Tölvumál - 01.07.2001, Side 14
Microsoft.Net
Að vissu leyti má
segja að þetta dæmi
svipi til þeirra hug-
mynda sem liggja að
baki vistunar- og kerf-
isleigufyrirtækjum
Að sjálfsögðu eru
aðrir þættir sem
koma við sögu svo
sem að unnt sé að
komast að þjónust-
unni úr hvaða tæki
sem er
upp sem pakkavara sem þú kaupir út í
búð, heldur er hugbúnaður samsafn af vef-
þjónustum sem þú kemst í samband við í
gegnum Netið. Eitt af því sem gerir erfitt
fyrir fólk að átta sig á þessu er að
Microsoft í dag bíður ekki upp á mikið af
vefþjónustu.
Ef nánar er að gáð má sjá að vísar af
þessu eru að spretta upp hjá Microsoft.
Tökum sem dæmi fyrirtæki sem vill hafa
tölvupóstkerfi og dagatal fyrir starfsmenn
sína. Hér áður fyrr hefðu menn haft um
þann kost að ræða að setja upp hjá sjálfum
sér dýra tölvu sem keyrði póstkerfi eins og
Exchange eða cc:mail og svo haft mann í
hálfu starfi a.m.k. við að hreinsa út veirur
og halda kerfmu uppi.
Segjum að fyrirtæki með upp að 10-15
starfsmenn vilji notfæra sér .NET til þess
að setja upp póstkerfi hjá sér. í stað þess
að kaupa kerfi, þá velur það þá tölvupóst-
þjónustu og dagatalsþjónustu sem í boði
eru á Netinu (eflaust gegn lágu mánaðar-
legu gjaldi). Þeir geta gert samning við
þjónustuaðilann um gæði þjónustunnar og
hversu mikil aðstoð er veitt. Allt er þetta
greitt mánaðarlega í stað þess að borga
stóra fúlgu í upphafi. Þetta gerir það auð-
veldara fyrir lítil fyrirtæki að koma sér
upp rekstrarumhverfi án þess að fara í stór
fjárútlát.
Að vissu leyti má segja að þetta dæmi
svipi til þeirra hugmynda sem liggja að
baki vistunar- og kerfísleigufyrirtækjum.
Það kemur alls ekki á óvart því að það eru
einmitt þeir aðilar sem Microsoft vonast
til að verði aðal „söluaðilinn" á vefþjón-
ustu.
Rétt eins og hægt verður að fá tölvu-
póst- og dagatals-vefþjónustu er þegar í
dag hægt að fá þjónustu svo sem fjárhags-
og viðskiptamannabókhald í gegnum Net-
ið. Tími stórra pakkalausna eins og
Navision er að líða, sér í lagi fyrir smærri
(<100 manna) fyrirtæki. I stað þess að
kaupa þessa rándýru pakkalausnir, borga
síðan morðfé fyrir að aðlaga lausnina að
fyrirtækinu og síðan góða fúlgu í þjón-
ustugjald, þá mun verða hægt að setja upp
sitt bókhald í gegnum þjónustur eins og
netbokhald.is, bCentral og mySAP þar
sem einungis verður greitt vægt mánaðar-
gjald.
Eftir því sem tímarnir líða mun meiri og
meiri vefþjónusta spretta upp á Netinu og
með tækni eins og SOAP og UDDI verður
hægt að byggja upp sérsmíðaðar lausnir
fyrir fyrirtæki með því að raða saman
þeirri þjónustu sem þörf er á fyrir hvern
og einn aðila.
Þetta er grundvallarhugmyndin bakvið
stefnuna um .NET. Að sjálfsögðu eru aðr-
ir þættir sem koma við sögu svo sem að
unnt sé að komast að þjónustunni úr hvaða
tæki sem er (símum, lófatölvum, ísskáp-
um, borðtölvum, o.s.frv.) en þessir þættir
komast ekki í hálfkvisti við þá áherslu
sem lögð er á hugtakið hugbúnaður sem
þjónusta (e: software as a service).
Menn spyrja sig kannski af hverju
Microsoft sé að þessu. Jú að sjálfsögðu er
það að bjóða upp á vefþjónustu ný tekju-
lind hjá Microsoft. Það sem meira er að
þetta er tekjulind sem gefur pening mán-
aðarlega í kassann en ekki bara við kaup í
búð. Einnig þarf í flestum tilvikum ekki
að borga einhverjum þriðja aðila fyrir að
dreifa og selja vöruna. Framleiðslukostn-
aðurinn er líka miklu minni þar sem allt
fer í gegnum Netið.
Framtíðin
Við munum sjá sífellt fleiri vefþjónustur
spretta upp í kringum hugmyndina um
.NET. Fyrirtækið Microsoft mun bjóða
upp á þessa þjónustu en einnig munu aðrir
aðilar bjóða upp á vefþjónustu sem getur
tengst .NET-umhverfinu. Þannig hafa aðil-
ar eins og American Express, Ebay.com
og FedEx þegar tilkynnt áætlanir sínar í
þeim efnum.
Með tilkomu Visual Studio.NET sem
kemur út á haustmánuðum má síðan búast
við því að alls kyns vefþjónusta skjóti upp
kollinum. Það er íhugunarefni fyrir íslensk
hugbúnaðar- og þjónustufyrirtæki hvort
þar sé ekki möguleiki á markaðssókn.
Höfundur er ráðgjafi hjá IMG
Upplýsingatækni
14
Tölvumál