Tölvumál - 01.03.1996, Page 23
Mars 1996
Skýrsla Orðanefndar
Starfsemi orðanefndar hefur
verið mjög íjörug síðastliðið ár.
Nefndin hélt 37 fundi á árinu þar
sem fjallað var um aðsent efni og
efni úr stöðlum frá ISO. Nefndin
hefur fengið til liðs við sig séríræð-
inga í íjarskiptatækni, tengimiðlun
(hypermedia) og gluggakerfum. I
lok ágúst kom svo til liðs við
nefndina Stefán Briem sem mun
starfa með nefndinni sem ritstjóri
á meðan verið er undirbúa þriðju
útgáfu. Nefndarmenn eru mjög
ánægðir með að hafa fengið Stefán
sértil fulltingis. Sem fyrr hefur rit-
stjóri aðsetur í Islenskri málstöð í
Aragötu 9 og vil ég fyrir hönd
orðanefndar og Skýrslutækni-
félagsins þakka íslenskri málnefnd
og Islenskri málstöð fyrir þá vel-
vild sem orðanefndin hefur notið
en hún hefur haldið fundi sína í Isl-
enskri málstöð frá stofnun stöðv-
arinnar.
Snemma á árinu 1994 var sett
á fót verkefnisnefnd sem var ætlað
það hlutverk að undirbúa endur-
skoðun Tölvuorðasafns frá 1986.
í nefndinni eru Douglas Brotchie
og Heimir Sigurðsson frá stjóm
Skýrslutæknifélagsins og Sigrún
Helgadóttir, formaður orðanefnd-
ar. I maí 1994 sendi nefndin um-
sókn til Menningarsjóðs um styrk
til endurskoðunar Tölvuorðasafns
en fékk synjun. Áður hafði for-
maður orðanefndar leitað til
menntamálaráðherra um styrk.
Það erindi var sent í júní 1993 en
endanlegt afsvar barst ekki fyrr en
í maí 1994. Áður hafði íslensk
málnefnd þó sent ráðuneytinu mjög
jákvæða umsögn um verkefnið.
Send var umsókn um styrk til Mál-
ræktarsjóðs fyrir u.þ.b. ári. Sjóð-
urinn veitti 1200 þús. til verksins.
Einnig var sótt um styrk til Lýð-
veldissjóðs og veitti hann styrk að
upphæð 350 þús. krónur. Á vegum
verkefnisstjórnar og stjórnar fél-
agsins hefur verið safnað fé frá
fyrirtækjum og stofnunum og mun
ijáröflun halda áfram á þessu ári
og næsta. Aftur verður sótt um
styrki til Málræktarsjóðs og Lýð-
veldissjóðs á þessu ári. Fyrir hönd
orðanefndar vil ég þakka stjómar-
mönnum fyrir vasklega ffamgöngu
við fjáröflun. Við upphaf fjáröfl-
unar voru í sjóði 500 þús. krónur
sem er styrkur frá RUT-nefnd.
Gerð hefur verið nákvæm
áætlun um endurskoðun orðasalhs-
ins sem er birt á öðrum stað í
blaðinu. Á vegum verkefnisstjóm-
ar er unnið að þvi að setja Tölvu-
orðasafnið frá 1986 í það form að
unnt sé að fletta upp í því á ein-
faldan hátt í tölvu. Þeir sem styrkja
verkefnið fá aðgang að því þannig.
Einnig er verið að athuga mögu-
leika á því að koma á ffamfæri á
sama hátt viðbótum á nokkurra
mánaða fresti.
Sigrún Helgadóttir
Skýrsla faghóps um
greiningu og hönnun
hugbúnaðarkerfa fyrir
árið 1995
Á árinu vom haldnir tveir fund-
ir á vegum faghópsins. Fyrirkomu-
lag fundanna er þannig að faghóps-
félögum er tilkynnt um fundina.
Aðgangur að þeim er ókeypis og
ekki þarf að tilkynna þátttöku.
Fundimir voru gagnlegir þar sem
framsöguerindi voru fróðleg og
umræðan sem skapaðist á eftir
framsöguerindi var lífleg. Þá stóð
faghópurinn að undirbúningi hug-
búnaðarráðstefnu Skýrslutæknifél-
agsins.
Atburðimir voru þessir:
19. janúar 1995: Notkun hlut-
bundinna aðferða við greiningu og
hönnun. Framsöguerindi: Heimir
Þór Sverrisson, PlúsPlús hf. I
panelumræðum var Ebba Þóra
Hvannberg, Raunvísindastofnun
Háskóla íslands auk Heimis.
Fundarmenn voru 27.
1. mars 1995: Notkun hlut-
bundinna aðferða við greiningu og
hönnun. Framsöguerindi: Vil-
hjálmur Þorsteinsson, íslenskri for-
ritaþróun. Fundarmenn voru 11.
11. maí 1995. Hugbúnaðarráð-
stefna. Gerð notendaskila og að-
lögun kerfisþróunarlíkana. Sjávið-
auka við skýrslu formanns.
Laufey Asa Bjarna-
dóttir
Punktar...
Óvenjulegt
brúðkaup
Þegar fréttir bárust af því
að Victoria Vaughn hafði sagt
já við Joseph Perling um tölv-
una sína, stödd á öðrum stað
en brúðguminn, þótti víst
mörgum of langt gengið. Brúð-
kaupið átti sér stað í Los An-
geles og Holly wood en prest-
urinn var einhverstaðar allt
annars staðar.
Einhverstaðar verður að
draga mörkin eða hvað? Hvað
er varið í að gifta sig þegar
þátttakendur eru hver á sínum
stað og styðja á hnapp. Ein-
hver hélt því fram að það væri
mikilvægast að horfa í augu
brúðar sinnar og sjá glampann
þegar hún segir já. Og hvað þá
með brúðkaupsnóttina, er
henni líka eytt á Netinu?
Nýtt öryggiskerfi
Ef þú skiptir um rakspíra
eða ilmvatn kemstu ekki lengur
inn. Því nú er verið að að
hanna við Tufits Háskóla kerfi
þar sem aðgangsöryggi er
tryggt með lykt. Því hver
maður hefur sina lykt einsog
fingrafar. Tíu lyktarskynjarar
eru tengdir tauganeti sem efltir
að hafa einu sinni lært að
þekkja lykt þína hleypir þér
alltaf inn.
Tölvumál - 23