hans í sömu viku reiðubúinn að
setja búnaðinn upp og kenna
honum grundvallaratriðin í
notkun bankans. Þegar ég mæti á
staðinn þá hitti ég fyrir konuna
hans og spyr hana hvort hún sé
ekki kornin á kaf í tölvuna eins og
maðurinn hennar. Hún gaf nú
lítið út á það en sagði að
eiginmaðurinn ynni við tölvuna
flestöll kvöld svo hún kæmist
trauðla að.
Þegar ég kem inn á skrifstofu
læknisins þá situr hann yfir
tölvunni með stýripinna í hend-
inni og er greinilega að leika sér
í einhverjum tölvuleik. Við
nánari skoðun kom í ljós að
læknirinn var að reyna lenda
"Cessnu" í flughermiforriti frá
Microsoft. Hann sagðist vera
8 - Tölvumál