Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 23

Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 23
CeBIT 2001 A( CeBIT 2001 Einar H. Reynis / l/ósi þess að innan tíðar verður skylda hérlendis fyrir öku- menn að nota hand- frjálsan búnað fyrir farsíma í bílum var at- hyglisvert að sjá slíka lausn þar sem blá- tönn var notuð. Innan upplýsingatækninnar eru notaðar óteljandi margar skammstafanir en það má alveg bæta við að útskýra uppruna skammstöfunarinnar CeBIT. Lengi vel var tæknihlutinn sem núna er CeBIT-sýn- ingin hluti af iðnaðarsýningunni í Hannover en fyrir tæpum tveimur áratug- um var ljóst að vöxturinn var svo mikill að kljúfa yrði tæknihlutann frá. Ákvörðunin olli nokkrum titringi en eins og þeim verð- ur ljóst sem koma á sýninguna nú til dags, þar sem 8.000 aðilar sýna vöru sína og þjónustu, má hún ekki verða stærri að óbreyttu. Það nafn sem stungið var upp á í byrjun var „Centrum der Búro- und Org- anisationtechnik“ skammstafað CeBOT en lausleg þýðing er Miðstöð fyrir skrifstofu- og skipulagstækni. Ekki þótti þetta heppi- legt nafn og stungið upp á „Centrum der Búro- und Informationstechnik" skamm- stafað CeBIT en fyrir utan að skipta út skipulagstækni með upplýsingatækni er jafnframt verið að vísa til einnar minnstu mælieiningarinnar sem er notuð í heimi tölvunnar, bitans. Smátæki í sviðsljósinu Þeir sem eru vanir að ferðast á CeBIT-sýn- inguna vita sem er að undirbúningur hefst löngu áður og með tilkomu Vefsins er það sífellt auðveldara. Á heimasíðu sýningar- innar er að finna allar mögulegar upplýs- ingar og hver og einn sem notar hana get- ur vistað þar sinn eigin gagnagrunn og núna er einnig mögulegt að flytja mikið af efninu á lófatölvur og hafa með sér á staðinn. í þetta sinn var einnig boðið upp á að heimsækja ákveðna staði innan sýn- ingarsvæðisins og bæta inn upplýsingum á því sem kallað var „upplýsinga-áfyllingar- stöð“. Til viðbótar var í einurn skálanum boðið upp á þá nýjung að nota blátönn til að nálgast upplýsingar þráðlaust en að sögn fjölmiðla sem um þetta skrifuðu reyndist það vonlaust því truflanir voru þegar til kom alltof miklar. Það var kannski ekki beint uppörvandi að heyra einn aðstandanda tilraunarinnar segja að þetta væri miður því að á kvöldin, þegar enginn væri í húsinu, virkaði allt sem skyldi. Það má vera að borið sé í bakkafullann lækinn að fjalla um blátönn enn eina ferð- ina. Sumir óþreyjufullir fjölmiðlar eru farnir að skjóta föstum skotum á tæknina og einn þeirra tók nýlega svo djúpt í árinni að kalla blátönn „aprílgabb sem búið er að standa yfir í firnm ár“. Vissulega er langur tími liðinn frá því tæknin var fyrst kynnt en á CeBIT-sýningunni voru þó sýnd ýmis tæki af fyrstu kynslóð sem eru allrar at- hygli verð. Fyrir utan það sem búast mátti við eins og að vera viðbót í farsíma og lófatölvur mátti sjá blátönn sem þráðlausa framlengingu á tækni fyrir fasttengdar gagnaflutningslínur af ýmsu tagi. Einnig voru sýndar lausnir þar sem blátönn var notuð í samspili rnilli hefðbundins staðar- nets og farsíma þannig að frá notanda séð var um eitt samfellt net að ræða með sjálf- virkri skiptingu á milli eftir því sem við átti. I ljósi þess að innan tíðar verður skylda hérlendis fyrir ökumenn að nota hand- frjálsan búnað fyrir farsíma í bílum var at- hyglisvert að sjá slíka lausn þar sem blá- tönn var notuð. Ökumaðurinn gæti haft símann sinn áfram í vasanum en sírninn tengdist sjálfkrafa við handfrjálsa búnað- inn sem væri hluti af bílnum, bæði hljóð- nenri og hátalarar. Snúrur og stæði fyrir blátannarvæddan síma væru því óþarfar. Ericsson sýndi forvitnilegt blátannar- tæki sem kallast BLIP eða Bluetooth Local Infotainment Point. Tilgangurinn Tölvumál 23

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.