Tölvumál - 01.03.1996, Side 12

Tölvumál - 01.03.1996, Side 12
Mars 1996 Upplýsingakerfi Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns Eftir Þorstein Hallgrímsson Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir upplýsingakerfi Lands- bókasafns íslands - Háskólabóka- safns (Lbs.) en einnig verður drep- ið á ýmsa aðra þætti sem skipta máli svo sem hlutverk safnsins, safnkostinn, samskipti við Háskól- ann o. fl. Hlutverk og safnkostur Landsbókasafn Islands - Há- skólabókasafn var stofnað 1. desember 1994 við sameiningu Landsbókasafns íslands sem stofn- að var 1818 og Háskólabókasafns sem stofnað var 1940. í lögum um safnið er kveðið á um að safnið sé í senn þjóðbókasafn íslendinga og bókasafn Háskóla íslands og hlutverk safnsins er m.a. að: • sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi í Háskóla Islands • viða að sér gögnum í prentuðu formi eða á öðrum miðlum og búa þau í hendur notendum • þaulsafna íslenskum gögnum og tryggja viðhald og varð- veislu safnkostsins • varðveita handritasöfn • gera skrár um íslenskar bækur, handrit og hljóðrit • starfrækjalandsskrifstofufyrir alþj óðabókanúmerakerfi • halda uppi bókasafns- og upplýsingaþjónustu í þágu atvinnuvega, stjórnsýslu og rannsókna • gefa safngestum kost á vinnu- aðstöðu og greiðum aðgangi að safngögnum • starfrækja samskrá bókasafna • stuðla að fræðslu og menning- arstarfsemi. Það sést af þessu að hlutverk safnsins eru margþætt og safnkost- urinn þ.e. bækur, blöð, tímarit, handrit, landakort, geisladiskar, myndbönd og fleira endurspeglar það. Þjóðbókasafnshlutverkið er m.a. uppfyllt með því að lög um skylduskil kveða á um að 3 eintök af öllu prentuðu efni og 2 eintök af öllum hljóðritum (geisladiskum, snældum, plötum) sem gefið er út á Islandi afhendist safninu. Safiiinu ber að varðveita þetta efni um ókomna tíð og veita aðgang að því. Þetta er mikið magn (t.d. allir aug- lýsingabæklingar, plaköt og fleira í þeim dúr) og það er mjög mikil vinna að fylgja því eftir að þetta efni berist og að skrá það í bóka- safnskerfi safnsins. Safnið á einnig mikið safn handrita og bréfa. Flest skinnhand- rit og elstu íslensku handritin eru í Árnastofnun en elsta handritsbrot Lbs. er frá því um 1100. Megnið af handritunum er frá síðari öldum þ.e. 17. öld en einkum 18. og 19. öld, og alltaf bætist við. Þar er að finna mikinn fróðleik sem aldrei hefur birst á prenti og gefur oft mjög góða innsýn í kjör og daglegt líf fólks á fyrri tímum og er ómetanleg heimildauppspretta fyrir alla sem stunda rannsóknir er tengjast íslenskum efnum og sér- staklega íslensku máli, bókmennt- um og sögu. Sem háskólabókasafn þarf safnið að hafa á boðstólum mikið af bókum og handbókum um fjölda efna og sérstaklega mikið úrval af tímaritum. Ennlfemur er mikil þörf fyrir upplýsingar um bækur, grein- ar og ritgerðir sem til eru erlendis. Þetta efni er núorðið að mestu á geisladiskum og er talsvert af þeim til á safninu. í safninu eru nú um 750.000 bindi þ.e. flest allar íslenskar bæk- ur frá upphafi prentunar, tímarit og dagblöð en stærstur hluti safns- ins er þó erlent efni. Einnig eru skráð um 15.000 handritanúmer en þar sem oftast eru mörg handrit eða bréf innan hvers númers þá er raunverulegur fjöldi miklu meiri. Þjóðarbókhlaðan Lbs. er til húsa í Þjóðarbók- hlöðunni en einnig eru nokkur smærri söfn staðsett í ýmsum byggingum HÍ sem útibú. Þjóðar- bókhlaðan var lengi í byggingu en ákvörðun var tekin 1970, fyrsta skóflustungan 1978 og flutt var í bygginguna 1. des. 1994. Fram- kvæmdum er þó enn ekki að fullu lokið. Þessi langa byggingarsaga hefur frá sjónarhóli tölvutækninnar þann kost að hægt var að leggja um alla bygginguna mjög gott og fullkomið lagnanet fyrir tölvu- vinnslu. I Þjóðarbókhlöðu er safnkost- urinn geymdur og einnig er mjög góð aðstaða bæði fyrir starfsfólk og safngesti. Stúdentar og háskóla- starfsmenn eru mikill meirihluti gesta en talsvert af almennum borgurum sækir safnið. í safninu eru um 700 lessæti og 26 les- 12 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.