Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 18
Menntun
UT-skólar og dreifnóm
Jóna Pólsdóttir
Um er að ræða þrjá
grunnskóla og þrjá
framhaldsskóla sem
eru þátttakendur í til-
raunaverkefni á veg-
um menntamálaráðu-
neytisins
Hugtakið dreifnám
lýsir blöndu af stað-
bundnu námi og
fjarnámi
Hvaða skólar eru UT-skólar og hvað
eru þeir að gera? Hvað er dreif-
nám?
UT-skólarnir hafa í þrjú ár unnið mark-
visst þróunarstarf í upplýsingatækni og
undirbúið breytta kennsluhætti. Dreifnám
er hluti af skólastarfínu því nemendur eiga
þess kost að „mæta“ utan kennslustofunn-
ar í nám sem byggir á notkun Netsins.
Ný tækifæri til menntunar hafa opnast
með aukinni notkun upplýsingatækni og
Netsins í skólastarfi. Þar gegna þráðlaus
staðamet í skólum mikilvægu hlutverki
því þau breyta leiðum að upplýsingum og
tilhögun náms. Skipulagðir gagnagrunnar
með góðum leitarvélum, ásamt aukinni
bandvídd, flýta fyrir markvissri upplýs-
ingaöflun. Samstarf og símenntun kennara
gerir þeim kleift að taka upp áður óþekkt
kennslufyrirkomulag og dreifnám verður
raunverulegur valkostur nemenda.
UT-skólar
UT-skólar eru þróunarskólar í upplýsinga-
tækni. Um er að ræða þrjá grunnskóla og
þrjá framhaldsskóla sem eru þátttakendur í
tilraunaverkefni á vegum menntamála-
ráðuneytisins með stuðningi sveitarfélaga
og Landssímans. Skólarnir eru:
• Arbæjarskóli, Barnaskólinn á Eyrar-
bakka og Stokkseyri, Varmalandsskóli í
Borgarfirði
• Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjöl-
brautaskóli Suðurlands á Selfossi,
Menntaskólinn á Akureyri.
Hlutverk UTskóla er að vinna að þróun
upplýsingatækni í skólastarfi. Áhersla er
lögð á breytta náms- og kennsluhætti til að
mæta kröfum samfélagsins. Skólarnir leit-
ast við að miðla reynslu sinni og halda
fjölbreytt námskeið á Netinu um notkun
upplýsingatækni. Námskeiðin eru fjar-
kennd og opin kennurum úr öllum skólum
en auk þeirra á öflugt kynningarstarf sér
stað á fundum og á Netinu (www.utskol-
ar.is). Þekking og reynsla skólanna er
einnig kynnt á UT ráðstefnum mennta-
málaráðuneytisins sem haldnar eru í mars
ár hvert.
Dreifnám
Hugtakið dreifnám lýsir blöndu af stað-
bundnu námi og fjamámi. I því felst að
hefðbundin stundatafla er brotin upp og
nemendur eru ekki endilega á sama stað á
sömu stundu samkvæmt fyrirfram
ákveðnu skipulagi. Til dæmis má skipu-
leggja verkefnavinnu með notkun Netsins
og í stað skólastofu má tala um kennslu-
rými þar sem nemendur stunda nám sitt.
Dreifnám byggist að hluta til á staðbundn-
um mætingum og að hluta til á fjarnámi.
Ekkert er því til fyrirstöðu að stunda dreif-
nám við fleiri en einn skóla samtímis. I
því tilfelli gæti einn skóli verið heimahöfn
nemanda. Með þessu fyrirkomulagi öðlast
nemandinn fjölbreyttari valmöguleika og
verður þar af leiðandi meðvitaðri og
ábyrgari fyrir námsframvindu sinni. Dreif-
skóli verður ekki til í einni svipan heldur
er hér um þróun að ræða sem byggir á
samverkan ólíkra þátta sem unnið verður
að á næstu árum (sjá verkefnaáæltun
menntamálaráðuneytisins
www.menntagatt.is).
Tilraunaverkefnið
Síðan þróunarskólaverkefnið hófst fyrir
þremur árum (1998) hefur vægi upplýs-
ingatækni stóraukist og námsumhverfi
breyst. Breytingarnar eru afgerandi í fram-
haldsskólunum þremur í kjölfar fartölvu-
væðingar og þráðlausra nettenginga.
Leiðir til að vinna með efni á Neti þarf
að prófa í tilraunastarfi áður en fullyrt er
um gæði þeirra og hafa skólarnir verið að
prófa sig áfram. Áhersla hefur verið lögð á
að opna nýjar samskiptaleiðir svo nem-
endur öðlist þjálfun til að taka þátt í upp-
lýsinga- og þekkingarsamfélagi. Eitt af
verkefnum komandi vetrar er tilraun með
notkun smáskilaboða farsíma (SMS) og
samskiptaforritsins iPulse við verkefna-
vinnu nemenda.
Breyttir kennsluhættir kalla á greiðan
aðgang nemenda og kennara að Netinu
jafnt í skólastofu sem utan hennar. Til að
svo megi verða þarf handhægan endabún-
að og þráðlaus net í skólana, sem og öfl-
18
Tölvumál