Tölvumál - 01.03.1996, Síða 28
Mars 1996
Framtíðarsýn Pósts og síma
Eftir Þór Jes Þórisson
Inngangur
Með fyrirsjáanlegum samruna
síma, tölvu og sjónvarps opnast
nýir möguleikar. Ný þjónusta
verður til og eldri þjónusta batnar.
Símaþjónustan er gott dæmi um
þetta. I lok ágúst á síðasta ári voru
allar símstöðvar orðnar stafrænar.
Þetta þýðir að allar símstöðvar eru
í dag tölvur og að ákveðnum
áfanga í samruna síma og tölvu
hefur verið náð. Breytingar sem
gera þarf í símakerfmu hvort sem
er að setja inn nýja notendur, nýja
þjónustu eða hanna nýja þjónustu,
eru gerðar frá einni eða fleiri
tölvum. Hægt er með svokölluðu
greindarkerfi, sem er hugbúnaðar-
pakki, að skraddarasauma síma-
þjónustu að þörfum viðskiptavinar.
Dæmi um greindarþjónustu er t.d.
alnúmer. Þá getur fyrirtæki haft
aðeins eitt símanúmer, en símtölum
í það númer er t.d. hægt að vísa til
þess útibús sem er næst þeim sem
hringir.
Möguleiki viðskiptavina Pósts
og síma að vera alltaf í sambandi
og geta hringt hvert sem er og nán-
ast hvaðan sem er, fer sífellt vax-
andi. Gott dæmi um þetta eru far-
símakerfm sem Póstur og sími
rekur í dag. í GSM farsímakerfinu
er væntanleg nýjung fyrir tölvu-
notendur sem mun bjóða upp á að
senda fax eða tölvupóst hvar sem
GSM kerfið er fyrir hendi.
Breiðbandsnet Pósts og síma er
í örri uppbyggingu og prófanir á
ATM tækninni eru hafnar. Með
samruna breiðbandsnets Pósts og
síma og ATM mun verða til fjar-
skiptakerfi framtíðarinnar, sem
ásamt þráðlausum ijarskiptakerf-
um á borð við GSM munu gera
notendum kleift að senda og taka
við þeirri bandbreidd sem þeir
þurfa í hvert sinn.
Þráðlaus tölvufjar-
skipti með GSM
GSM kerfið vex mjög hratt og
eru í dag um 10.000 notendur í
kerfínu. Með sömu fjölgun má
búast við að notendur í GSM kerf-
inu verði komnir vel yfir 20.000
innan tveggja ára og verða þar með
orðnir fleiri en NMT notendur eru
nú. Verið er að prófa að nota GSM
kerflð til að flytja allt að 9.600b/s
gagnaflutning. Búist er við að þessi
þjónusta verði boðin á þessu ári.
Flutningsgeta er háð tegund far-
síma. Sem dæmi má nefna að
9,6kb/s möguleikinn er fyrir hendi
í sumum tegundum nýrri farsíma,
en aðrir símar hafa kannski ekki
nema 2,4kb/s flutningsgetu. Til
þess að nýta sér þennan möguleika
verður að kaupa PCMCIA kort
sem tengir fartölvuna við farsím-
ann.
Von er á stærri gagnabrautum
um GSM kerfið sennilega innan
tveggja ára. Þá verður hægt að fá
allt að 64kb/s flutningsgetu eða
jafnvel meiri um kerfið með því að
tengja saman fleiri en einn „tíma-
glugga“ fyrir gagnaflutning. Þessi
möguleiki mun gera notendum
kleift að flytja stórar skrár á
skömmum tíma.
Einnig verður innan nokkurra
ára mögulegt að setja upp sérstaka
pakkanetsþjónustu á GSM kerfinu.
Þetta mun þýða betri nýtingu á
GSM rásum fyrir þá sem nýta sér
þetta. Þessi þjónusta mun henta
mjög vel fyrir t.d. stóra bílaflota
sem þurfa að koma stuttum skila-
boðum á milli sín eða milli sín og
miðstöðvar svo sem leigubíla.
Samfara þessu má búast við ýms-
um sérútgáfum á GSM-farsímum,
til þess að nýta alla möguleika
kerfisins sem best.
Meðal annarra nýjunga sem
væntanlegar eru í GSM kerfinu er
„Short Message Service“, SMS, en
það gerir GSM notanda kleift að
senda allt að 160bæt frá einum far-
síma yfir í annan, með því að nota
stafaborð GSM símans. Þessi
þjónusta verður í boði seinna á
þessu ári.
Aðrar nýjungar, sem tæknilega
verða fyrir hendi á næsta ári, enda
þótt engin afstaða hafi verið tekin
til þess að öðru leyti, eru lokaðir
notendahópar í GSM og svæða-
skipting í gjaldskrá fyrir GSM
notendur. Einnig er fyrirsjánlegt að
miðstöð GSM kerfísins geti verið
notuð fyrir DECT síma í fram-
tíðinni.
Samnetið
Samruni síma og tölvu er einnig
greinilegur í Samnetinu, ISDN (In-
tegrated Services Digital Net-
work), þar eru talsími og gögn flutt
eftir sama koparparinu á 144kb/s.
Með Samnetinu opnast möguleiki
fyrir gagnaflutning allt að 128kb/s,
sem er nægjanlega bandbreið
gagnabraut til að starfa í biðlara1
miðlara umhverfi, eða mjög góð
Intemet tenging.
Samnetið er þjónusta sem allir
símnotendur geta nýtt sér með tíð
28 - Tölvumál