Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 5
Frumkvöðlasetriö Frumkvöðlasetrið Eggert Þór Bernharðsson Til að ná tilgangi sín- um veitir Frumkvöðla- setrið unga fólkinu að- stöðu til að vinna að hugmyndum sínum og býr því umhverfi þar sem það tekst á við raunveruleg verkefni Frumkvöðlasetrið ses. var formlega stofnað 29. maí 2001 og hefur að- setur í Þingholtsstræti 29A, þar sem áður voru höfuðstöðvar Borgarbókasafns Reykjavíkur. Setrið verður miðstöð fyrir frumkvöðla og hugvitsfólk framtíðarinnar en Frumkvöðlasetrið vill stuðla að nýrri þekkingu og aukinni menntun í samfélag- inu með því að hvetja ungt fólk á aldrinum 11 til 18 ára til dáða og rækta með því frumkvöðlahugsun. Jafnframt vill Setrið örva skapandi hugsun meðal barna og unglinga almennt, miðla þekkingu til ung- menna sem búa yfir frumkvæði og ýta undir að framsæknar hugmyndir þeirra öðlist brautargengi í samfélaginu og eigi greiða leið inn í atvinnulífið. Til að ná til- gangi sínum veitir Frumkvöðlasetrið unga fólkinu aðstöðu til að vinna að hugmynd- um sínum og býr því umhverfi þar sem það tekst á við raunveruleg verkefni, setur sig í spor atvinnurekenda, hefur aðgang að nýjustu tækni og stofnar jafnvel ný fyrir- tæki í framhaldi af hugmyndavinnunni eða á samstarf við önnur nýsköpunarfyrirtæki. Að jafnaði verða ungmennin sem taka þátt í starfi Frumkvöðlasetursins 20-25 talsins í einu og verður stærstur hluti þátt- takenda valinn af sérstakri nefnd á grund- velli umsókna þar sem hugmyndum við- komandi er lýst en jafnframt kemst tiltek- inn fjöldi á Setrið eftir hugmyndasam- keppnir, í samstarfi við grunnskóla og eftir öðrum leiðum. Dvöl á Setrinu er þátttak- endum að kostnaðarlausu. Eiginleikarnir sem leitað er að hjá umsækjendum eru frumleiki, frjótt ímyndunarafl, rökhugsun, samskiptahæfni og áhugi á viðfangsefnum Setursins. Áhersla verður lögð á að skerpa framtíðarsýn þátttakendanna svo þeir geti spáð fyrir um hugsanlega þróun og geri sér mynd af því ástandi sem verður þegar þeir sjálfir koma út í atvinnulífið. Á Frumkvöðlasetrinu verður rík áhersla lögð á aðlaðandi umhverfi og góðan að- búnað enda er góð aðstaða einn lykilþátt- urinn í öllu skapandi starfi. Á 1. hæð húss- ins verður fullkomið tölvuver, tilrauna- stofa, hljóðver og myndvinnsla auk eld- húss og kaffistofu. Á 2. hæð verður mót- taka, bókastofa, hugmyndasmiðja, upp- tökuhorn fyrir sjónvarp og fjölnotasalur sem jafnframt er stærsti salur hússins. Á 3. hæð verður rúmgóður kennslusalur, setu- stofa og skrifstofa Setursins. 1. hæðin er hátæknisvæði og innréttuð í þeim anda, 2. og 3. hæðin taka hins vegar mið af virðu- legum aldri hússins og útliti og verða hæðirnar hannaðar og búnar húsgögnum í stíl við arkitektúr hússins. Unnið er að breytingum innanhúss og annar undirbún- ingur að starfsemi Frumkvöðlasetursins er í fullum gangi. Stjórnarformaður Frum- kvöðlasetursins er Guðjón Már Guðjóns- son í OZ en hann er jafnframt hvatamað- urinn að stofnun þess og á hugmyndina að Setrinu. Frumkvöðlasetrið mun starfa allt árið en starfsár þess skiptist í þrjár annir, haustönn (september-desember), vorönn (janúar-maí) og sumarönn (júní-ágúst). Fjöldi þátttakenda á önn getur verið breytilegur eftir árstímum og eðli við- fangsefna en þó er gert ráð fyrir að flestir verði starfandi á sumarönn og vinnudagur lengstur. Setrið er opið þátttakendum dag- lega, á haustönn og vorönn eftir að hefð- bundnum skóladegi lýkur en á sumarönn er opið frá morgni til kvölds. Auk reglu- bundinnar starfsemi á Setrinu munu hópar þaðan fara í vettvangsferðir, heimsækja nýsköpunarfyrirtæki og hitta þar lykil- stjórnendur og starfsfólk. Fyrri hluta dags á haustönn og vorönn verður Setrið opið grunnskólanemendum sem koma í skipu- lagðar heimsóknir til að fræðast um starf- semina en jafnframt verður þeim boðið að taka þátt í verkefninu „Fyrirtækið mitt“. Við lok starfsárs fá þátttakendur braut- skráningarskírteini þar sem fram kemur að þeir hafi staðist þær kröfur sem gerðar eru á Frumkvöðlasetrinu og lokið þeinr verk- efnurn sem viðkomandi lögðu upp með. Að sjálfsögðu er Frumkvöðlasetrið jafnt ætlað fyrir stelpur sem stráka. Hins vegar er það staðreynd að áhugi stráka á tölvu- tengdum málurn er meiri en stúlkna. Því verður sérstaklega leitað leiða til að vekja Tölvumál 5

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.