Tölvumál - 01.03.1996, Qupperneq 19

Tölvumál - 01.03.1996, Qupperneq 19
Mars 1996 stöður innanlands og koma þeim inn í Evrópuskrá um þjóðarkröfur til upplýsingatækni, bæði á læsi- legu og tölvutæku formi. Tilgang- urinn var sá að setja skýrt og skipu- lega frarn íslenskar sérkröfur í upp- lýsingatækni og að gera upplýsing- ar um þær aðgengilegar framleið- endum og öðrum sem þurfa að vita afþeim. Á stofnfund mættu 23 fulltrúar frá almennum notendum, stærri notendum, netþjónustuaðilum, hugbúnaðarframleiðendum og inn- flytjendum. Stofnaðir voru 4 vinnuhópar: Um stafatöflur, gæsa- lappir, umritun úr grísku og aðrar þjóðlegar þarfir. Hjá Staðlaráði hefur nefndin fengið gælunafnið Peysufatanefhdin. Nefndin þurfti sjálf að skil- greina nánar hvaða upplýsingum ætti að safna. Þegar tækninefndin hóf störf var Evrópunefnd um stafatækni langt komin með að skilgreina uppbyggingu fyrr- nefndrar Evrópuskrár um þjóð- legar kröfur, í formi staðals, sem síðar fékk auðkennið ENV 12005. Uppbygging íslenska staðalsins varð að vera í samræmi við þann evrópska svo hægt yrði að skrá niðurstöðurnar beint í Evrópu- skrána. Nefiidin þurfti því að fylgj- ast náið með vinnunni við Evrópu- staðalinn. Fljótlega varð ljóst hvaða atriði yrði skylt að tilgreina í öllum færsl- um Evrópuskrárinnar, en það eru þau atriði sem hægt er að lýsa með formlegum hætti í Posix stýrikerf- um, með eins konar forriti. Þessi atriði nefnast skylduatriði og eru: 1. Röðun tölu- og bókstafa. 2. Flokkun bókstafa. 3. Ritun talna. 4. Ritun fjárhæða. 5. Ritun dagsetninga og tíma. 6. Játun og neitun. íslenska nefndin lagði því meg- ináherslu á að safna áreiðanlegum upplýsingum um þessi atriði. Nokkur óánægja var að vísu með þær takmarkanir sem Posix stað- allinn setur um formlegar lýsingar á þessum atriðum, en aðeins er hægt að bæta úr því með lagfær- ingum á sjálfum Posix staðlinum. Endanleg flokkun óskyldu- bundnu atriðanna, þ.e. atriða sem einungis er hægt að lýsa með óformlegum hætti, er þessi: 7. íslenskur tölvuorðaforði 8. Samval staðla 9. Stafróf og stafatöflur 10. Reglur um röðun 11. Umritanir 12. Eiginleikar bókstafa 13. Greinarmerki, sérstafir 14. Leturgerðir 15. Innnsláttur stafa 16. Mannanöfn 17. Beygingar 18. Orðskiptingar 19. Stafsetning 20. Mælingarkerfi 21. Fjárhæðir 22. Ritun dagsetn. og tíma 23. Kótar lands og tungu 24. Símanúmer 25. Utanáskriftir 26. Auðkenning lögpersóna 27. Tölvupóstföng 28. Númer bankareikninga 29. íslenskt hnappaborð 30. Samtal manns og vélar 31. Pappírssnið Eins og sjá má koma sum atriði bæði fyrir sem skyldubundin og óskyldubundin og er ástæðan sú að ekki er hægt að lýsa þeim fullkom- lega með formlegum hætti og því þarf að fara nánar út í þau með óformlegum lýsingum. Dæmi um þetta er ritun dagsetninga. Auk skyldubundnu atriðanna var ákveðið að taka nær eingöngu á þeim óskyldubundnu atriðum sem auðvelt væri að ná samstöðu um. Umræður nefndarinnar Orð ritara grísku umritunar- nefndarinnar geta vel átt við um alla nefndavinnuna við forstaðal- inn: „Reglur þessar eru afrakstur af dæmasöfhun, samanburði, vanga- veltum, rökræðum, rifrildi, eftir- gjöf og samkomulagi - og sá mikli tími sem fór í að semja þær sýnir e.t.v. best að þær voru ekki hristar fram úr erminni." í stuttu máli þá var stefna nefndarinnar sú að skilgreina sjálf- gildi staðalsins sem næst fomum hefðum, en leyfa valkosti þegar nauðsyn krefur og fresta allra erf- iðustu málunum. Auðvelt reyndist að lýsa ritun talna og Ijárhæða, en eins og allir vita þá nota Islendingar alltaf kommu sem tugabrotsskila og yfirleitt punkt sem þúsundaskila. Mynttáknið er aftan við upphæðina og bil á undan, en mínusmerkið rétt fyrir framan upphæðina. Mikil vinna fór hins vegar í að skilgreina ritun dagsetninga og tíma, enda er það flóknasta skyldu- bundna atriði Evrópuskrárinnar. í umræðumumgrein4.5, semfjallar um formlegar lýsingar á hefð- bundinni ffamsetningu dagsetninga og tíma var tekist á um hver sjálf- gildin ættu að vera, hvort nota ætti skammstöfun eða skammnefni og 24 eða 12 stimda klukku. Grein 4.22 fjallar um dagsetningamál sem ekki er hægt að lýsa í Posix. Þar var tekist á um skiltákn við ritun tíma, upphaf vinnuviku og áratuga og tengslin við alþjóða- staðal um ritun tíma. Einnig var lögð mikil vinna í að skilgreina stafróf og stafatöflur til notkunar á íslandi, sem er grein 4.9 í staðlinum. Þó þessi grein sé ekki skyldubundin í Evrópuskránni taldi nefndin mjög mikilvægt að þessi mál væru ótvíræð. Sérstakur vinnuhópur kortlagði hvaða stafa- töflur eru mest notaðar á íslandi og ráðlagði Code Page 850 sem aðaltöflu í MS-DOS umhverfi. Löng umræða varð í öðrum vinnu- hópi um hvað væri íslenska staf- rófið. Hann komst að þeirri niður- stöðu að ekki væri raunhæft að óska eftir tölvubúnaði án ensku stafanna C, Q, W og Z. Grunn- krafa staðalsins er því sú að tölvu- kerfi skuli ráða við íslenska staf- Tölvumál - 19

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.