Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 32

Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 32
Frá Orðanefnd Access Control List, ACL Samkvæmt orðabók á veraldarvef er Access Control List ‘listi yfir þjónustu- þætti sem eru til reiðu í tilteknum miðlara ásamt lista yfir þær hýsitölvur sem mega nota hvem þjónustuþátt’. Orðanefndin leggur til að nota um þetta heitið ciðgcings- listi. Disallowed Address List, DAL Þetta mun vera listi yfir þá sem mega ekki tengjast tilteknum miðlara og nota þar þjónustu. Orðanefndin leggur til að nota um þetta heitið bcinnlisti. shared key Shared key er lykill sem er notaður við dulráðningu. Allir notendur hafa sama lykilinn til þess að ráða tiltekna dulritun. Orðanefndin leggur til heitið samnota lyk- ill. mobile computing, portable computing Þessi tvö heiti virðast vera samheiti og eiga við það að nota fartölvu og geta stundað tölvuvinnslu nánast hvar sem er. Lagt er til að kalla þetta fartölvuvinnslu eða stytta jafnvel ífarvinnslu sbr. fjar- vinnsla. hotspot Enska heitið hotspot virðist notað í ýms- um merkingum í tölvu- og fjarskiptatækni og er ýmist ritað hotspot eða hot spot. í grein Sigurðar Hjalta Kristjánssonar er þetta heiti notað um tiltekinn stað þar sem unnt er að fá þjónustu skammdrægra senda fyrir þráðlaus net þar sem búist er við að margir safnist saman með fartölvur sínar. Netveitur hugsa sér gott til glóðar- innar að krækja þannig í viðskipti á flug- völlum, kaffihúsum og í ráðstefnusölum. A þessum stöðum er unnt að þjóna mörg- um viðskiptavinum, sem staldra stutt við, á afmörkuðu svæði. Orðanefndin lagði til að hotspot í þessari merkingu heiti net- vangur. seamless roaming Enska heitið scamlcss roaming er notað um það að notandi farsíma fær sjálfkrafa samband við þann sendi sem næstur er eða hefur mestan styrk þegar hann færir sig til. Hvorugkynsorðið reiki hefur verið notað um þetta fyrirbæri. Það orð mun vera ný- yrði, en fyrir er í málinu hvorugkynsorðið reik sem merkir m.a. ‘flakk, ráf’. Það kemur t.d. fyrir í orðasambandinu ‘e-ð er á reiki’. Fyrir áhrif frá þessu orði hefur orð- ið til hvorugkynsorðið reiki. frequency hopping spread spectrum, direct sequence spread spectrum Þessi heiti lýsa tiltekinni sendingartækni fyrir þráðlaus fjarskipti. Orðanefndin fékk aðstoð ritstjóra Tölvumála, Einars Reynis, til þess að reyna að skilja þessi hugtök. Hér er verið að fjalla urn afbrigði af því sem á ensku kallast spread spectrum modulation og felst í því að dreifa afli merkis yfir breitt tíðniróf. Orðanefnd legg- ur til að það heiti mótun með rófbreikkun. Frequency hopping spread spectrum felst í því að skipta um tíðni eftir tiltekn- um reglum. Orðanefndin leggur til að það sé kallað rófbreikkuð stökksending. Direct sequence spread spectrum felst í því að sameina merkið sem senda skal öðru merki og dreifa því um tíðnirófið. Orða- nefndin leggur til að það sé kallað róf- breikkuð samfellusending. customized solution I Tölvuorðasafninu er sögnin customize skilgreind sem það að ‘aðlaga staðlað kerfi þörfum tiltekins notanda’. Gefin er þýðingin sérsníða. Nánari athugun hefur leitt í ljós að þessi þýðing er ekki alls kostar heppileg. Nefndin leggur því til að nota orðið aðhæfður um customized. Customized solution yrði þá aðhcefð lausn og customazition yrði aðhœfing. application service provider, ASP Þetta mun vera heiti á þjónustu eða þjón- ustuveitu þar sem veittur er aðgangur að tilteknu notkunarforriti um net. í orðasafni á veraldarvef þar sem gefnar eru skýringar á ýmsum heitum í tölvutækni (FOLDOC) er gefið sem dæmi heimasíða sem aðrar heimasíður nota til þess að taka við borg- un með greiðslukorti. Slík fyrirtæki munu vera kölluð keifisleigufyrirtœki. implement, implementation I 3. útgáfu Tölvuorðasafnsins var gelin þýðingin/M//ð«í? fyrir ensku sögnina implement og fullbúning fyrir implem- 32 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.