Tölvumál - 01.07.2001, Blaðsíða 7
að fá leiðbeiningar og nánari upplýsingar
urn verkefnið. Þannig má ætla að verkefn-
ið geti eflt samstarf barna og foreldra. Þá
má ætla að kerfisbundnar heimsóknir
nemenda í 9. bekk grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu á Setrið geti jafnframt
stuðlað að því að fjölga stúlkum í hópi
umsækjenda að því.
Verkefnið „Fyrirtækið mitt“ skiptist í
fimm þrep og er reiknað með því að fyrstu
þrjú þrepin tilheyri fyrri hluta verkefnisins
og séu unnin á haustönn en tvö síðustu
þrepin síðari hlutanum og séu unnin á vor-
önn. Hér er á ferð eins konar „frjálst fjar-
nám“ vegna þess að ekki er hægt að
skylda nemendur til þess að ljúka verkefn-
inu þar sem það er ekki hluti af skyldu-
náminu og fellur því ekki sjálfkrafa undir
hefðbundin svið innan skólakerfisins.
Hins vegar gæti úrlausn verkefnisins
hugsanlega orðið hluti af námsmati ein-
stakra kennara í tengslum við ákveðna
námsþætti í skólanum.
Þegar lokaniðurstöður verkefnisins
liggja fyrir verða bestu úrlausnirnar verð-
launaðar (allt að fimm lausnir) og þeim
nemendum sem þær unnu boðin dvöl á
Frumkvöðlasetrinu næsta ár til að þróa
hugmyndir sínar enn frekar. Jafnframt
verða veittar sérstakar viðurkenningar fyr-
ir bestu úrlausn úr hverjum skóla. Niður-
stöður verkefnavinnunnar verða kynntar
með nokkurri viðhöfn á sérstakri sam-
komu í lok skólaárs og í reglulegum sjón-
vaipsþætti á vegum Setursins verður með-
al annars fylgst stuttlega með heimsókn-
um unglinganna á Setrið yfir veturinn og
rætt við þátttakendur.
Með verkefninu „Fyrirtækið mitt“ vill
Frumkvöðlasetrið leggja sitt af mörkum til
að hvetja ungmenni til dáða, örva skap-
andi hugsun og glæða áhuga þeirra á nýrri
tækni. Mikilvægast er þó að virkja nem-
endur til nýsköpunar og hvetja þá til að
hagnýta sér nýja þekkingu samhliða því
að efla með sér upplýsinga- og tæknilæsi.
Með virku samstarfi Frumkvöðlasetursins
og grunnskólanna er hægt að aðstoða
nemendur við að að útfæra hugmyndir
sínar frá fyrstu hugdettu til lokaafurðar.
Hraði - þekking - hugkvæmni
Islendingar eins og flestar aðrar þjóðir
standa á miklum tímamótum. Upplýsinga-
samfélagið hefur haldið innreið sína. í
vændum er gjörbylting á lífsháttum fólks.
Hið nýja samfélag er á margan hátt frá-
brugðið því þjóðfélagi sem íslendingar
hafa átt að venjast. Til þessa hafa lífshagir
þjóðarinnar að miklu leyti byggst á fisk-
veiðum, fiskvinnslu og hefðbundnum
iðnaði, þar sem mikill fjöldi manna vinnur
við framleiðslu venjubundinna afurða. í
framtíðinni munu viðskipti með ýmiss
konar þjónustu skipta æ meira máli um af-
komu landsmanna, ekki síst starfsemi í
upplýsingaiðnaði og á sviði hátækni.
Fyrirtæki í upplýsingatækni gera aðrar
kröfur um f rumkvæði og aðlögunarhæfni
en hefðbundin iðnfyrirtæki vegna hraðrar
þróunar markaða og tækni. Hraði, þekking
og umfram allt hugkvæmni eru einkunnar-
orð upplýsingatækninnar. í því umhverfi
eru frumkvöðlar sem vita hvernig unnt er
að breyta góðri hugmynd í arðbæra vöru
ómetanlegir.
Ein grunnhugmyndin með Frumkvöðla-
setrinu er að búa í haginn fyrir framtíðina.
lolvumái
7