Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 6
F r u m kvöð I a setr iÖ Til að gefa sem flest- um unglingum tæki- færi til að kynnast starfsemi Frumkvöðla- setursins af eigin raun hefur Setrið áhuga á að bjóða öllum nem- endum 9. bekkjar á höfuðborgarsvæðinu í heimsókn tvisvar á skólaári Aðsetur Frumkvöðlasetursins verður að Esjubergi við Þingholtsstræti. áhuga stúlkna á starfsemi Setursins. Ekki verður þó um kynjakvóta að ræða þegar umsóknir eru metnar. En Frumkvöðlasetr- ið er ekki einungis ætlað þeim ungmenn- um sem valin verða í meginprógramm þess heldur er því einnig ætlað að vera þeim, sem ekki eru meðlimir, hvatning til frumkvöðlahugsunar og verðugt markmið til að stefna að. Það gerir Setrið meðal annars með almennri kynningu, reglu- bundnum sjónvarpsþætti og móttöku hópa. Leiðbeinendur á Frumkvöðlasetrinu koma úr ýmsum áttum en tiltekinn fasta- hópur mun starfa við Frumkvöðlasetrið allan ársins hring og hafa umsjón með nemendum, verkefnum þeirra og fram- vindu. Fjöldi gestaleiðbeinenda kemur einnig að starfseminni, fólk af ólíkum sviðum í samfélaginu en sérstök áhersla verður lögð á þá sem eru í forystu nýsköp- unar í íslensku athafnalífi. A Frumkvöðla- setrinu verður lögð sérstök áhersla á mál- efni sem lítið fer fyrir í almenna skóla- kerfmu og beitt kennsluaðferðum sem hlúa að framkvæmdagleði, sjálfstæði og hugmyndaauðgi þátttakenda. „Fyrirtækið mitt" Til að gefa sem flestum unglingum tæki- færi til að kynnast starfsemi Frumkvöðla- setursins af eigin raun hefur Setrið áhuga á að bjóða öllum nemendum 9. bekkjar á höfuðborgarsvæðinu í heimsókn tvisvar á skólaári, einu sinni á haustönn og einu sinni á vorönn. Fjöldi skóla hefur nú þegar þekkst boðið og áhugi skólastjórnenda á þessari nýbreytni er mjög mikill. Tekið verður á móti hópum fyrri hluta dags og gert er ráð fyrir því að hver heimsókn taki alls um þrjár kennslustundir. 1 þessari vett- vangsheimsókn fá nemendur verkefnið „Fyrirtækið mitt“ í hendur sem þeir vinna síðan að á vefsvæði Frumkvöðlasetursins. Verkefnið felst í því að nemandinn, sem má vera hluti af litlum hópi, stofnar fyrir- tæki í sýndaruinhverfi á vefsvæði Frum- kvöðlasetursins. Fyrirtækið getur verið á hvaða sviði atvinnulífsins sem er og tengst öllum geirum mannlífsins. Hugmyndina að fyrirtækinu þarf að þróa frá grunni og þeir sem ná lengst ljúka ferlinu með því að stofna sýndarfyrirtæki í samvinnu við sýndarfjárfesta en mikilvægt er að nem- andinn sannfæri fjárfesta um ágæti hug- myndarinnar og fái þá til liðs við sig. Við þróun hugmyndarinnar og kynningu á fyr- irhuguðu fyrirtæki má nemandinn nota öll hjálparmeðul sem tengjast Netinu og áhersla er lögð á að efnið sé sett fram með sem fjölbreyttustum hætti. Foreldrum er frjálst að aðstoða börn sín og þeir geta skráð sig hjá Frumkvöðlasetrinu til þess 6 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.