Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1994, Blaðsíða 28

Tölvumál - 01.03.1994, Blaðsíða 28
Mars 1994 Versionitis - er nýjast útgáfan alltaf nauðsynleg? Erindi flutt á ET-degi Skýrslutœknifélags Islands 10. desember 1993 eftir Jóhann Gunnarsson Mér var skammtað þetta ræðu- efni meðfyrirsögn og öllu saman. Ætla má að orðið skýri sig nokkuð sjálft, meðal annars með Versionitis "Þrá mannsins eftir því nýjasta og besta" - drifafl þróunar og framfara eða "Ómótstæðileg fíkn í allt sem nýtt er" - sjúkdómur vera jafn vel þekkt alls staðar og það er hér. Ég var í Þýskalandi í nokkra mánuði árið 1960 og reyndi, þegar ég þóttist vera orð- inn brandarafær í málinu, að segja félögum mínum litla skrýtlu um bíladellu. En eng- inn þeirra hló. Mynd /. tilvísun til þekktra hliðstæða í læknisfræði. Ég kem þó hér með tvær hugsanlegar skýringar á mynd 1. Annars vegar hin jákvæða, óseðjandi forvitni, sem hefurskil-' að þekkingu mannkynsins á sjálfu sér og umhverfi sínu framávið með þeim ótvíræða hætti, sem raun ber vitni. Með öðrum orð- um drifafl þróunar og framfara. Hins vegar eitthvað sem hljómar eins og sjúkdómur. Þetta er augljóslega einhvern veginn neikvæðara og manni detta í hug ýmsir þekktir kvillar, svo sem bíladella. En hvenær er réttlætanlegt að tala um kvilla, og hver gengur með kvillann? Hver á að dæma um hvað sé eðlilegt? Hugtakið bíladella, til dæmis, virðist ekki Síst vildi ég nú rata í þá ógæfu að standa hér og segja "Þið eruð allir vitlausir nema ég”. I trausti þess að ég sé hér í betri félagsskap en í Þýska- landi forðurn leyfi ég mér að halda örlítið lengra út á þessa braut (mynd 2). Gerum okkur í upphafi grein fyrir því að hérerekkert nýtt vandamál á ferðinni. Leyfið mér að kalla til vitnis tvo spekinga. Fyrir um 350 árum var þetta orðað svo: "Splunkuný meðalmennska vek- ur meiri athygli en ágæti, sem orðið er að vana". Og fyrir unr 150 árum sagði skáldið Oscar Wilde: "Einungis það sem er nýtískulegt getur nokkurn tímann orðið gamaldags". Nú bið ég ykkur að skilja ekki orð mín svo að ég sé á móti breytingum eða framförum. Ég vara einungis við því að menn láti þröngva upp á sig nýjungum án fyrirvara og á óskipulegan hátt. Allur rekstur býr nú við þrengri fjárhag en oft áður. Kostnaður tengdur upplýsingatækni nemur frá 5 - 10% af reksturskostnaði og fer hækkandi. Þetta er liður sem verður að stjórna ekki síður en ræstingarkostnaði eða kaffi- kaupurn. Flestir sérfræðingar eru sammála um að unnt sé að ná stórfelldri framleiðniaukningu í rekstri fyrirtækja með því að beita upplýsingatækni á mark- vissan hátt og með tilheyrandi aðlögun vinnuferla. Gamalt áhyggjuefni "A brand new mediocrity is thought of more than an accustomed excellence" Baltasar Gracián: The art of worldly wisdom, 17. öld. "It is only the modern that ever becomes old-fashioned" Oscar Wilde, 19. öld. Mynd 2. 28 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.