Tölvumál - 01.03.1994, Side 9
Mars 1994
hugfanginn af þessu forriti og vera
búinn að eyða flestum kvöldum
undanfarnar vikur við að æfa
blindflugslendingar við mismun-
andi aðstæður. Svo heillaður var
hann af þessu forriti að hann tók
mig hið snarasta í skemmtilega
ilugkennslu sem endaði nokkrum
klukkustundum síðareftirnokkr-
ar sársaukalausar brotlendingar.
En seint og um síðir náði ég að
setja upp hjá honunr tenginguna
við gagnabankann. Það fyrsta
sem læknirinn gerði eftir að
tengingin komst á var að gerast
aðili að áhugahópi um "Micro-
soft" flughermiforritið og fyrsti
skráarflutningur sem vinur minn,
læknirinn framkvæmdi var að
sækja nýja flugvélartegund sem
hann hafði ekki flogið áður. Ég
veit ekki til þess að læknirinn
hafi enn notfært sér þá möguleika
sem "Compuserve" býður upp á
fyrir hans sérsvið en e.t.v. kemur
að því síðar. Ég tel rétt í framhaldi
af þessari sögu að eiginmenn eða
eiginkonurgeri sérgrein fyrirþví
að nauðsynleg eftirvinna maka
getur verið af margvíslegum toga.
Þessa sögu segi ég til þess að
leggja áherslu á að möguleikar
tölvutækninnar hafa færst inn í
nýjar víddir þar sem tölvutæknina
er hægt að nýta bæði sem
skemmtilega og lærdómsríka af-
þreyingu sem og mikilvægt tæki
í upplýsingaöflun og flokkun. Sú
kynslóð sem nú vex úr grasi elst
upp við tölvuleiki og grunn-
kennslu í tölvunotkun í skólum.
Myndræn framsetning kennslu-
efnisjafnt sem afþreyingarerstór
hluti af uppeldi þessarar kyn-
slóðar og mun hún gera kröfur
um slíkan framsetningarmáta í
framtíðinni.
Umræðan um myndræn notenda-
skil svo og myndræna frarn-
setningu upplýsinga hefur verið í
gangi nú urn alllangt skeið og
minnist ég þess að íjallað hefur
verið um þá hluti í allnokkrum
erindum á ráðstefnum Skýrslu-
tæknifélagsins. Það sem gerir
umræðuna kannski áhugaverðari
nú en áður er að þessi bylting er
orðin að veruleika með þróunar-
tækjum og þróunartækni sem er
aðgengileg hverjum sem er.
Framsetning upplýsinga getur líka
tekið á sig aðra og skenrmtilega
mynd og á ég þar t.d. við notkun
hljóðmerkja og tals sem hægt er
að beita nreð skemmtilegum
hætti. Ég minnist eins dæmis úr
mínu fyrirtæki þar sem verið var
að þróa eftirlitskerfi með fram-
leiðslu kera í kerskálanum þar
sem notast er við "tölvutal" með
aðstoð hljóðkorts. Ein af frum-
útgáfum kerfisinstúlkaði endalok
tæmingar kersins með nautna-
legum ropa. Mönnunr þótti þetta
geta orðið leiðingjarnt til lengdar
svoropinn vartekinn út íkeyrslu-
útgáfunni. Meðþessum eina ropa
fékk hið steindauða ker skyndi-
legt líf með eftirminnilegum hætti
og sýnir þetta að hægt er að
krydda upplýsingarnar með
margvíslegum hætti þótt hægt sé
að finna betra krydd en það sem
notað var í þessu tilviki.
Nú í vikunni var athyglisverður
umræðuþáttur í sjónvarpinu þar
sem rætt var m.a. urn stöðu kvik-
myndagerðar á íslandi. Komið
var inn á stöðu ritaðs máls eða
bókmennta í samanburði við
stöðu kvikmyndarinnar. Kom
þar margt athyglisvert í ljós.
Meðal annars hafa menn
áhyggjur af minnkandi bókalestri
landsmanna sem líklegast er
afleiðing aukins framboðs af-
þreyingakvikmynda og rnarg-
víslegs sjónvarpsefnis. Þessi
þróun er í sjálfu sér ekki óeðlileg
að mínu mati. Kvikmyndaform-
ið er meira lifandi og aðgengi-
legra heldur en ritað mál. En
bókmenntaformið getur öðlast
meiri dýptogkrafistþannig annars
skilnings af hálfu lesanda og
þannig höfðað frekar til annars
hópsheldurenkvikmyndin. Þessi
tvö ólíku form eiga því svo sannar-
lega rétt á sér og munu örugglega
standa bæði um ókonrna tíð.
Að sama skapi tel ég að hin
myndræna framsetning notenda-
skila og upplýsinga muni ekki
endilega alls staðar eiga við.
Þannig tel ég að hið hefðbundna
ómyndræna form ásamt hinu
myndræna geti haldið áfram að
þróast samhliða. Einhvers slaðar
heyrði ég þá stafhæfingu urn
þróun myndrænna kerfa, Produce
now,pay later. Sem útleggst gæti
á okkar ástkæra ylhýra Til íhvelli,
borgar í elli.
Það sem átt er við með þessari
staðhæfingu er að það tekur
skamman tíma að skrifa nrynd-
ræn kerfi með öflugum þróuna-
rtækjum og nýrri tækni en viðhald
þessa hugbúnaðar getur orðið
kostnaðarsamara og erfiðara.
Það verður gaman að heyra hvað
fyrirlesararnir sem konra hér á
eftir segja urn þetta. Ég hef þá
skoðun að almenn einföldun á
tölvuumhverfi fyrirtækja nieð til-
kornu einkatölvunnar, tölvuneta
og myndrænnar framsetningar
geri það að verkum að fyrirtæki
í almennunr rekstri, þ.e. ekki hug-
búnaðarfyrirtæki, munu hætta að
reka sérhæfðar deildir fyrir hug-
búnaðarþróun. Sú staðreynd að
notkun tölvukerfa er orðin svo
samofin almennri vinnu starfs-
nranna kallar á nýja og breytta
skilgreiningu tölvudeilda. Tölvu-
deildir munu verða ábyrgar fyrir
rekstri, uppsetningu og viðhaldi
tölvuvélbúnaðar ásamt rekstri
hugbúnaðarkerfa jafnframt því
að móta stefnu fyrirtækisins í
tölvumálum. Notandinn verður
9 - Tölvumál